Símablaðið

Årgang
Hovedpublikation:

Símablaðið - 01.01.1935, Side 26

Símablaðið - 01.01.1935, Side 26
12 S 1 M A B L A Ð I Ð mætti nota það fyrir skíðakofa á vetrum. 2. f Miðliúsaskógi við Eyvindarárgil, sem er talinn einn af fegurstu stöð- um á Héraði. Þangað er ca. klukku- stundar akstur í bíl þegar Fjarðar- heiði er bílfær. Sá staður er auðvit- að ákjósanlegri fyrir þá, sem ætla að dvelja lengri tíma í húsinu. En eftirlit er erfiðara og vetrarnotkun útilokuð. Að endingu vil eg biðja stjórnina að láta mig vita sem fyrst, hvort hún get- ur orðið við erindi þessu, og telji hún annan grundvöll heppiiegri en þann, sem eg hefi nefnt, væri mjög æskilegt að fá tillögur hennar bráðlega svo liægt væri að koma liúsinu upp áður en sum- arleyfi bvrja næsta sumar, ef það er fært fjárhagsins vegna. Virðingarfylst f. h. Sf.-deildar F. í. S. Emil Jónasson. Framkvæmdirnar á þessu sumri eru aðallega í því fólgnar, að gera húsið að Vatnsenda hæft tii vetrarnotkunar, og gera jarðabætur á landinu umhverfis það. Verða melarnir þaktir, — en ann- að land plægt og herfað, og sáð í það höfrum. En næsta vor mun verða sáð grasfræi og búnir til leikvellir. Þetta kostar mikið fé. Mun að minsta kosti verða varið til þess á annað þúsund krónum. En það er nauðsynlegt verk. Túktöbvnx í sídjpLiA. Það er ekki vant að fara í hámælum sem gjört er af landssímastjórninni, til aukningar kerfinvi. En þær fram- kvæmdir eru bæði örar og margþættar nú seinni árin. Og ánægjulegt er hve markviss símastjórnin er um það, að sainan fari aukin hagsæld og öryggi þeirra er af njóta. Eitt dæmi aí' mörgum er sú fram- kvæmd, að byrjað er að útbúa fiski- skipa- og háta-talstöðvar íil öruggs sambands innbyrðis og við land. Talstöðvar þessar eru búnar til á vinnustofu iandssímans og síðan leigðar skipum fjrir mjög vægt árlegt gjald. Hefir landssíminn þegar skipulagt þessa nýbreytni svo vel, að landsstöðvum hefir verið komið upp víða um landið, þannig að skipin hafa örugt samband við land frá hinum ýmsu fiskimiðum. Þessi framkvæmd er svo merkileg svo vel sem hún gefst, að það verður ekki skýrt í stuttu máli. En það hef eg fyrir satt, að ísl. sjómannastéttin telur þessa framkvæmd marka hin merkustu tíma- mót. — Og er það mjög að vonum. Þá er ekki ómerk sú hlið þessa máls er veit að fjölskyldum sjómannanna í landi. I stað kvíða og ótta er veðrin geysa, fær fjölskyldan nú daglegar fréttir af fiskimiðunum og getur stöð- ugt vitað um líðan vina og vanda- manna á sjónum. Verður nú í sumar stígið eitt stórt °g þýðingarmikið spor í þessa átt, með því að byggja talstöð á Seyðisfirði. Sjófarandi.

x

Símablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.