Símablaðið - 01.01.1935, Blaðsíða 34
20
SÍMABLAÐIÐ
m ofy jpetíjcu.
Það má segja með sanni, að sífelt verða
menn kröfuharðari um þægindin. Myndin
gefur sem sagt hugmynd um nýtísku „síma-
tæki“. Er öðru megin hljóðnemi, en hins-
vegar gellir (tilsvarandi heyrnartalfæri hjá
■—
okkur). Næmleiki hljóðnemans er s'vo mik-
ill, að sá, er þarf að „síma“, getur setið
hvar sem vera skal í stofu sinni. En rödd
þess, sem talað er við, má magna eftir vild.
Símtalið gengur því likt fyrir sig og sam-
tal tveggja manna í sömu stofu.
—o—
Hinn 7. ágúst 1857 var byrjað að leggja
hinn fyrsta sæsímastreng yfir Atlantshafið,
milli Englands og Ameríku. En svo erfiðlega
gekk þetta verk, að það var ekki fyr en ári
siðar, eða 7. ágúst 1858, að Englandsdrotn-
ing og forseti Bandaríkjanna gátu skifst á
heillaóskaskeytum i tilefni sambandsins. En
samband þetta varði ekki lengi, þvi þremur
vikum síðar ónýttist það með öllu og aldrei
tókst að „fiska“ sæsímastrenginn upp aftur.
Strengurinn hafði oft slitnað meðan ver-
ið var að leggja hann út, og af pörtum þeim,
er afgangs urðu við þær aðgerðir, er mynd
sú, er hér birtist. En það er lítll bútur af
hinum fyrsta og feikn dýra sæsímastreng, er
lagður var yfir Atlantshafið. Er honum fyr-
irkomið í umgjörð, til skrauts við úrfesti.
Einn af þátttakendum í suðurheimskauts-
leiðangri Byrd’s varð nýlega fyrir þeim ó-
vænta fögnuði suður i heimskautaísnum, er
hann var kailaður til að hlusta á stutthylgju-
útvarpið, að heyra rödd barns síns, sem
hann aldrei hafði séð, þar eð það ekki var
i heiminn borið, er hann fór að heiman. —
„Það skeður margt skringilegt i Ameríku".
—o—
Um þessar mundir er mikið talað um nýja
gerð loftneta við móttöku útvarps. Eru þau
lítið ódýrari en venjuleg loftnet, en sögð eru
þau hafa þann kost — sakir fyrirkomulags
um uppsetning — að bæði auki þau næm-
leik viðtækja og það, sem meir er, dragi
verulega úr truflunum, sérstaklega á hinum
stuttu öldulengdum. Við tækifæri mun Síma-
blaðið flytja itarlega grein um fyrirkomu-
lag og uppsetning þeirra.