Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.2002, Blaðsíða 39

Ægir - 01.02.2002, Blaðsíða 39
39 T Æ K N I Scanmar hefur náð mikilvægum áfanga í þróun næstu kynslóðar í móttöku og skjábúnaði fyrir Scanmar-nema með tilkomu SGM 15. Þessi nýja brúareining gefur skipstjóranum aðgang að miklum upplýsingum frá Scan- mar-nemunum, hvort sem togað er með einu, tveimur eða þremur trollum. Nýi búnaðurinn SGM 15 leysir af hólmi „gamla“ CGM skjábún- aðinn. CGM módelið hefur þjón- að markaðnum síðastliðin áratug, en yfir 700 einingar hafa verið seldar í fiskiskip viðsvegar um heiminn. Áður en formleg sala hefst á SGM 15, þá hafa verið seldar meira en 30 brúareiningar. Athyglin er á veiðina Í þessu fyrsta skrefi á nýjum bún- aði hefur Scanmar einbeitt sér að veiðinni. SGM 15 er þróað til að auðveldara sé fyrir notandann að einbeita sér að hegðun trollsins. Einnig hjálpar það skipstjóranum að taka réttar ákvarðanir við veið- arnar. Þess vegna hefur Scanmar lagt áherslu á trausta og góða skjáframsetningu. Áhersla er lögð á góða skjá- framsetningu. Grafískar hermi- myndir sýna trollið frá tveimur sjónarhornum, annars vegar ofan- frá og hins vegar framávið (eins og staðið sé inni í trollinu og horft fram). Myndin sem sýnir trollið ofanfrá er hugsuð til að skoða á meðan togað er. Myndin sem sýnir framávið er hins vegar hugsuð til að skoða þegar trollinu er kastað. Í báðum framsetning- unum er mögulegt að tengja inn upplýsingar frá öðrum tækjum í brúnni, (t.d. spilstjórnun), en það gerir upplýsingarnar enn betri. Fjarstýring SGM 15 er með fjarstýringu sem hefur sömu stjórnhnappa og eru á tækinu sjálfu. Með fjarstýringunni getur skip- stjórinn skipt á milli mismun- andi mynda með aðeins einni snertingu. Önnur ný og þarfleg framsetning er að nú koma fram margar myndir á skjáinn á sama tíma. Í fyrstu útgáfu SGM 15 er mögulegt að velja á milli dýptar- mælis og trollaugamynda til við- bótar grafísku trollmyndunum. Áskorunin er ávallt að hafa vana áhöfn Útgerðir og skipstjórar á fiski- skipum leggja mikið upp úr hæf- um og reyndum áhöfnum, enda er það lykilatriði til þess að rekst- urinn gangi vel og áfallalaust. Að mati Scanmar verður mun auðveldara að skipuleggja þekk- ingu áhafna með nýja SGM 15 búnaðinum. Auðveldara verði að draga réttari ályktanir svo að nauðsynlegar breytingar á troll- inu hámarki getu þess til veiða. Veiðar með fleiri en einu trolli samtímis krefjast meiri upplýs- inga og meiri upplýsingar krefj- ast meira af notandanum. Þróaðri trollaugamynd Aukið svið, betri upplausn og mun betri greiningarhæfni eru lykilorð trollaugans í SGM 15. Annar mikilvægur þáttur er aukið mót- tökusvið trollaugans. Tilraunir á norsku togurunum „Skar- egg“ og „J.Bergvoll“ sl. sumar sýndu fram á að þegar snúið var á toginu eða þegar trollið var lagt til hliðar í annaðhvort borðið, þá var mynd- in mun lengur inni en áður. Myndin er skýrari og heldur áfram að vinna, jafn- vel í kröppum snún- ingi eða miklum sjó. Sjálvirkt val á botns- tykki Sjálfvirkt val á botnstykki skilar sér einnig í endurbótum. Á skip- um sem hafa fleiri en eitt botn- stykki velur kerfið sjálfkrafa það botnstykki sem gefur bestu merkin. Það þýðir að móttakarinn er stöðugt að hlusta eftir því hvort botnstykkið er að móttaka bestu merkin frá nemunum. Fleiri nemar SRU 06 móttakarinn hefur 25 sinnum meiri getu til meðhöndl- un gagna en SRU 05. Aukin gagnageta er nauðsynleg til að meðhöndla það magn af upplýs- ingum sem eru fyrir hendi í dag og sem mun aukast enn frekar í náinni framtíð. Til viðbótar við trollaugað er mögulegt að hafa upp í 16 nema tengda við nýja kerfið í samanburði við 6 nema í gamla. Unnt er að horfa á 12 nema samtímis á skjánum. Þá er hægt að sýna bæði gafískt eða í nemaboxum. Í kerfinu er einnig gert ráð fyrir framtíðinni með því að gera ráð fyrir nettengingu skjáa, annað hvort með tengingu við skjáþræl eða aðra SGM 15 stjórneiningu í brúnni. Scanmar á Íslandi ehf.: Ný byltingarkennd brúareining

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.