Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.2002, Blaðsíða 5

Ægir - 01.02.2002, Blaðsíða 5
Landkrabbinn segir frá reynslu sinni Magnús Már Þorvaldsson, landkrabbi af guðs náð, fór í túr á frystitogaranum Akureyrinni EA í byrjun þessa árs. Til sjós hafði Magnús Már aldrei farið og því var þetta ný upplifun fyrir kappann. Magnús Már segir sögu þessarar fyrstu sjóferðar sinnar á stórskemmtilegan hátt í þessu tölublaði Ægis og eiga örugglega margir eftir að hafa gaman af því að lesa frásögn hans. Sjávarleður í tískuheiminum Á Sauðárkróki er starfandi merkilegt fyrirtæki sem heitir Sjávarleður. Fyrirtækið er í sér- hæfðri framleiðslu er lýtur að sútun á fiskiroði - fyrst og fremst laxa- og nílarkarfaroði. Að undanförnu hafa framleiðsluvörur Sjávarleðurs vakið mikla athygli í tískuheiminum. Skaginn á góðu skriði „Við höfum ekki ástæðu til þess að hafa nokkra minnimáttarkennd,“ segir Sigurður Guðni Sigurðsson, framkvæmdastjóri Skagans hf. Og það eru orð að sönnu því þar á bæ hefur ver- ið mikil uppsveifla og vaxandi spurn eftir framleiðsluvörum fyrirtækisins. Ægir ræðir ítar- lega við Sigurð Guðna, framkvæmdastjóra, um starfsemi Skagans. Þarf aukinn kraft í rannsóknir á kúfskel Um eitt ár er liðið frá því að kúfiskveiðiskipið Fossá ÞH kom til Þórshafnar. Á þessum tíma hafa skipverjar aflað sér tölu- verðrar reynslu í kúfiskveiðum. Ægir ræðir við Þorstein Óla Þorbergsson, skipstjóra, sem telur nauðsynlegt að setja veru- lega aukinn kraft í rannsóknir á kúfskel á landgrunninu við Ísland. Sjaldséðir fiskar 2001 Tveir starfsmenn Hafrannsóknastofnunarinnar, Gunnar Jónsson og Jónbjörn Pálsson, skrifa athyglisverða grein um sjaldséða fiska á Íslandsmiðum á árinu 2001. Nöfn margra þessara tegunda koma nokkuð spánskt fyrir sjónir! Guðni Ólafsson VE 606 Línuveiðiskipið Guðni Ólafsson VE 606 bættist í flota Vestmannaeyinga á dögunum, en það var smíðað í Kína. Ægir gerir ítarlega grein fyrir þessu nýjasta skipi landsmanna. 5 Í B L A Ð I N U Útgefandi: Athygli ehf. ISSN 0001-9038 Ritstjórn: Athygli ehf. Hafnarstræti 82, Akureyri Sími 461-5151 Bréfasími 461-5159 Ritstjóri: Jóhann Ólafur Halldórsson (ábm.) Auglýsingar: Athygli ehf. Suðurlandsbraut 14, Reykjavík, Sími 515-5200, Bréfasími 515-5201 Auglýsingastjóri: Inga Ágústsdóttir Sími 515-5206 GSM 898-8022 Hönnun & umbrot: Athygli ehf. Suðurlandsbraut 14, Reykjavík, Sími 515-5200, Bréfasími 515-5201 Prentun: Steindórsprent-Gutenberg ehf. Áskrift: Ársáskrift Ægis árið 2002 kostar 6600 kr. Áskriftarsímar 515-5200 & 515-5207 Forsíðumynd blaðsins var tekin um borð í Akureyr- inni EA, frystitogara Samherja hf., í fyrsta túr skipsins á þessu ári. ÆGIR kemur út 11 sinnum á ári. Eftirprentun og ívitnun er heimil, sé heimildar getið. 26 22 33 40 45 20

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.