Símablaðið - 01.01.1947, Blaðsíða 41
S 1 M A B L A Ð I Ð
19
i
AFIVIÆLISDAGAR.
Gunnar Schram
fimmtugur.
Nokkrum dögum áSur en Félag ísl.
símamanna var stofnað, eða í febrúar 1915
byrjaði ungur maður símritunarnám við
ritsímann i Reykjavik.
Ekki er mér kunnugt um þaö, hvort
hann sat stoínfund félagsins, •— en strax
á fyrstu árurn félagsins lét hann til sín
taka í íélagsmálum, og varð fljótt lífið og
sálin í stéttasamtökum símamanna.
Þetta. var Gunnar Schram. Þeim er farið
aö fækka, sem muna félagslífið frá þessum
árum, eða þekkja sögu félagsins svo að
þeim sé kunnugt um þá baráttu er það
háði þá, — þau miklu átök, sem félagið
þá átti í viö ríkisvaldið og stjórn símans,
oft og tfðum.
En einmitt þá skapaði félagið sér þá for-
ystu í félagssamtökum opinberra starfs-
manna, er það síðan hefur haldið —• og þa
tiltrú er siðan hefur verið þvi ómetanlegur
styrkur í viðskiptum þess við ríkisvaldiö.
Sú saga verður ekki rakin hér.
skilaboðum „Gleymist.“ og þessi hjálpfúsi
og dularfulli andi hlýðir þessari fyrirskip-
an y ðar og er aftur tilbúinn aö taka á móti
nýjum skilaboðum.
Símaáhald það sem hér að framan hefur
verið sagt frá er ekki í notkun hér, og mér
er ekki kunnugt um hvort það er notað hjá
nágrönnum okkar eða ekki. í grein þeirri
sem þetta er þýtt úr, er sagt frá því að í
Sviss sé slikur simi notaður og að Sviss-
lendingar bendi á hann með stolti, sem
dæmi um að ekki þurfi stríð til þess að
stórfeldar tæknilegar uppfinningar komi í
ljós.
G. G.
En árin, sem Gunnar Schram var bæði
íormaður félagsins og ritstjóri málgagns
þess, — árin 1918—1924 eru tvímælalaust
viðburðaríkasta tímabil í sögu F. í. S., —
það tímabil, sem mest hefir reynt á sam-
tök símamannastéttarinnar og góða forystu.
Þessi ár var Gunnar Schram alltaf sjálf_
kjörinn til forystunnar, — enda vann hann
þannig að málum stéttarinnar, að það
mun seint þakkað, ekki fyrst og fremst
fvrir þau hagsmunamál er hann leiddi í
höfn, heldur fyrir það álit er hann skapaði
félaginu hjá almenningi og stjórnarvöld-
um. •
Gunnar Schram er fæddur í Reykjavík
22. júní 1897. Hann bynjaði símritunarnám
1. febr. 1915 og var skipaður símritari 1.
maí sam^ ár.
1. janúar 1918 var hann skipaður varð-
stjóri við ritsímann í Reykjavík, og 1. júní
1924 var hann skipaður símastjóri á Akur-
eyri.
Símablaðið óskar honum allra lieilla á
hinu nýja æviskeiði, — og flytur honum
kveðjur allra þeirra, sem muna hina „gömlu
og góðu“ daga.
<