Símablaðið - 01.01.1947, Blaðsíða 23
3to.s-
\JVrw
/íma-
. . .□II
bladid
^Jéíaa íiíenzlf
acf lilenzKra iunamanna
XXXII. ÁRG. - REYKJAVÍK 1947
Landsfundur símamanna á síðastl. sumri markaði tímamót í sögu
F. í. S. Ýmsar þær samþykktir, sem þar voru gerðar, hafa vakið athygli
tangt iit fyrir takmörk stéttarinnar, og nmnn á sínum tíma bera árangur,
verði þeim tekið af skilningi af öllum þeim, er þær snerta.
Innan félagssamtakanna verða þær breytingar er fundurinn gerði á
skipulagi F. 1. S. að sjálfsögðu taldar þýðingarmestar. Þær sýna, að fé-
lagið vill ekki verða steinrunnið, en laga sig eftir breyttum aðstæðum.
Félaginu er fyrst og frernst lífsnauðsyn, að hafa á hverjum tíma
stjórn, sem valin er með hagsmuni stéttarinnar fyrir augum, og hefur
bak við sig samstilltan hóp.
En því aðeins verða hinir dreifðu og ólíku starfsmannahópar stétt-
arinnar samstillt og sterk heild, — að frá þeim öllum liggi þræðir til
félagsstjórnarinnar, — að þeir eigi þar allir ítök. Því hefur meðlimum
stjórnarinnar verið fjölgað, svo að sem flestar deildir starfsmanna ge.ti áit
fulltrúa ú r s í n u m h ó p i í henni.
Má ætla að á þann hátt veljist í stjórnina fulltrúar, sem hver um
sig hefur mest traust í sinni deild, — og verði hún þvi ávallt skipuð völd-
nm mönnum og konum.
En þess verða hinar stærri deildir að gæta, að unna hinum minni
þess, að eiga fulltrúa i stjórninni, — en leggja ekki kapp á að ná þeim
sætum þar, sem atkvæðamagn þeirra kann að gefa þeim möguleika
til. Því aðeins ná lagabreytingarnar tilgangi sínum, að deildirnar sýni
þann félagslega. þroska, að velja í stjórn félagsins, — næst á eftir full-
irúa úr sínum hópi, — eingöngu eftir verðleikum þeirra, sem i kjöri eru.
Verði reynslan sú, — mun félagið verða færara um það en áður, að fylgjat
málum sínum eftir, og koma þeim í liöfn.
LANOSBÓKASAFN
oYÍ 170750
ÍSLANDS
ar.
!