Ægir - 01.02.2002, Síða 25
25
N Ý S K Ö P U N
Fyrirtækið Primex, sem er líf-
tæknifyrirtæki og vinnur kítín og
kítosanefni úr rækjuskel og er
með starfsstöðvar á Siglufirði, í
Reykjavík og Noregi, er trúlega
stærsta fyrirtæki á sínu sviði á
Vesturlöndum. Áður hét fyrir-
tækið Genís ehf., en á síðari hluta
síðasta árs keypti Genís þrotabú
Primex í Noregi og fyrir
nokkrum vikum var nafni móður-
félagsins breytt í Primex, fyrst og
fremst vegna þess hversu þekkt
það nafn er á erlendum mörkuð-
um, ekki síst í Japan.
Rækjuskel inniheldur kítin og
til þess að ná því úr skelinni þarf
að hreinsa burt önnur efni úr
henni s.s. prótein, kalsíum og lit-
arefni. Það sem stendur þá eftir er
óvatnsleysanlegt kítín. Hjá Pri-
mex á Siglufirði hefur verið þróuð
vinnsla á kítosani úr kítíni, en
rannsóknastofa fyrirtækisins er
hins vegar í Reykjavík.
Haukur Ómarsson, fram-
kvæmdastjóri Primex á Siglufirði,
segir að áfram verði haldið þróun
vinnslunnar á Siglufirði og nýlega
hafi eitt skref verið tekið í þeim
efnum. „Það felst í því að við
mölum kítósanið, sem hefur verið
í einskonar flögum, niður í duft.
Við stefnum síðan að því að þróa
þetta áfram. Við ætlum okkur
lengra og ná sem mestu af virðis-
aukanum af framleiðslunni hing-
að heim. Það eru vissulega mögu-
leikar á því í framtíðinni að þróa
kítosan inn á nýja og dýrari
markaði, t.d. snyrtivöru- og lyfja-
markaðinn,“ sagði Haukur.
Stærstu markaðir í Bandaríkj-
unum og Japan
Haukur segir að menn hafi ekki
við mörg önnur fyrirtæki að miða
í framleiðslu á kítosani. „Við
erum í framleiðslu sem er áður
óþekkt á Íslandi, í Bandaríkjun-
um er kannski eitt sambærilegt
fyrirtæki og eitt smáfyrirtæki í
Evrópu. Við höfum því lítið við
að miða og þess vegna höfum við
verið að þróa þetta áfram á okkar
forsendum og við höfum farið
varlega í sakirnar,“ segir Haukur.
Stærstu markaðir Primex eru
Bandaríkin og Japan. Genís hafði
selt sínar vörur fyrst og fremst til
Bandaríkjanna, en Primex í Nor-
egi hafði sterka stöðu á Japans-
markaði. „Kítosanið er aðallega
nýtt sem fæðubótarefni til megr-
unar og einnig til hreinsunar á
drykkjar- og frárennslisvatni. Við
höfum líka lítillega selt kítósan
til fyrirtækja á snyrtivörumark-
aðnum.“
Tæplega þrjátíu starfsmenn
Verksmiðja Primex á Siglufirði
var upphaflega byggð upp miðað
við 500 tonna ársafköst. Fram að
þessu hefur hún hins vegar ekki
verið keyrð á nema um 30% af
þeim afköstum, en Haukur segist
vonast til þess að á þessu ári verði
afköstin komin upp í um 70%.
„Við erum að vinna rækjuskel frá
Hvammstanga í vestri til Húsa-
víkur í austri og það hráefni dug-
ar fyrir vinnsluna eins og hún er
núna hjá okkur,“ segir Haukur.
Nú starfa tæplega þrjátíu
starfsmenn hjá Primex. Á Siglu-
firði eru þeir 19, á rannsóknastofu
í Reykjavík eru 5 starfsmenn og 4
starfsmenn sinna sölu- og mark-
aðsmálum hjá fyrirtækinu í Nor-
egi.
Fiskprótein
Auk kítínafurða framleiðir Pri-
mex ensímmeðhöndluð prótein úr
fiskfrákasti og selur sem bragð-
efni. Á þessu sviði hefur verið
lagt í töluverða þróunarvinnu og
er ársframleiðslan af bragðefna-
dufti nú um 50 tonn. „Við höfum
verið að framleiða próteinið og
selt það frá okkur til frekari úr-
vinnslu annars staðar,“ segir
Haukur.
Að hans mati hefur orðið tölu-
verð vakning að undanförnu varð-
andi sjávarlíftækni. „Rekstrarlega
hafa sjávarútvegsfyrirtækin verið
að ná sér vel á strik og þau eiga
nú fjármuni til þess að setja í ný-
sköpun, t.d. líftækni. Samherji og
Þormóður rammi- Sæberg eiga til
dæmis hlut í Primex og hafa stutt
vel við uppbyggingu fyrirtækis-
ins,“ segir Haukur Ómarsson.
Líftæknifyrirtækið Primex starfar á Siglufirði, í Reykjavík og Noregi:
Vinnur kítosan úr rækjuskel
„Við erum í fram-
leiðslu sem er áður
óþekkt á Íslandi, í
Bandaríkjunum er
kannski eitt sam-
bærilegt fyrirtæki og
eitt smáfyrirtæki í
Evrópu,“ segir Hauk-
ur Ómarsson. Myndin
er tekin í verksmiðju
Primex á Siglufirði.
Haukur Ómarsson, framkvæmdastjóri
Primex, í dagsins önn. Mynd: Hellan/Siglufirði.