Símablaðið - 01.01.1935, Blaðsíða 32
18
SÍMABLAÐIÐ
Höll Þjóöabandalagsins.
tísku bollalegginga næstu árin varð sá,
að bygð var firðstöð, „Radio Nations“
í samvinnu milli Þjóðabandalagsins,
svissnesku stjórnarinnar og firðtækja-
félagsins „Radio Suisse“, en í þessum
samtökum befir rikisstjórnin sviss-
neska meirihl. atkvæðamagns. G. B.
Frh.
#
(Riss).
„Ó, verður það ekki yndislegt“, sagði
bún Gunna, um leið og hún helti i kaffi-
bollann. „Að bugsa sér að geta, eftir
nokkur ár, séð fólksstrauminn á götum
stórborganna og búðargluggana upp-
ljómaða, eða Niagarafossinn og frum-
skóga Afríku.“ Stopp, fröken Guðrún,
stopp,“ sagði Pétur. Það var farið að
flóa út úr bollanum hans. Eg held að
negrarnir ættu fyrst að læra að klæða
sig, áður en þið farið að kikka inn í
frumskógana þeirra, og mynduð þið
ekki gleyma ykkar grautarpotti ef þið
gætuð séð Austurlandamenn steikja
rottur sínar?“
Og nú var samtalið komið i gang og
yfir rjúkandi kaffi og mörgum pönnu-
kökum töluðum við að eins um fjar-
sýnina, þessa uppfyndingu, sem tæknin
mun bera á borð fyrir okkur áður en
varir, bara að okkur verði gott af krás-
Hvaða breytingar það muni hafa á
hið daglega lif okkar. Hvort það muni
ekki verða okkar fyrsta verk á morgn-
ana, að virða fyrir okkur Pyramidana
i Egyptalandi eða Randaríkjaflotann að
heræfingum, að sjá Carnera boxa í
Chicago eða Holmenkollen-skíðastökkin
i Noregi, að sjá Mússólíni, Hitler, R.oose-
welt. Hvort menn muni ekki alveg
gleyma næsta umhverfi sínu, horfa yf-
ir og gegu um það. Mun rósin i glugg-
anum ekki blómstra að óþörfu, lita-
skiftin á Esjunni að kveldlagi, sólarlag-
ið á Akureyri, norðurljósin, verða óséð,
en augað reika frá einni álfu í aðra,
eyrðarlaust, en þyrst í nýjungar?
„Ætli menn fari þá ekki að kynnast
sjálfum sér, kostum sínum og göllum,
þegar menn geta séð í hnakka sér,
kringum hnöttiun“, sagði Pétur. „Anu-
ars verður fjarsýnin mjög svo verðmæt
fyrir kaupmannsfrúrnar, þegar menn
þeirra eru í siglingum.“
Ef eg hefði fjarsýni, myndi eg leita
að henni Gunnu, — og' hafa augastað á
lionum Pétri.
mm.
E. Á.