Símablaðið

Årgang
Hovedpublikation:

Símablaðið - 01.11.1936, Side 27

Símablaðið - 01.11.1936, Side 27
s í M A B L A Ð 1 Ð 43 að sækja yfirsetukonu — vestur yfir knjóská, sem þá var óbrúuð, upp alla Vaðlaheiði, vegleysu með símalinunni, og nú fór eg að fá ríg' í hálsinn og verk í augun, því alltaf varð eg að glápa upp i þræðina. En ekki fann eg slitið. Það hallaði inn af heiðinni «g eg hélt áfram í dauðans ofhoði. Loksins kom slekja á þræðina þarna lafði hann niður. Þá var eg kominn niður að Eyrarlandi. Nú rauk eg af 3aki með vírinn. Hvernig var þetta? Eg fann ekki nema annan enda hins slitna þráðar niðri á jörð; hinn var reyndar fastur uppi i kúlu, marga metra frá jörð. Og jeg hafði enga stauraskó, — hefði sennilega heldur ekki þorað upp i staurinn, þó eg hefði liaft þá. En illt var að deyja ráða- laus, eða hverfa frá og geta ekki liaft heiðurinn af því, að bæta fyrsta síma- slitið á þessum slóðum. Til allrar ham- ]ngju hafði eg gripið með mér reipi. Eg fór nú að reyna að kasta reipis- enda upp yfir símaþráðinn. Það hepn- aðist á endanum, og svo kipti eg i af öllum kröftum, og gat loksins náð endanum niður úr kúlunni. Og þá var eg handfljótur, vafði saman þræðina, svo hátt frá jörð, sem eg gat. Betur gat eg ekki geng'ið frá þessu. Svo fór eg á hak klárnum og reið enn hraðara heim, spentur yfir að vita, livernig mér hefði tekist að lækna símann: „Hallo, Akureyri“, hrópaði eg svo, móður og másandi, þegar lieim kom, og indæl mevjarrödd svaraði mér: „Það er alt í fínasta lagi á milli okkar.“ — Mér fanst eins og eg hefði bjargað manni frá líftjóni. -— Hálsi, 29. sept. 1936. Ásmundur Gíslason. Nú, eftir 30 ára starf, vakna hjá mér ýmsar endurminningar frá fyrstu árum símans, og einkum þó frá und- irbúningi símalagningarinnar. Hversu mikið gekk á út af þessu máli á Al- þingi, í blöðum og' manna á milli, um það má lesa i Alþingistíðindum og hlöðum frá þeim tíma, svo og í 20 ára minningarriti Landssímans, 1926. Eg' tókst á hendur að sjá um allan flutn- ing á öllum staurum í línuna frá Laxá að Jökulsá á Fjöllum. Sú leið er um 55 km. Veturinn 1905—6 var mjög harður og veðrátta óhagstæð, og þó einkum vorið. Mátti segja, að jafnan væri ó- færð, svo stauraflutningur var ill- mögulegur, snjóinn þurfti oftast að troða fyrir sleðann, en slóðin fyltist Kolaverzlun Sigurðar Olafssonar Reykjavík. — Sími 1933. — Símnefni: Kol. Hefir ætíð nægar birgðir af: Góðum og ódýrum kolum, bæði til skipa og húsnotkunar. Ennfremur koks. — Kol og koks sent hvert á land sem er, gegn eftirkröfu. Sanngjarnt verð. — Fljót afgreiðsla.

x

Símablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.