Símablaðið

Árgangur
Aðalrit:

Símablaðið - 01.01.1935, Blaðsíða 28

Símablaðið - 01.01.1935, Blaðsíða 28
14 SÍMABLAÐIÐ hólmi. Var þetta stuttu fyrir dauða hans. — í lokagildi ráðstefnunnar, 17. janúar 1931, kvaddi hann til Norður- landa-ritsímaráðstefnu á Islandi árið 1933. — Boði þessu var þó af ýmsum ástæðum frestað ár frá ári þangað til nú, meðal annars vegna þess að æskilegt þótti að ljósvakasamband — loftskeyta- og tal-samband — næðist við útlönd áður en þessi ráðstefna yrði haldin. Þetta samband er nú svo á veg komið, að talsamband hefir verið reynt, og geta fulltrúar ráðstefnunnar tekið þátt i til- raunasamtölum hver til sins lands, og vonum vér að samband verði opnað til almenningsnota að nálægt mánuði liðn- um. Ákvæði. er snerta þetta samband, eru meðal annara verkefna þessarar símaráðstefnu. Þannig er þvi varið, að simaráðstefna hér á landi hefir dregist til þessa dags, og býð eg nú i nafni islensku síma- stjórnarinnar hina erlendu fulltrúa vel komna hingað til lands. Alþjóða-samvinna er vart á nokkuru sviði jafn nauðsynleg og i póstmálum og simamálum. -— Án samvinnu er rekstur slíkra stofnana óframkvæman- legur. Og þvi nálægar sem lönd liggja og því meiri tegnslum sem þau eru hundin i viðskiftum og annari menn- ingu, þvi nauðsvnlegri og óhjákvæmi- legri verður samvinnan, og af þessum ástæðum er Norðurlanda-ritsimasam- bandið stofnað og starfrækt. Verkefni þess er því mikilvægt hæði iit á við og inn á við. Sameiginleg þátttaka nor- rænna þjóða i alþjóðamótum og gagn- kvæmur stuðningur hefir reynst nor- rænum þjóðum hin mesta hjálp i hag- nýtum og menningarlegum efnum. — En sérstakt gildi hefir þó norræn sam- vinna um simamál, og ekki síst fyrir ísland. Er eg því fulltrúunum þakklátur fyrir að hafa lagt á sig þessa löngu ferð og býð þá enn á ný velkomna, ekki síst ineð tilliti til þess, að slík ráðstefna sem þessi er nú í fyrsta sinn haldin á ís- Iandi.“ ‘fjuí .SlMttúXUjOúxJCc Suna&íaisíns í VjQAtMJllAlAtaey^LUri, Frú Ásdís Jesdóttir lét af starfi sínu 1. apríl s 1. og Ellv Thomsen 1. júni, er hin síðarnefnda alflutt héðan til Reykja- víkur. í þeirra stað liafa komið þær ungfrú Gréta Ágústsdóttir og ungfrú Sigríður Ólafsdóttir, báðar úr Vestmannaeyjum. Marinó Jónsson hefir dvalið í Revkjavíkí í sumarlevfi undanfarna daga. í hjónaband gengu 29. júní Júlíana Erlendsdóttir símastúlka og Ragnar Jónsson frá Reykjavík. Alt símafólkið hér sat stærðar brúð- kaupsveislu hjá þeim. Ungu hjónin fóru í brúðkaupsferð til Patreksfjarðar. Meðan sumarleyfi símritaranna hér standa yfir vinnur Jónas Lárusson hér á stöðinni. Án.

x

Símablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.