Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.2002, Blaðsíða 26

Ægir - 01.02.2002, Blaðsíða 26
26 S J Ó M A N N S L Í F Hinn 11. janúar 2002 verður þó að teljast tímamóta- dagur í lífi greinarhöfundar umfram „venjulegan“ af- mælisdag því einmitt þennan dag skyldi tekist á við nýtt hlutvek, óæft og raunar óskrifað, sjómennsku, þar sem landkrabbinn gengi til liðs við vinnuþjarka íslenskrar atvinnustéttar með þeim lögum og regl- um, skráðum og óskráðum, sem þar gilda. Spennustigið var þ.a.l. hátt þennan dimma vetrardag en dagarnir þar á undan höfðu liðið einn af öðrum án niðurstöðu - símsvari Samherja hljómaði e-ð á þessa leið: „Skipverjar á Akureyrinni athugið, enn er verið að vinna í spilinu, vonir standa til að viðgerð verði lokið annað kvöld eða að morgni ...dags, eru skip- verjar beðnir um að athuga stöðuna um hádegisbil á morgun...“ Svona gekk þetta um sinn, glæsifleytur Samherja héldu til hafs ein af annarri meðan skipverjar Akur- eyrinnar EA 110 biðu boða sinna, velflestir þolin- móðir eins og reynslan hefur kennt þeim meðan landkrabbinn óreyndi renndi í gegnum hugskot sitt dag hvern, nokkrum sinnum, hvað biði hans í nýju hlutverki. Samtímis sem sjálfið fagnaði biðinni þoldi það illa við enda alþekkt að biðin er einungis til ills þegar vitað er að hlutskiptið verður ekki umflúið, hver man ekki skamman fögnuðinn í hjarta ung- lingsins félli niður skóli tiltekinn dag á miðjum vetri!? Margur, reyndur og óreyndur til sjós, hafði komið Hinn 11. janúar 2002 var líkur öðrum dögum þessa tiltekna mánaðardags ár hvert sl. 44 árin að því leyti að undirritaður fagnaði afmæli þann dag og þannig áminntur um að tíminn stendur ekki beinlínis í stað. Dagurinn stóð upp á föstudag og einhvern tímann á lífsleiðinni hefði slíku verið fagnað með eftirminnilegum hætti en með árunum verða tímamótin færri og þar með tilefnin til samfögnuðar ættingja og vina. „30 dagar án Dagnýjar (og barna)“ Greinarhöfundur tekur til hendinni í lestinni. Í janúar hélt Akureyrin EA, skip Samherja hf. á Akureyri, til veiða eftir nýársstopp. Einn skipverja, Magnús Már Þorvaldsson, „Halló Akureyri“ og fyrrum sveitarstjóri á Þórshöfn, var háseti í þessum túr, en hann hafði aldrei áður farið til sjós. Ægir fór þess á leit við Magnús Má að hann skráði upplifun sína af þessari sjóferð fyrir blað- ið. Magnús Már tók þeirri málaleitan vel og hér birtist fjörleg sjó- ferðarlýsing hans og myndir voru teknar í ferðinni.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.