Ægir - 01.02.2002, Qupperneq 41
Ísþorskur, Arctogadus glacialis
Ísþorskur, 35 cm langur, veiddist í ágúst á 448-494 m dýpi í
rækjuvörpu rs. Drafnar RE norðan við Halamið. Þetta mun vera
þriðji eða fjórði fiskur þessarar tegundar á Íslandsmiðum. Sá
fyrsti veiddist árið 1995.
Lýr, Pollachius pollachius
Í febrúar veiddist 64 cm lýr út af Gerpi. Veiðiskip var Anna
Rósa NK. Þessi tegund er ekki algeng svona norðarlega. Tveir
veiddust í nóvember á 137-240 m dýpi á Stokksnesgrunni. Þeir
voru 64 og 70 cm langir. Veiðiskip var Hrafn GK.
Skötuselur, Lophius piscatorius
Í apríl veiddist, 55 cm langur, skötuselur í grásleppunet á 60
m dýpi við Hraunsvita norðaustur af Skagatá. Skötuselur hefur
ekki verið algengur á þessum slóðum hingað til. Hann hefur
haldið sig meira undan Suðurströndinni.
Kjáni, Chaunax suttkusi
Skömmu fyrir jól veiddist 9,4 cm langur kjáni á 622 m dýpi
djúpt vestur af Öndverðarnesi. Veiðiskip var Snorri Sturluson
RE. Þetta er fjórði fiskur þessarar tegundar sem hér veiðist.
Árið 1997 veiddust tveir, annar þeirra sunnan Vestmannaeyja
en hinn á Reykjaneshrygg. Árið 1998 veiddist síðan einn sunn-
an Vestmannaeyja.
Tuðra, Himantolophus albinares
Togarinn Snorri Sturluson RE veiddi eina 23,5 cm langa
tuðru í júní á 824 m dýpi djúpt suðvestur af Reykjanesi.
Lúsífer, Himantolophus groenlandicus
Í júní veiddi Snorri Sturluson RE fjóra lúsífera, 20-24 cm
langa á 732-824 m dýpi djúpt suðvestur af Reykjanesi.
Drekahyrna, Chaenophryne draco
Í lok júní veiddist ein 12,5 cm löng drekahyrgna á 824 m
dýpi djúpt suðvestur af Reykjanesi. Veiðiskip var Snorri Sturlu-
son RE.
Slétthyrna, Chaenophryne longiceps
Um miðjan júní veiddi Snorri Sturluson RE eina 21,5 cm
langa slétthyrnu á 824 m dýpi djúpt suðvestur af Reykjanesi.
Sædjöfull, Ceratias holboelli
Í maí veiddi Snorri Sturluson RE einn 43 cm langan sædjöful
á 769 m dýpi í Grænlandshafi utan 200 sjómílna markanna og í
júní veiddi sama skip þrjá 31,3 til 59 cm langa innan 200 sjó-
mílna markanna djúpt suðvestur af Reykjanesi.
Surtur, Cryptopsaras couesi
Í maí veiddi Snorri Sturluson tvo, 21 og 23 cm langa, surta á
769 m dýpi í Grænlandshafi rétt utan 200 sjómílna markanna
og í maí og júní veiddi sama skip þrjá, 16-34 cm langa á 732 m
dýpi djúpt suðvestur og vestur af Reykjanesi.
Gráröndungur, Chelon labrosus
Um miðjan júlí veiddist 51 cm langur gráröndungur í sil-
unganet í Holtsósi undir Eyjafjöllum.
Geirnefur, Scomberesox saurus
Í lok september náðist 29 cm langur geirnefur í Seltjörn á
Seltjarnarnesi.
Dökksilfri, Diretmoides parini
Í lok janúar veiddist í botnvörpu Hrafns Sveinbjarnarsonar
GK 34 cm langur dökksilfri á 311-366 m dýpi á Þórsbanka
undan Suðausturlandi.
Litli búrfiskur, Hoplostethus mediterraneus
Í mars veiddi Þerney RE 21 cm langan litla búrfisk á Eldeyj-
arsvæðinu. Þessi tegund veiddist fyrst á Íslandsmiðum árið
1964. Árið 1998 veiddist annar og þessi er þá sá þriðji.
Rauðserkur, Beryx decadactylus
Veiddist í janúar á 249 m dýpi í Kolluál. Lengd var 44,5 cm
og veiðiskip Gnúpur GK.
Fagurserkur, Beryx splendens
Gullver NS veiddi einn í botnvörpu út af Stokksnesgrunni í
febrúar.
Göltur, Neocyttus helgae
Um miðjan júní veiddist einn 9 cm langur á 824 m dýpi í
vörpu Snorra Sturlusonar RE djúpt suðvestur af Reykjanesi.
Alls hafa sex fiskar þessarar tegundar veiðst á Íslandsmiðum
síðan 1989 á svæðinu frá Berufjarðarál vestur með landi norður
á grálúðuslóð vestan Víkuráls.
Sænál, Entelurus aequoraeus
Í nóvember veiddist ein í net á 55 m dýpi út af Hellissandi.
Veiðiskip var Klettsvík SH. Enginn veit hve langt er síðan sæ-
nál veiddist hér við land. Hún sleppur við flest veiðarfæri vegna
vaxtarlags síns auk þess sem hún er illgreinanleg þegar hún
veiðist.
Urrari, Eutrigla gurnardus
Í janúar veiddi Snorri Sturluson í botnvörpu sex urrara, 21-40
cm langa við Eldey.
Ennisfiskur, Platyberyx opalescens
Í maí og júní veiddi Snorri Sturluson RE fjóra ennisfiska, 20-
29 cm langa vestur og suðvestur af Reykjanesi.
Kólguflekkur, Pagellus bogaraveo
Í september veiddi Þorri VE í botnvörpu á 238-256 m dýpi í
F I S K A R
41