Símablaðið - 01.11.1936, Síða 30
46
S í M A B B L A fí I Ð
um. Þá rauk hann upp og sagði: „Er þá
skeytið ekki farið enn? Á það að hiða
eftir pósti?“ Öldruð kona vildi fá aðsjá
„símavír", en þegar henni var sýndur
símaþráðarspotti, reiddist hún og sagði
að það skyldi enginn gabba sig, „þetta
er bara eirvir, ekki neitt holur innan.“
„Gamall maður spurði mig, hvort þetta
„símari“ væri mjög hættulegt. Eg bauð
að sýna honum stöðina. Hann kvaðst
hafa getað haldið sig frá allri djöfla-
dýrkun liingað til, og liann fór svo í
gröfina að hann kom ekki inn á síma-
stöð. L. Popp, sem var þá, 1906—8,
kaupmaður hér, kom eitt sinn landveg
frá Reykjavík. Hann kom við á síma-
stöð á leiðinni til að senda skeyti. Kona
afgreiddi og tók afburðavel á móti gest-
unum og hauð kaffi, að góðum, göml-
um sið, en segir um leið við Popp. „Þér
getið lilustað í símann yður til gamans
á meðan eg fer fram.“
Einu sinni var maður að gera við
símann í bleytuveðri. Hann reið á göml-
um stiltum hesti. Kom hann þá að lág-
um símastaur og var þar slitið úr kúlu.
Hann gerir sér þá hægt fyrir, ríður að
staurnum, stendur uppi í hnakknum á
hestinum og fer að binda í kúluna; er
þá hringt á línunni. Leiddi strauminn til
jarðar gegnum mann og hest; liestur-
inn tók snögl viðbragð og fór langt á
burtu, en maðurinn liékk eftir á þráð-
unum og féll svo til jarðar og sór þess
Steindórsprent
prentar fyrir yður
. —
: - •- ' •
A i! 4 . C*
dýran eið, að nota aldrei hest i staðinn
fyrir stauraskó.
Eg læt þetta nægja sem sýnisliorn.
Annars er óhætt að fullyrða, að fólk
yfirleitt vandist símanum fljótt og
kunni að meta kosti hans.
Eg held, að hin ungasimamannastétt
megi vera ánægð með þroska sinn á
þessum 30 árum, því hún á nú marga
ágæta menn og konur, sem eru stéttinni
bæði til sóma og Landssímanum full
trygging fvrir að hér er bæði góður og
göfugur efniviður i starfskrafta. Ef
samúð og sanngirni haldast i hendur,
mun Landssíminn ávalt verða lands-
lýðnum til blessunar, og enginn óskar
þess lieitar að svo verði en við síma-
fólkið.
Sauðárkróki 29. sept. 1936.
Pétur Sighvats.
Huröaefni
(Oregon-pine) hesta tegund,
eik, teak, krossviður, Casco-lím,
jafnan fyrirliggjandi.
Sel
fyrsta flokks byggingarvörur:
Sement, timbur, pajjpa, þak-
skífur, „Linoleum“, gólfdúka-
lím, járnvörur o. fl„ sem til
byggingar þarf.
'JólA oCofitSJOR
Austurstræti 14. Sími 1291.