Ægir - 01.02.2002, Page 21
21
þrjóska og bilun að við skyldum
ekki gefast upp, enda gátum við
ekki keypt okkur neina fagþekk-
ingu. Í upphafi vöruþróunar
byggðum við á þeirri kunnáttu
sem hér var til staðar í sútun
mokkaskinna og þreifuðum okk-
ur síðan áfram. Til þess að þetta
gæti gengið upp þurfti mikla
þolinmæði og þrjósku,“ sagði
Friðrik.
Mikill flutningskostnaður
á hráefninu
Eins og áður segir framleiðir Sjáv-
arleður leður úr laxaroðum og
einnig af nílarkarfa frá Kenya.
Friðrik segir að nílarkarfaroðið
henti vel til vinnslu. „Bæði hentar
þetta roð vel til sútunar og síðan
hefur ekki lítið að segja að í hin-
um ýmsu litum er nílarkarfinn
afar fallegur og sérstakur. Það má
segja að nílarkarfinn selji sjálfan
sig á útlitinu,“ sagði Friðrik.
Sútað fiskroð frá Sjávarleðri er
notað í ýmis tískuföt til skreyt-
ingar á yfirhafnir og einnig eru
t.d. saumaðar töskur og skór úr
því. „Vöruþróunin í laxaroðinu
hafði það m.a. að markmiði að ná
því mjúku til þess að nýta það í
fatnað,“ sagði Friðrik.
Þó að það hljómi kannski ein-
kennilega er hráefnið nokkuð dýrt
í innkaupum og Friðrik nefnir að
flutningskostnaðurinn á því frá
bæði Færeyjum og Kenya sé gríð-
arlega mikill, án þess þó að vilja
nefna neinar tölur í því sambandi.
Stærstir í heiminum
Sjávarleður er eftir því sem best
er vitað eina fyrirtækið á þessum
markaði í heiminum. „Við höfum
ekki orðið varir við samkeppni í
nákvæmlega þessu. Við höfum
forskot og ég hef sagt að þó að við
séum ekki stórir, þá séum við þó
stærstir í heiminum. Við erum
hins vegar þess fullvissir að það
mun koma samkeppni á þessum
markaði, en ég er að vonast til
þess að við höfum aflað okkur það
mikillar grunnþekkingar á þessu
sviði að við höfum gott forskot á
hugsanlega keppinauta,“ segir
Friðrik.
Tískuheimurinn vill
náttúruleg efni
Það má leiða líkum að því að
tískuheimurinn hafi gleypt við
framleiðslu þeirra Sjávarleðurs-
manna á Sauðárkróki einmitt
vegna þess að þessi vara er ný og
óþekkt á markaðnum. Sútuð
slönguskinn í fatnað eru þekkt og
þau hafa á víxl verið í tísku eða
dottið úr tísku. Fiskroð er hins
vegar nýmæli og þess vegna eru
tískuhönnuðir tilbúnir til þess að
kaupa það dýru verði. „Tísku-
heimurinn er stöðugt að kalla á
ný efni og vill hafa þau náttúru-
leg og þar höfum við heppnina
með okkur,“ segir Friðrik.
Hönnuður í París
Friðrik segir að því verði ekki á
móti mælt að markaðssetning á
framleiðsluvörum Sjávarleðurs sé
tímafrek og dýr. „Við verðum að
sækja sýningar reglulega til þess
að kynna okkar framleiðsluvörur.
Árið 1999 ákváðum við að ein-
beita okkur að Frakklandsmark-
aði og við bundum við það vonir
að þar gætum við slegið tvær
flugur í einu höggi því líkur
væru á því að Ítalíumarkaðurinn
myndi fylgjast vel með nýjung-
um í tískuheiminum í Frakk-
landi. Það er að koma á daginn að
við veðjuðum þar á réttan hest.
Við erum með íslenskan hönnuð á
okkar snærum í París, Sigrúnu
Úlfarsdóttur, sem hefur unnið hjá
mörgum af þekktu tískuhúsunum
og þekkir ýmsa lykilmenn í þess-
um heimi og veit við hverja er ár-
angursríkast að tala. Hún hefur
unnið mjög gott starf fyrir okk-
ur,“ segir Friðrik. En þrátt fyrir
að hafa komist inn fyrir þröskuld-
inn hjá áðurgreindum þekktum
tískuvörufyrirtækjum er Sjávar-
leður ekki orðið ríkt fyrirtæki, en
vissulega hefur verið náð mikils-
verðum árangri sem gefur góð
fyrirheit um framtíðina.
Fiskroðið hefur held-
ur betur vakið athygli
í tískuheiminum.