Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.2002, Blaðsíða 8

Ægir - 01.02.2002, Blaðsíða 8
8 F R É T T I R Á þessum árstíma er lífið loðna á Vopnafirði. Athafnalífið snýst að miklu leyti í kringum þennan dyntótta fisk hjá burðarfyrirtæki byggðarlagsins, Tanga hf. Loðnan er þeirrar náttúru að hún gefur sig bara nokkra mánuði á ári og þegar loðnuveiðin byrjar af krafti brestur á vertíð á Vopnafirði, rétt eins og þær gerðust bestar í síld- inni í gamla daga. Unnið er allan sólarhringinn á vöktum og loðn- an fryst fyrir Rússana fyrst og fremst, en einnig lítillega fyrir Japansmarkað. Þegar vel gengur í loðnunni gengur vel hjá Vopnfirðingum. Og ekki verður annað sagt en að vel hafi gengið á loðnuvertíðinni í vetur og því er nokkuð bjart yfir Vopnafirði þessar vikurnar. Að vísu hefur tíðarfarið verið svona upp og ofan og brælur hamlað veiðum, en þegar tíðarfar hefur verið hagstætt hefur mokveiðst. Nóg af loðnu í sjónum „Þetta hefur gengið vel,“ sagði Friðrik M. Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Tanga við Ægi, „að vísu hafa oft verið slæmar brælur en að öðru leyti hefur þetta geng- ið ágætlega. Það virðist vera óhemju af loðnu í sjónum og veiðin hefur verið góð þegar hefur gefið til veiða. Í fyrra var veiðin óvenjulega mikil fyrir vestan og því tókum við á móti minna magni af loðnu en oft áður. Í ár höfum við tekið á móti meira en helmingi meira magni en í fyrra. Loðnan er óvenju stór í ár og ástandið á henni er gott,“ sagði Friðrik. Fyrir miðjan febrúar var hrognafyllingin í loðnunni komin í 15%, sem er viðmiðið fyrir Jap- ansmarkað. Friðrik segir að Tangi frysti ekki mjög mikið fyrir Jap- ansmarkað, áherslan sé á frysta loðnu á Rússlandsmarkað. Hvorki útlendingar né aðkomumenn „Þegar nóg er af loðnunni vinn- um við allan sólarhringinn á þrí- skiptum vöktum. Hér eru saman- lagt um 50 manns starfandi,“ sagði Friðrik. Hann segir að svo merkilegt sem það kunni að virð- ast þurfi ekki að sækja vinnukraft á þessum vinnuálagstímum út fyrir byggðarlagið. „Það er það merkilega við Vopnafjörð að við erum bara með okkar fólk. Vinnslan er mjög tæknivædd og við þurfum ekki nema það fólk sem er hjá okkur í vinnu dags daglega. Hér er enginn útlend- ingur í vinnu og enginn aðkomu- maður, sem er nokkuð merkilegt miðað við mörg önnur byggðar- lög.“ Gaman á vertíðinni Ef fram heldur sem horfir eru lík- ur á að sett verði nýtt loðnufryst- ingarmet hjá Tanga í ár. Friðrik framkvæmdastjóri segir þó var- legt að spá nokkru um það fyrr en vertíðinni ljúki, aldrei sé á vísan að róa hvað loðnuna varðar. Auk eigin skips hafa Færeyingar land- að umtalsverðu magni af loðnu á Vopnafirði og sömuleiðis er eitt grænlenskt skip sem landar hjá Tanga. „Það er alltaf gaman með- an á vertíðinni stendur,“ segir Friðrik um stöðuna í uppsjávar- veiðunum, „en reynslan segir manni að loðnan er duttlunga- fullur fiskur og hefur oftar en ekki snúið á okkur sem vinnum að loðnuveiðum og vinnslu,“ Stríðnir Norðmenn Um markaðsmálin segir Friðrik að það sé þekkt á þessum tíma að frekar treglega gangi að selja frystu loðnuna inn á Rússland, „en það er nú einu sinni svo að þegar Norðmennirnir eru inni á markaðnum stríða þeir okkur, en þegar þeir fara út af markaðnum í apríl seljum við okkar fram- leiðslu. Norðmennirnir beita alltaf þeirri aðferð að bjóða verðin niður á þessum tíma, en við höld- um að okkur höndum á meðan og söfnum um 2500 tonnum í okkar frystigeymslur,“ segir fram- kvæmdastjóri Tanga. „Við erum nú þegar búnir að skipa út 2400 tonnum og reiknum til viðbótar með 2500 tonnum í geymslum,“ segir Friðrik M. Guðmundsson, Lífið er loðna á Vopnafirði „Það er það merkilega við Vopnafjörð að við erum bara með okkar fólk. Vinnslan er mjög tæknivædd og við þurfum ekki nema það fólk sem er hjá okkur í vinnu dags daglega.“ Drekkhlaðin loðnuskip á Vopnafirði. Mynd: Jón Sigurðsson/Vopnafirði „Í ár höfum við tekið á móti meira en helmingi meira magni en í fyrra. Loðn- an er óvenju stór í ár og ástandið á henni er gott,“ framkvæmdastjóri Tanga hf.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.