Símablaðið

Árgangur
Main publication:

Símablaðið - 01.01.1947, Síða 51

Símablaðið - 01.01.1947, Síða 51
SÍMÁBLÁÐlt) 29 íliigþjónustunni, sem lög'ö hefir verið undir Landssímánn, bætist við ný starfsgrein meö tugum starfsmanna. Þessi öri vöxtur og þessar miklu breytingar hafa óumflýján- lega ahrif á félagsstarfsemi F. í. S. Þaö er ekki lengur hægt aö velja stéttarsamtök- unum forystu eftir persónulegum kynnum og tiltrú alls fjöldans, eins og áður fyrr, meöan stéttin var fámenn og allir þekktust persónulega. Þaö getur heldur ekki bless - ast, aö láta tilviljun eina ráða um það, hvort flestir meðlimir félagsstjórnar F. í. S. veljast úr einni deild. Símamannastéttin er fjölmennasta stétt opinberra starfs- manna, aö kennurum einum undanskildum. Og hún er þeirra sundurleitust. Innan hennar eru talsímakonur, símrit- arar, verkamenn, skrifstofufólk, iðnaðar- menn, loftskeytamenn, verkfræöingar, verkstæöismenn, sendimenn, — allskonar fagmenn o. s. frv. — fólk, sem valið hefir sér lífsstarf við stofnunina og annað, sem ætlar sér aö starfa viö hana aðeins um stundarsakir.. — Kornungt fólk og aldrað fólk. ,,Það er langt frá íslandi til himna- ríkis“ og þaö er líka langt á milli stéttar- og sjónarmiða hinna ýmsu einstaklinga stofnunarinnar, og lifsviöhorfiö ólíkt. Það er því ekki lítill vandi, sem hvílir á félagsstjórninni, eða litlar kröfur, sem gera veröur til hennar um skilning á við- horfi þessara ýmsu starfshópa til íélags- málanna og um þekkingu á kjörum þeirra. iEða um vit til þess að taka svo á hinum viðkvæmustu málum, — þar sem hags- munaárekstrar kunna að verða, að ekki vakli sundrungu innan félagsins. Því aðeins, að hver einstök starfsdeild fái lagt fram beztu krafta sína til þátttöku í stjórn fé- lagssamtakanna, er það tryggt að aldrei verði nein þeirra afskipt að nauðsynjalausu og jafnan sé til staðar í *stjórn félagssam- takanna þekking og skilningur á viðhorfi allrar stéttarinnar. Með tilliti til þessa breytta viðhorfs var það, að aðalfundur F. í. S. ákvað að taka lög félagsins til endurskoðunar og að á s. 1. hausti var haldinn landsfundur. Lands- fundurinn samþykkti ný lög, þar sem hið nýja viðhorf er tekið til greina. F. I. S. er áfram órofin heild. En reynt er að sjá fyrir því. að hinar ýmsvt starfs- deildir geti haft rneiri áhrif á sérrnál sín með fundahöldum innan starfsdeildanna og með áhrifum á stjórn félagsins. Ætti hið síðarnefnda ekki sízt að verða deildun. um úti á landi mikill styrkur. Stjórnina skipa nú 7 menn, en fundi hennar er ætlast til að 4 varamenn sitji einnig. Með þessari fjölgun stjórnarmeð- lirna og hinu nýja fyrirkomulagi á vali þeirra er það að miklu leyti tryggt, að flestar starfsdeildirnar eigi fulltrúa í stjórninni, eða varafulltrúa, sem á rétt til setu á stjórnarfundum og haft getur þar áhrif á meðferð mála. Þess ber því að vænta, að deildirnar noti sér þá aðstöðu til.meiri áhrifa á gang mála, sent hin nýju lög gefa þeim, — og að. það, út af fyrir sig örfi allt félagslífið. Þeir aö- ilar, sem fyrst eru nefndir í grein þessari, hafa að sjálfsögðu rétt til að gerast með- limir í F. í. S., þegar þeir uppíylla þau skilyri, sent opinberum starfsmönnum ber að uppfylla, — eða málum þeirra komið í það horf, sem umrædd reglugerð gerir ráð fyrir. Annars gera hin nýju lög F. I. S. ráð fyrir sambandi við önnur félög, — og mætti á þcim grundvelli einnig takast sam- vinna milli F. f. S. og þeirra. Verður það mál að sjálfsögðu tekið til athugunar áður langt um líður. A. G. Þ. Svo virðist sem togaraflotinn sé að verða simanum hættulegur keppinautur um loft- skeytamenn. Hefur Símablaðið heyrt, að þrir símrit- arar hafi sagt upp starfi sínit og sé á för- um til að gerast loftskeytamenn á togur- um. Er meðal þeirra einn af elztu símrit- urunum, Guðmundur Pétursson. Þarf ekki aö fjölyrða hve mikil hætta sto.fnuninni stendur af því ef svo heklur áfram. Hinsvegar er það staðreynd, að launakjör símritaranna eru ekki satnbæri- leg við launakjör loftskeytamanna á tog- urum, og mun reynslan sýna að erfitt verð- ur að spyrna hér við fótum,

x

Símablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.