Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.02.1953, Qupperneq 25

Freyr - 01.02.1953, Qupperneq 25
FREYR 57 Holtalireppur 23 38 60,5 Asahreppur 20 31 64,5 Djúpárhreppur 38 47 80,9 Villingaholtshreppur 42 39 107,7 Gnúpverjahreppur 29 36 80,5 Grímsnesið 45 45 100,0 Tölurnar tala hér, en í rauninni segj a þær lesendum ekkert annað en að kaupendahóp- urinn er mjög misjafn frá sveit til sveitar. Um ástæðuna til þessa er ekki á færi Freys að segja neitt til eða frá. Hvort þeir, sem kunnugir eru á hinum ýmsu svæðum, geta nokkuð af þessu lesið, vitum vér eigi. Eftir- tektarvert er, að í nokkrum sveitum eru fleiri kaupendur en byggðar jarðir. Er þar að sjálfsögðu tvíbýli á sumum. Annars stað- ar eru kaupendur miklu fleiri en byggðar jarðir, en þeir hreppar eru ekki hér taldir, því að þar eru þá grasbýli í þorpum og kaup- endur í þeim; er þó Kaldrananeshreppur dæmi af þessu tagi. Mismunur milli nær- iiggjandi hreppa er sumstaðar mjög greini- iegur, svo sem tölurnar sýna (sjá Hörðu- dalshrepp og Miðdalahrepp í Dalasýslu eða Hvolhrepp og Djúpárhrepp í Rangárvalla- sýslu). Eins og tölurnar sýna eru til hreppar þar sem kaupendafjöldi er eins mikill og fjöldi byggðra jarða, — talan er 100%. Hinsvegar sýnir töluröðin einn kaupanda í einum hreppi þar sem byggðar jarðir eru 6 og einn hreppur á landinu, að minnsta kosti, hefir engan kaupanda, en sá er ekki með í þessari talnaröð. Það er eðlilegt að þessi athugun á hrepp- unum verði smækkuð mynd af sýslunum, en við samanburð hreppanna kemur ýmis- legt í ljós, sem gefur ástæðu til að spyrja. Þær spurningar skulu ekki bornar fram hér og engar ályktanir heldur. Ein af nefndum Búnaðarþings hefir óskað þess, að yfirlit í þá átt, sem hér er birt, yrði gert og prentað í Frey. Hér kemur það fyrir augu lesenda. Býrækt í flestum eða öllum menriingarlöndum eru býflugur ræktaðar eins og annað búfé. Eru býflugurnar veigamikill liður í búskap bænda, einkum þar sem frærækt er þáttur í búskapnum. Það er ekki venjan að jafn- aði, að það séu bændurnir sjálfir, er stunda býræktina, heldur hinir og þessir, oft em- bættismenn, kvenfólk eða aðrir, er hafa tíma aflögu til þess að sinna þeim hlutverk- um, sem við býrækt eru tengd. Er ekki ó- venjulegt, að fræræktarbændur fá leigð býbú með býhjörðum til þess að blóm fræjurtanna frjóvgist vel og efli uppskeru fræsins. Býflugur eru t. d. beztu skordýrin til þess að auka frjóvgun ýmissa belgjurta og er sérhæfnin svo mikil, að hverri belg- jurtategund hæfir sérstök tegund býflugna, og þá sérstaklega flugur með ákveðna rana- lengd. Samvinna í náttúrunnar ríki er hér nauðsynleg og þessi nauðsyn er undirstaða efnahagslegrar afkomu fræræktandans og um leið býræktandans, er auðvitað fær hunangið, sem býflugurnar safna. Báðir auðgast, og býflugur eru búfé í beggja þjónustu. Býrækt er all umfangsmikil grein og viö hana tengd mikil fræði og vísindi. Þess má geta, að nýlega hefir verið stofnuð heil vís- indastöð fyrir býkvilla og gildir hún fyrir alla Evrópu. Er stöð sú í Danmörku, en for- stjóri hennar — eða tilraunastjóri — hefir um margra ára skeið rannsakað kvilla í bý- flugum og þá einkum í sambandi við eitr- anir, sem hljótast af ýmsum hinum nýju jurtalyfjum. * * * Hér á landi þekkjum við hunangsflugu. Hún er ekki hin eiginlega býfluga, sem al- gengast er að ræktuð sé til þess að safna hunangi og frjóvga fræplöntur. En sú teg- und býflugu er þó þekkt hér. Eiginleg bý- flugnarækt hefir ekki verið stunduð hér á landi, það vitað er. Þó skal þess getið, að fyrir allmörgum árum fékk Jónas Þór, fyrr- verandi forstjóri Gefjunar á Akureyri, bý-

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.