Símablaðið

Árgangur
Aðalrit:

Símablaðið - 01.01.1935, Blaðsíða 21

Símablaðið - 01.01.1935, Blaðsíða 21
S I al A B L A Ð I Ð i Lyftum taki stærra, stærra; stöndum saman traust og þétt. Setjum markið hærra, hærra! heill svo krýni vora stétt. Einnig var haldinn afmælisfagnað- ur á öllum stærri stöðvum landssím- ans. Á afmælisfagnaðinum á Seyðisfirði flutti Halldór Benediktsson eftirfar- andi kvæði: Það vakir æ i vitund manns, að vernda sína hagi, og þá er vel, ef hugsun lians er hlý og nærri lagi, að virða lög, og velja rétt og vit og djörfung sýna. — Er þörfin knúði þessa stétt, var þegar hafin brýna. Og fyrir áratugum tveim var tekið saman höndum, og unnið siðan þarft með þeim, i þörfum félagsböndum. Að telja öll þau afreksverk er ekki á mínu færi. En sagan þeirra sannar merk, ef sögð og rituð væri. En nú er, vinir, eftir eitt, sem aldrei gleymast mætti: að þakka hófið. Vel er veitt, að vorra feðra hætti. Svo lifið heilir langa tíð, sem landsins þjónið síma. Og haldið velli, standist stríð! og starfið alla tíma. ö4ðœÉ(imdwi, £ 1 S, 1935 (útdráttur úr fundargerðinni) var haldinn 11. febrúar. — Fundar- stjóri var Guðm. Jóhannesson en ritari var Gunnar Bachmann. 1. liður á dagskrá var skýrsla stjórn- arinnar. Hóf formaður máls. Taldi hann eitt af því merkasta sem félagið hefði beitt sér fyrir á s. 1. ári, stofnun byggingar- samvinnufélags. Skýrði hann frá starfi þess, og horfum þeim sem á því væri, að hafist yrði handa um byggingar á yfirstandandi ári. Annað stærsta verkefnið hefði verið bygging sumarbústaðar í Vaglaskógi. Hafði hann kostað ca. 4000 kr. Væri það áform stjórnarinnar, að félagið istefndi að því, að byggja slíka sumar- bústaði í öllum landsfjórðungum, sem væri starfræktir undir einni yfirstjórn. Væri þegar komin ósk um það frá símafólkinu á S.f. og ís., að þar yrði bygðir sumarbústaðir. Óvíst væri þó hvenær fél. gæti orðið við þeim óskum, þar sem mikið væri enn ógert við sum- arhúsið að Vatnsenda og umliverfi þess. Húsið þar þyrfti að bæta að mun, þar sem nú væri tekin sú ákvörðun, að hafa það opið til gistinga vetrarlangt, svo símafólkið gæti dvalið þar í vetrarfrí- unum. Þá gat form. um tilraun fél. til að fá bætt laun óskipaðra starfsmanna, og þá þýðingu er árang.ur þeirra samninga myndi liafa, hæði um samningsað- stöðu fél. og á endanlega ákvörðun um launakjör símafólksins yfirleitt.

x

Símablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.