Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.2002, Blaðsíða 28

Ægir - 01.02.2002, Blaðsíða 28
28 S J Ó M A N N S L Í F vélstjóri, og Karl R. Þórhallsson, 2. vélstjóri, áður hafði ég nefnt þann frábæra matsvein, Birgi Þór Júlí- usson, til sögunnar sem og stjórnendur skipsins. Fyrsta vakt var þó róleg þar sem skipið hélt á haf út og veiðar voru ekki hafnar, kl. 00.30 var mér heimilt að leggjast til hvílu í káetu minni fyrsta sinni í sjóferðinni en káetufélaganum var gert að koma sér á vakt. Með eina sjóveikitöflu í kviðnum leið mér ágætlega þrátt fyrir dýfurnar er skipið tók, en sá galli var á gjöf Njarðar að hvernig sem ég reyndi gat ég ekki með nokkru móti sofnað! Ástæðan var giska einföld en ég hafði ekki leitt hugann að áður, vélarhávaðinn var að æra óstöðugan! Þannig háttar til í þessu góða skipi að vélar þess eru fremst eða a.m.k. nógu framarlega til að til þess að valda hávaða og titringi í vistarverum sem er óvönum nokkuð framandi svo ekki sé fastar að orði kveðið. Komandi úr vernduðu umhverfi heimilisins átti landkrabbinn erfiða nótt þar sem háð var hörð barátta við vélargný og skjálfta honum fylgjandi - þessari fyrstu baráttu tapaði ég og þótti illt í efni. Að morgni skyldi ég eiga vakt og kveið því ekkert sér- staklega en nokkuð þó enda er vansvefta maður ekki til að hafa stórræði með höndum. Þegar til kom stöðvaði Jón klefafélagi framsókn mína, sagði enn ekki komið að átökum og skyldi ég þ.a.l. liggja áfram í hvílu minni. Lét ég ekki segja mér það tvisvar og merkilegt nokk hafði ég sigur og náði svefni einhverja stund - hafði ég þar með náð að sigra hávaðarokka Akureyrinnar fyrsta sinni og skyldu sigrarnir verða regla fremur en undantekning þegar frá leið, eyrnatapparnir er Siggi vélstjóri gaukaði að mér hjálpuðu mikið. Frívakt tók við kl. 12.30 án vinnuframlags og von- ast ég til að ekki verði dregið af launum mínum þeg- ar þetta uppgötvast...! Okkar beið úrvalsmáltíð frá hendi Birgis Þórs og var það einungis forsmekkurinn því ungi maðurinn reyndist vera snillingur á sviði matargerðarlistar og átti sinn þátt í að viðhalda þeim stórgóða anda sem var manna á meðal allan túrinn. Að lokinni máltíð tók við afslöppun þar sem menn ýmist lágu eða sátu á meltunni, en um kl. 17 gerðist sá merki atburður að ég upplifði mitt fyrsta kast, þ.e.a.s. að dekkmenn dagvaktar köstuðu netum fyrsta sinni í úthaldinu og myndi styttast í fyrstu handtök landkrabbans á millidekki togarans akur- eyrska. Aðlögun lýkur Klukkan 21.30 þetta kvöld hófst hin eiginlega sjó- mennska, ég hafði svo sem segir að framan fengið ný- liðafræðslu en nú skyldi tekist á við gull hafsins í formi missnoturra fiska! Já, einmitt en ef ég þekkti nú ekki mun á ýsu og þorski, hlýra og steinbít, ýsu og lýsu, þorski og ufsa..., eða hvað þeir heita nú allir þessir fiskar hafsins sem leitað skyldi að! Þekkingin, áður en gengið var inn á millidekk skipsins, lítil, eiginlega engin og í engu samræmi við lífaldur skip- verjans nýja - reynsluheimurinn ekki víðari en svo að fiska þekkti ég fyrst og fremst af afspurn en þó eink- um tilreidda á matardiski mínum! Ég hafði þó lesið mér til um að ýsa og lýsa væru af þorskaættkvísl, lýs- una hirti maður líklega ekki, þorskurinn væri venju fremur stærri en ýsan og útlistmunur væri svo slá- andi að jafnvel hálfblindur sæi greinilega nokkurn mun! Þetta fyrsta hol var upp á 3-4 tonn og var uppi- staðan fremur smár þorskur, skv. atvinnumönnunum vel að merkja. „Fékk“ ég að vera með í að koma þeim gula í gegnum hin fjölmörgu færibönd millidekks- ins. Kristján Ísak og Sigurður Malmquist höfðu mig sér við hlið í móttökunni en þar hefst hin eiginlega flokkun og er vissara að hafa hraðar hendur og er þess vænst þar sem öll vinnslan snýst um skjót og vönduð (með áherslu á vönduð) vinnubrögð. Fiskarnir komu einn af öðrum þó yfirleitt margir saman, greina þurfti á milli þeirra sem fara skyldu í vinnslu og ekki en níutíuog eitthvað prósent aflans eru nýtt og hið margumtalaða brottkast sást hvergi, hér er því sem næst allt nýtt var mér tjáð - og það sannreyndi ég. Setið að kræsingum. Hér gera menn þorramatnum góð skil.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.