Símablaðið

Árgangur
Aðalrit:

Símablaðið - 01.01.1935, Blaðsíða 24

Símablaðið - 01.01.1935, Blaðsíða 24
10 SÍMABLAÐIÐ SimtvSustújbbv. Svo sem við var að búast, hefir sú hugmynd, að hyggja sumarhús fyrir símafólkið í öllum landsfjórðungum, vakið mikinn áhuga meðal þess. Ekki síst hefir hið myndarlega hús fél. í Vaglaskógi aukið á áhuga símafólksins í öðrum landsfjórðungum fvrir því, að eignast slíkan dvalarstað. Hefir stjórn fél. orðið þess mjög vör. Hafa henni borist bréf og tilmæli þess efnis, bæði frá félögum á Sevðisfirði og Isafirði. Hafði hún ætlað sér að reyna að byggja hús á báðum þessum stöðum á komandi sumri, en því miður rejmdist það ó- kleift. Hins er að vænta, að þess verði ekki mjög langt að bíða, að hægt verði að verða við óskum þessara félaga. Ætlunin er, að öll þessi hús verði í umsjá einnar nefndar, og sé eign félags- ins, enda leggi það fram allan hygging- arkostnað. Hinsvegar er ætlast til, að símafólk á hverjum stað sjái um við- hald húsanna, eftir því sem umsjónar- nefndin krefst. Simafólkið á ísafirði hefir þegar ákveðið , að húsið verði hvgt í Tungu- skógi. Og mun það vera tilvalinn stað- ur, jafnvel þó gera megi ráð fyrir, að það verði sótt af fleirum simamönnum á Vestfjörðum en Isfirðingum. Á Sevð- isfirði er slíkt aftur á móti ekki ákveð- ið. Það mál kemur nú til að snerta fleiri en Seyðfirðinga, þvi gera verður ráð fvrir þvi, að símamannahúsið á Austurl. verði sótt af öllum þeim símastjórum á Austfjörðum sem rétt hafa til að vera i fék, og verður þá að taka tillit til þess, hvar heppilegast er, með það fyrir aug- um, hvar það stendur. Vildi Símabl. gjarnan heyra álit sem flestra aust- firskra símamanna um það. En til skýringar því máli skal hér birt hréf frá umboðsmanni F. I. S. á Seyðisfirði, Em- il Jónassyni, sem manna mest mun hafa hugsað það mál. Seyðisfirði, 30. des. 1934. Til stjórnar Félags íslenskra síma- manna, Reykjavík. Árið 1928 stofnaði simafólkið á Seyð- isfirði félag með sér fyrir forgöngu Árua sál. Kristjánssonar varðstjóra sem hafði það fvrst og fremst að markmiði, að koma upp sumarbústað. Þegar Árni sál. Kristjánsson dó árið 1931, átti félag- ið tæpar 600 krónur í sjóði. En af því að ekkja hans var í miklum fjárhags- vandræðum, gaf félagið henni 250 kr. til þess að forða henni frá að þiggja op- inberan styrk. Þetta skerti sjóðinn svo mikið, að málið sofnaði þar til á síðast- liðnu sumri, að fréttir bárust af því, að símafólkið á Akureyri hefði bygt sum- arbústað sem F. 1. S. hafði kostað að mestu leyti. Samkvæmt símtali við formann F. 1. S., taldi hann líklegt, að ef símafólk á Seyðisfirði færi fram á svipaða aðstoð til þess að koma upp sumarbústað eins og þá, sem F. I. S. veitti símafólki á Akureyri, mundi verða hægt að veita hana. Þess vegna leyfi eg mér að fara fram á það við hina háttvirtu stjórn F. I. S., að hún hlutist til uin, að félagið láti byggja sumarbústað fyrir síma- fólkið hér á næsta sumri og skal eg í stuttu máli lýsa þvi, á hvern hátt eg hefi hugsað mér að þessu yrði best fyrir komið: I. Að F. I. S. láti byggja húsið á sinn kostnað og leggi til þess alt að kr. 3000.00, en félagið á Seyðisfirði leggi til aUa lausa muni, hafi eftir-

x

Símablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.