Ægir - 01.02.2002, Blaðsíða 15
15
T Æ K N I
okkur hefur þegar skilað ýtir
undir þá ætlun okkar að verða
bestir á þessu sviði.“
Svokallaður flöguís hefur verið
á markaðnum í áratugi, en sú
lausn sem Ískerfi byggja á er
framleiðsla á ísþykkni úr sjó, sem
Jónas segir að kæli til muna betur
en gamli, hefðbundni ísinn.
„Vegna þessarar hröðu kælingar
erum við að selja okkar búnað.
Kælingin er mun hraðari en með
hefðbundnum ís og það er al-
mennt orðið viðurkennt.“
Ísstrokkar
Ískerfi framleiða mismunandi
stærðir af ísþykknivélum. „Við
höfum afnotarétt af einkaleyfi fyr-
ir svokölluðum ísstrokki, sem er
bandarísk uppfinning. Við fram-
leiðum vélar með einum slíkum
ísstrokki, tveimur, fjórum eða sex
strokkum. Minnsta vélin er um
1,30 metrar að lengd, 1 metri á
hæð og 60 cm á breidd. Það
hversu stórar vélar menn taka fer
allt eftir því hvað viðkomandi
fiskiskip eru að veiða, hversu
langir túrarnir eru langir og
hversu mikið magn menn eru að
veiða. Við ráðleggjum okkar
kaupendum hversu stórar vélar
henta best aðstæðum í hverri
vinnslu eða skipi. Við ráðum
mönnum frá því að kaupa of stóra
vél, í sumum tilfellum hentar vel
að framleiða ísþykknið í tank. Og
síðan má ekki gleyma því að
styrkur rafmagnsins um borð í
hverju skipi er ráðandi þáttur um
hversu stóra vél skal velja.“
Stöðug og jöfn
aukning í sölu
Ískerfi hafa náð sterkri stöðu á
innanlandsmarkaði, en einnig sel-
ur fyrirtækið ísþykknivélar sínar
til annarra landa. Jónas nefnir að
til Írlands hafi ein slík vél verið
seld til kælingar á makríl.
Jónas telur að ýmsar skýringar
séu á söluaukningu að undan-
förnu í ísþykknivélunum. Í fyrsta
lagi hafi elstu vélarnar frá fyrir-
tækinu, sem eru um borð í
nokkrum hérlendum skipum,
gefið mjög góða raun og þær end-
ist vel. Og í öðru lagi leggi Ís-
kerfi mikið upp úr þjónustu við
viðskiptavinina og aukinheldur
leggi fyrirtækið sig fram um að
lausnirnar henti hverjum og ein-
um kaupanda.
93 Liquid Ice vélar í notkun
Hjá Ískerfum starfa 12 manns við
framleiðslu ísþykknivélanna.
„Auk sjálfra ísvélanna framleið-
um við kælitanka og svokallaða
forkæla, sem kæla sjóinn niður
áður en hann fer inn í vélarnar,“
sagði Jónas.
Samkvæmt samantekt Ískerfa
eru nú 93 Liquid Ice ísþykknivél-
ar í notkun, þar af eru rúmlega
50 vélar um borð í fiskiskipum
og hinar eru í fiskvinnslum í
landi. „Í sumum skipum eru
nokkrar vélar. Til dæmis eru
þrjár ísþykknivélar í Hörpu VE,
loðnuskipi Ísfélags Vestmanna-
eyja. Þar um borð voru kæld nið-
ur undir tvær gráður um 750
tonn af loðnu fyrir skömmu og
japanskir kaupendur höfðu orð á
því að þessi loðna væri besta hrá-
efni sem hægt væri að fá.“
Þjónustuaðilar erlendis
Jónas segir það liggja fyrir að er-
lendis verði farið í enn frekari
markaðssókn á næstu misserum.
„Á síðasta ári komum við á
tengslum við fjölmarga þjónustu-
aðila erlendis. Á Írlandi eru
þannig tveir sölu- og þjónustuað-
ilar á okkar snærum, tveir í
Skotlandi og Færeyjum, einn á
Ítalíu, Grænlandi, í Danmörku
og Hollandi. Þessir menn sjá um
að setja kerfin upp og þjónusta
þau,“ segir Jónas. Á alþjóðlegum
markaði er að sögn Jónasar tölu-
verð samkeppni. „Ég get nefnt að
varðandi stærstu vélarnar okkar
erum við að keppa við vélbúnað
frá York Marine, en ég tel að í
minnstu ísþykknivélunum höfum
við mikla sérstöðu.“
Þróunin heldur áfram
Þróun á vélbúnaði fyrir sjávarút-
veginn heldur stöðugt áfram og
það gildir líka um ísþykknivél-
arnar frá Ískerfum. „Nei, við
erum svo langt í frá hættir að
þróa þessar vélar. Ég tel líklegt að
þær muni stækka til þess að svara
kröfum stærri viðskiptavina. Við
erum að þróa ákveðna útfærslu á
vélunum sem gerir alla þjónustu
og eftirlit með þeim mun skil-
virkara. Og við munum einnig
þróa minnstu vélina frekar, t.d. í
þá átt að hún muni geta framleitt
ísþykkni úr heitari sjó. Hvað við-
víkur stærstu vélunum munum
við leggja höfuðáherslu á rekstr-
aröryggi. Almennt má segja að
við verðum að bregðast við því að
notendurnir verða alltaf stærri og
stærri. Þá vísa ég til dæmis til
stóru fjölveiðiskipanna og stórra
laxeldisfyrirtækja,“ segir Jónas.
Hér gefur að líta ísstrokk, sem er bandarísk uppfinning, en Ískerfi hafa rétt til að
nota í sínar Liquid Ice vélarnar. Myndir: Sverrir Jónsson.
Fjögurra strokka ísþykknivél frá Ískerf-
um.
Hér er Unnþór Stef-
ánsson að vinna að
því að setja saman
ísþykknivél með
einum ísstrokki.