Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.2002, Síða 23

Ægir - 01.02.2002, Síða 23
tektarverður og árangur fyrirtæk- isins segir allt sem segja þarf um að þar á bæ eru menn að vinna faglega og búa til góða og eftir- sóknarverða vöru. „Við höfum ekki ástæðu til þess að hafa nokkra minnimáttarkennd,“ segir Sigurður Guðni og hlær, „stað- reyndin er sú að hér á landi eru útgerðir og fiskverkendur miklu framsæknari og frjórri varðandi tæknivæðingu í sjávarútvegi en almennt gerist. Menn gera sér grein fyrir því að með því að fylgja tækninni eftir ná menn betri árangri. Þetta á við um margar útgerðir hér á landi. Ég get nefnt sem dæmi Samherja, sem hefur náð eftirtektarverðum árangri með nýrri tækni í upp- sjávarveiði um borð í Vilhelm Þorsteinssyni, Festi, sem gerir út Guðrúnu Gísladóttur og Ísfélagið í Vestmannaeyjum sem er með plötufrysta með sjálfvirkri inn- og útmötun. Sjálfvirkir frystar eru einnig um um borð í Guð- rúnu Gísladóttur. Ég vil einnig nefna Harald Böðvarsson hérna á Akranesi. Án HB væri Skaginn ekki í þeim sporum sem hann er í dag því stjórnendur þar hafa í gegnum árin leyft okkur að prófa ný tæki sem við höfum verið að þróa.“ Í samvinnu við Þorgeir & Ellert Skaginn er ekki gamalt fyrirtæki - stofnaður árið 1998. Skaginn hf. var stofnaður með sameiningu stáldeildar Þorgeirs & Ellerts hf. og IÁ-smiðju. Skaginn og Þor- geir & Ellert eru tvö aðskilin fyr- irtæki á Akranesi, en þau eru þó nátengd. „Fyrirtækin eru með sameiginlega skrifstofu og yfir- stjórn og Þorgeir & Ellert á hlut í Skaganum,“ segir Sigurður Guðni. Starfsmenn Skagans eru nú um 70. Bæði er um að ræða járn- og plötusmiði, hönnuði og ýmsa tæknimenn. „Við erum með um tíu manns í hönnunar- og tækni- deild fyrirtækisins. Verkefni út um allan heim Skaginn er með verkefni út um allan heim. Á síðari hluta síðasta árs var til dæmis unnið að því að setja upp lausfrysta frá Skaganum um borð í skip suður-afríska sjáv- arútvegsfyrirtækisins Sea Harvest. „Við höfum verið að þróa fram- leiðslu á lausfrysti, sem er ein- stakur á markaðnum, enda er hann einkaleyfisvarinn. Þetta er langminnsti lausfrystirinn á markaðnum miðað við afkasta- getu. Það þýðir að hægt er að setja hann um borð í mismunandi stærð fiskiskipa. Reynslan af þess- um lausfrystum er einstaklega góð. Til dæmis kom í ljós eftir að við settum slíkan lausfrysti um borð í Arctic Varrior, einn af tog- urum Boydline í Hull í Englandi, að gæðin á fiskinum reyndust meiri en menn þar hafa áður séð. Einnig er lausfrystir frá okkur ný- lega kominn um borð í færeyskt fiskiskip. Við aðlögum frystinn að skipunum og nýtum það pláss sem er til ráðstöfunar í hverju skipi. Ég held að megi segja að þessir frystar séu bylting. Fryst- ingin í þeim er blanda af svokall- 23 „Staðreyndin er sú að hér á landi eru útgerðir og fiskverkendur miklu framsæknari og frjórri varðandi tækni- væðingu í sjávarútvegi en almennt gerist,“ segir framkvæmdastjóri Skagans hf. Myndir: Sverrir Jónsson.

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.