Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.2002, Blaðsíða 45

Ægir - 01.02.2002, Blaðsíða 45
45 N Ý T T F I S K I S K I P Það er útgerðarfélagið Ístún sem gerir út Guðna Ólafsson, en að því standa Þróunarfélag Íslands, Burðarás, Sjóvá-Almennar, Skelj- ungur, Sæhamar, Hekla, Net- hamar, Friðrik A. Jónsson, Radi- omiðun, Pétur Björnsson, Verk- fræðistofan Fengur og Sigmar G. Sveinsson, skipstjóri skipsins. Skipið er 51,2 metra langt, 12,2 metra breitt, aðalþilfar er 5,40 m djúpt, efra þilfar er 8,10 m djúpt og bakkaþilfar 10,5 m. Verk- fræðistofan Fengur ehf. hannaði skipið, en um eftirlit á smíðatíma höfðu Hallgrímur Rögnvaldsson og Sigmar G. Sveinsson. Guðni Ólafsson VE er með tvær frystilestar undir aðalþilfari. Fyrir túnfiskinn er 355 rúmmetra frystilest en hefðbundna frysti- lestin er 325 rúmmetrar. Vinnsluþilfar er 175 fermetrar að stærð. Íbúðir eru fyrir 24 í skip- inu, tíu tveggja manna klefar og fjórir eins manns. Að auki er sjúkraklefi í skipinu svo og skrif- stofa. Vélar Aðalvélar Guðna Ólafssonar VE eru tvær af gerðinni Caterpillar 3606TA. Niðurfærslugír er af gerðinni Scana Volda ACG 68/525, sem Hekla hf. hefur um- boð fyrir. Fjögurra blaða skrúfa 2900 mm er Volda CP 68/4, snúningshraðinn er 214 sn/mín. Ljósavélin er af gerðinni Ca- terpillar 3412 DITA, afköst 590 kW, 440 V, 60 Hz við 1800 sn/mín. Stýrisvél skipsins er af gerðinni Scan Stering MT 5000. Hliðar- skrúfan að framan er frá Schottel - STT 110 LK, 270 hestöfl. Um- boðsaðili er Naust Marine. Sjó-, lensi- og brunadælur eru af gerð- inni Itur, sem Framtak hefur um- boð fyrir hér á landi. Akkeris- vinda skipsins er af gerðinni Línu-, neta- og túnfiskveiðiskipið Guðni Ólafsson VE 606: Verður að veiðum á úthafinu Guðni Ólafsson VE 606 er rúmlega 1500 brúttólesta línuveiðiskip og er ætlunin að það verði gert út á línuveiðar á Rockall-svæðinu og einnig á túnfiskveiðar suður af landinu seinnipart sumars. Skipið var smíðað í Huangpu skipasmíðastöðinni í Guangzhou í Kína, eins og svo mörg önnur nýsmíðaskip sem hafa komið til Íslands á síðustu misserum. Guðni Ólafsson VE 606 í innsiglingunni í Vestmannaeyjahöfn. Mynd: Sigurgeir Jónasson/Vestmannaeyjum

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.