Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.2002, Blaðsíða 6

Ægir - 01.02.2002, Blaðsíða 6
6 P I S T I L L M Á N A Ð A R I N S Samkvæmt EES samningnum tökum við yfir meira en 80% allrar þeirra löggjafar sem leggur grunn að sam- skiptum, og viðskiptum, í Evrópu- sambandinu. Upphaflega var samn- ingurinn aðallega kynntur sem við- skiptasamningur en hefur í raun orðið stærsti félagsmálasamningur sem Ís- land er aðili að, sömuleiðis á sviði mennta og vísinda og á sviði umhverf- ismála. Hinsvegar hefur hvorki vinnu- afl af EES svæðinu flætt yfir né hafa auðmenn keypt hjartfólgnustu svæði landsins. Þannig hefur niðurstaðan að ýmsu leyti orðið önnur en umræðan gaf til kynna. Mikilvægt er að draga af því þann lærdóm að fara þurfi í um- fjöllun sem þessa með opnum hug fremur en fyrirfram gefinni niður- stöðu, með eða á móti. Frá hlutaaðild til fullrar aðildar Það er almennt viðurkennt að ef aðild Íslands að ESB kæmi til þjóðarat- kvæðagreiðslu gætu sjávarútvegsmál- in ráðið úrslitum um afstöðu Íslend- inga. Þess vegna skipta samnings- markmið og niðurstaða um þau efni afar miklu kjósi Ísland að breyta stöðu sinni gagnvart ESB frá núverandi hlutaaðild til fullrar aðildar. Hvað er þá um sjávarútveginn að segja í þessu samhengi? ESB-ríkin fara sjálf með stjórn fiskveiða heima fyrir og getur sú stjórn verið mismunandi eftir ríkjum. Heildarafli hvers ríkis er hinsvegar ákvarðaður í ráðherraráði skipuðu sjávarútvegsráðherrum sam- bandsins. Þennan hátt hafa ríkin þurft að hafa á vegna þess að um sameigin- leg hafsvæði og hagsmuni er að ræða. Ákveðin viðukenning hefur þó fengist fyrir hafsvæðin í kringum Orkneyjar og Hjaltland og Norðmenn höfðu fengið viðurkenningu á að hafsvæðið fyrir norðan 62. breiddargráðu yrði tímabundið undir fullu forræði þeirra. Hvað var í pakka Noregs 1999 Það er ágætt að byrja á því að fara yfir hvað var í pakka Noregs, en þeir sömdu 1992 og felldu aðild 1994. Það gæti verið e.k. byrjunarreitur okkar. Norðmenn fengu viðurkenningu á mikilvægi sjávarútvegs síns. Þeir þurftu ekki að greiða fyrir innganginn með veiðiheimildum. Viðurkennt var að viðmiðunarár varðandi veiðireynslu innan lögsögu þeirra væru árin 1989 til 1993. Reglan um hlutfallslegan stöðugleika tryggði þeim sama veiði- rétt áfram. Þeir gátu fengið fram- kvæmdastjóra sjávarútvegsmála sam- bandsins. Einnig þriggja ára frest gagnvart erlendum fjárfestingum. Eft- ir aðildarviðræðurnar töldu Norð- menn líka að þeir gætu haldið áfram hvalveiðum með vísan til undanþágu- ákvæða tilskipunar ESB um náttúru- vernd. Síðan Norðmenn sömdu hefur svokölluð nálægðarregla orðið til hjá bandalaginu. Hún felur það í sér að færa á allar ákvarðanir til lægsta mögulega stjórnstigs og sem næst þeim sem við eiga að búa. Og ef ein- hverjir hagsmunir eru bundnir ein- stöku ríki en varða hin ekki þá sé eðli- legt að ákvörðunin sé tekin í viðkom- andi ríki. En hvað viljum við? Við viljum tryggja veiðirétt og veiði- möguleika Íslands til frambúðar og ábyrga stjórn fiskveiða innan íslensku lögsögunnar. Eðlilegt er að krefjast þess að hafið í kringum Ísland verði skoðað sem sérstakt hafsvæði, enda yrði Ísland eina ESB ríkið á þessu svæði og eina ríkið sem hefur hags- muni af því hvernig veiðum þar er stjórnað. Það, ásamt beitingu nálægð- arreglunnar, ætti einnig að geta fært okkur einum ákvörðunarvald um heildarafla á svæðinu. Reglan um hlutfallslegan stöðugleika tryggir að engir aðrir en Íslendingar fengju veiðirétt í lögsögunni. Ólíklegt er að varanleg undanþága fengist frá fjárfestingum erlendra aðila í sjávarútvegi þó líklegt megi telja að einhverra ára frestur fengist. En rétt er að hafa það í huga að samkvæmt regl- um Evrópusambandsins verður útgerð að hafa raunveruleg efnahagsleg tengsl við það land sem gert er út frá. Einnig væri hægt að setja á löndunarskyldu þannig að öllum afla skipa sem veiða í ísl. lögsögu yrði landað á Íslandi. Það gerum við ekki núna en þessi mögu- leiki er til staðar. Staða Íslands væri afar sterk ef það gengi í sambandið. Þekking okkar og geta í sjávarútvegi er viðurkennd. Það er því eðlilegt samningsmarkmið að Ísland fái framkvæmdastjóra sjávarút- vegsmála. Með aðild að ESB er fullur aðgang- ur að okkar mikilvægustu mörkuðum fyrir sjávarafurðir tryggður. Málið er þó ekki svo einfalt að hagsmunir verði vigtaðir krónu á móti krónu. Hér hef- ur einungis verið rætt um það sem snýr beint að stjórn sjávarútvegsmála enda ekki svigrúm til að fjalla um annað sem skiptir máli eins og stærra myntsvæði og gjaldmiðill og þar með lægri vextir og meiri stöðugleiki. Það er efni í aðra grein. Evrópuumræða á dagskrá Pistil mánaðarins skrifar Svanfríður Inga Jónasdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar á Norðurlandi eystra

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.