Símablaðið

Ukioqatigiit
Saqqummersitaq pingaarneq:

Símablaðið - 01.01.1935, Qupperneq 18

Símablaðið - 01.01.1935, Qupperneq 18
4 S í M A B L A Ð 1 Ð %mm§Mn JR«IE€IILIJRimR,. c4pnœ.íU^jö^. Það má teljast merkur viðburður, að á 20 ára afmælisdegi félagsins voru staðfestar starfsmaunareglur Landssímans. Eru það víðtækustu starfsmanna- reglur, sem settar hafa verið iiér á landi, og að því leyti merkilegt spor til örvggis og hagsbóta starfsmönnum hins opinbera, því telja má víst, að eftir þeim verði sniðnar starfsmanna- reglur fyrir fleiri stofnanir og starfs- menn. Hvað er þá að segja um þessar regl- ur? Um þær hefir verið mikið rætt innan félagsins og oft orðið heitar umræður um þær. En það má fullyrða, að það eru smámunir einir, sem um hefir verið þráttað, samanborið við j)að öryggi, sem reglurnar veita starfsmönnunum, og bót á kjörum þeirra. Úr agnúunum verður bætt ineð tíð og tíma, en hlunnindin eru svo mik- il, einkum ef litið er á sumar- og vetrarfríin, svo og veikindafrí, — að enga aðra stétt opinberra starfsmanna, aðra en símamannastéttina, liefði get- að dreymt um, að fá j)ví til leiðar komið. Og liverju er j)að svo að þakka? Engu öðru en þeirri pólitík, sem fé- lagið hefir ætíð fylgt, að sýna jafnan fram á, hvar saman fara hagsmunir stéttarinnar og stofnunarinnar. En á því hefir bygst sú samúð, er síma- mannastéttin hefir jafnan átt að fagna. Fyrir það hefir nú verið fest í reglu- gerð mörg þau hagsmunamál, er fél. I)efir beitt sér fyrir — og með betri árangri en flestir félagar hafa getað búist við. Því var j)að vel til fundið af landssímastjóra og atvinnumála- ráðlierra, að gefa út reglurnar á 20 ára afmælisdegi félagsins. V.cft&higðí. En því miður urðu félagar fyrir miklum vonbrigðum. Að reglunum hafði félagið og stjórn landssímans unnið, og kappkostað að gera j)ær þannig, að báðir partar væri ánægðir — að þar væri gætt hagsmuna beggja. Því kom það á óvart, þegar þær höfðu verið staðfestar, að á þeirn höfðu verið gerðar breytingar, sem miklu máli skifta fyrir félagið, og án þess að fél. hefði tækifæri til að koma í veg' fyrir j)að. Er hér um að ræða 24. gr., sem frá sjónarmiði fél. var þungamiðjan í reglunum, og fjallar um samningsrétt þess. Því ákvæði hafði verið þannig fyrir komið, að fé- Jagið var viðurkendur samningsaðili um öll mál, er varða hagsmuni stétt- arinnar og einstakra starfsmanna. — Orðið hagsmunir átti að útiloka l)að, að nokkuð væri hæg't að skilja und- an samningsrétti fél., annað en það, sem bundið er með lögum, svo sem laun flestra starfsmanna. En nú hafði þessu verið breytt þann- ig, að i stað orðsins hagsmunir var komið störf stéttarinnar o. s. frv. Á j)essu er nú sá munur, að fyrra orðið er ótvírætt, en hið síðara er teygjanlegt eins og eltiskinn. En þar með er ekki alt búið.

x

Símablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.