Símablaðið - 01.01.1947, Blaðsíða 28
G
S í M A B L A Ð I Ð
Hiö skyndilega fráfall Friöbjarnar Aöal-
steinssonar kom mjög á óvart.
Þó hann heföi kennt sér nokkurs meins
undanfariö, virtist engin ástæöa til að ætla,
að hann hefði ekki náð fullri heilsu aftur.
En enginn umflýr sitt skapadægur.
Hann varð bráðkvaddur að morgni hins
.19. ágúst s. 1., á leið frá Akureyri til
Reykjavíkur.
Með Friðbirni er hniginn í valinn sá mað-
ur, sem um áratugi hefir verið samgrónari
þeirri stofnun er hann vann við, en flestir
aðrir. Hjá honum var aldrei kornið að tóm-
um kofum ’um hvaða tegund simamála sem
var aö ræöa. Frá fyrstu tíð lagði hann
metnað sinn i það, að standa ekki öðrurn
að baki um þekkingu og starfshæfni. Konr
honum þar aö góðu haldi hið frábæra
minni, er hann var gæddur.
Með honum hefir símastofnunin misst
einn fjölhæfasta starfsmann sinn.
Friðbjörn var fæddur á Akureyri 30. des.
1890. Voru foreldrar hans Anna Guðmunds-
dóttir frá Seyðisfiröi og Aðalsteinn Friö-
björnsson, Steinssonar hins kunna bóksala
'á Akureyri.
Að loknu gagnfræöaprófi á Akureyri
lærði hann símritun hjá Mikla norræna rit-
AÐALSTEIIVSSOA
skrifstofustjóri.
Fæddur 30. des. 1890.
Dáinn 19. ágúst 1947.
símafélaginu á Seyðisfirði. 14. maí 1908
gekk hann i þjónustu Landssímans, og vann
sem símritari á Seyðisfirði og víðar.
1. jan. 1910 var hann skipaður símritari á
Akureyri. Eftir þaö var hann símritari
á Akureyri, Seyðisfirði og í Reykjavík, —
jafnan þar, sem nlest á reyndi hverju sinni,
— og um skeið settur símastjóri á ísafiröi,
þá aðeins rúml. tvítugur að aldri.
Árið 1916 stundaði hann nám í loftskeyta-
fræði í Bergen, en var síðan falinn undir-
búningur að stoínun loftskeytastöðvarinn-
ar i Reykjavík. Fyrsti loftskeytastöðvar-
stjóri hér á landi var hann skipaður 1. febr.
1917 og var jafnan síðan aðalráðunautur
símastjórnarinnar um allt, sem aö loft-
skeytaviðskiptum laut.
15. rnarz 1934 var hann settur skrifstofu-
stjóri Landssímans, hinn fyrsti í þeirri
stöðu. Gegndi hann þó jafnframt störfum
loftskeytastöðvarinnar við R.vík-Radíó, —
og haíði mikil afskipti af menntun loft-
skeytamanna.
—-o-—
Friðbjörn sál. var einn af hvatamönnum
þess, að Fél. ísl. símamanna var stofnað.
En j)á var hann simritari á Seyðisfirði.
Eftir að hann fluttizt til Reykjavíkur tók
Framh. á bls. 25.