Símablaðið - 01.01.1947, Blaðsíða 40
18
5 / .Ti A n L A Ð I Ð
SÍJMI. .Vf'HI li Ufjfdif.
Ef þér þnrfiö aö skreppa eitthvaö burt
t. d. í kat'fi, matarhlé eöa því um líkt og
vinir yöar og' kunningjar, eöa einhver sem
þurít hefur aö ná tali af yöur, hefur hringt
i sima yðar, meöan þér voruð fjarverandi,
heyrir hann ókunna rödd er segir:
„Halló ! Halló! — Þetta er hjá N. N. X-götu
oo, tekið veröur á móti skilaboðum yðar ..
viðbúnir?----nú megið þér tala“. Sá er
hringdi upp segir erindi sitt og leggur síð-
an heyrnartóliö á. Svo hringir annar og
sama endurtekur sig. Þannig gengur það
i livert sinn og hringt er í númer yðar,
meðan þér eruð fjarverandi. Þegar þér svo
komiö heiin og viljið fá að vita hver hefur
hringt eða þér eruð úti á landi og
langar til að vita hvaða skilaboð liggja
fyrir heima hjá yður, þá er aðferðin þessi:
Þér hringið þaðan sem þér eruð staddur i
yðar eigið símanúmer. Þegar er þér hafið
fengið samband heyriö þér eftirfarandi:
„Halló! Halló! Þetta er hjá N. N. X-götu
oo. tekið verður á móti skilaboðum yðar.
.... Viðbúinn? .... Strax og röddin hef-
ur sagft orðið ,,Viðbúinn“ segir þér „Halló!
Halló“. Nú segir röddin ekki ,,nú megið
þér tala“ heldur byrjar hún að telja hægt:
i....2....3....4....5....6.... 7
.... 8 .... Q . .. . ^o ..... Þessar tölur eru
til þess að óviðkomandi geti ekki hringt í
númer yðar og hlustað á skilboð, sem tekið
hefur verið á móti í fjarveru yðar og yður
einum eru ætluð. Öllum þessum áhöldum
fylgir svokallaður „akustisk“ lykill, leyni-
númer er tryggir það að enginn nema þér,
eða sá er þér segið leyninúmerið getur náð
skilaboðum úr síma yðar.
Á símaáhöldum þessurn eru takkar
merktir tölunum 1—o, þér snúið lykli og
stillið áhaldið á t. d. 146, frá þeim tíma
skilar áhald yðar því aöeins skilaboðum
sem það hefur tekið á móti, að réttur lykill
sé notaður, í þessu tilfelli 1—4—6.
Þegar þér hat'ið sagt „Halló! Halló!“ á
eftir oröinu „viðbúinn“ byrjar röddin, eins
og áður er sagt, að telja hægt. Eftir hverri
tölu er ca. 4 sek. hlé, og í þessu hléi segið
þér „Halló! Hall!“ á eftir þeim tölum
sem passa við leyninúmer yðar. Ef þér
liafið númerið 146 þá litur „samtal“ yðar
viö röddina þannig út: „1.“ .... Halló!
Halló!“, „2 ...., 3 ...., 4 ....“, „Halló!
Ilalló!“, „5 ....,6......“ „Halló! Halló!‘
Þér hafið nú sagt rétt orð á réttum tíma
og heyrið nú raddir vina yðar: „Halló!
Jón. — Þetta er Siggi, við getum ekki kom-
ið i kvöld,“ eða frá Siggu: „Hittu mig í
kvöld á sama stað og síðast“ o. s. frv. Ef
einhver reynir að prófa sig áfram og segir
Halló! HallóÞá eftir rangri tölu slitnar
sambandið og hringja verður að nýjti. Og
með því að hægt er að breyta lyklinum, hve.
nær sem er og eins og maður vill, má segja
að ógerlcgt sé að geta upp á réttu númeri.
Læknirinn getur þarna látið taka á móti
beiðnum um sjúkravitjanir, kaupm. á móti
vörupöntunum o. fl. o. fl. Það er hlé i ca.
3 sek. á rnilli hverra skilaboða og ef þér
eruð heima getið þér fengið þau endur-
tekin með þvi að þrýsta á hnapp sent
stendur á „Endurtakið".
Ef þið eruð tveir um símann og þurfið
að ræða um einhver mál eða konta skila-
boðum til félaga yðar, en getið ekki náð i
hann og hann ekki í yður þá er það hægt
'á eftirfarandi hátt: Þér hringið í síma
yðar eins og áður er lýst, og fáið þar upp-
lýsingar um þau mál er félagi yðar óskar
að ræða, þegar öllum skilaboðum er lokið
hevrist tónn, þegar hann heyrist segiö þér
„Halló! Halló!“ og getið nú sagt álit yðar
á þvi er félagi yðar talaði um og gefið fyr-
irinæli yðar, en félagi yðar fengið þessar
upplýsingar, þegar honum hentar og án
þess að þið þurfið að hittast eða talast við.
Auk þess setn hér að framan hefur verið
sagt er hægt að nota síma þenna sem Dikta-
fón, til þess að taka niður ræður á fundum,
nota hann sem vitni tneð því aö láta hann
,,hlusta“ á samtöl, getur hann þá endur-
tekiö þau svo viðkomandi haíi sannanir
fyrir því sem sagt hefur verið í símann.
Svo er hægt að láta hann „gleyma“ þessu
öllu, það er gert með því að þrýsta á hnapp
sem stendur á „Gleymist" eða ef þér eruð
fjarverandi þá segið þér að loknum öllum