Símablaðið

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Símablaðið - 01.01.1950, Qupperneq 5

Símablaðið - 01.01.1950, Qupperneq 5
3S0.i' /íma-| \JM >ladid idi: dJéíaq íí lenzht la^ lilenznra óiryiamanna XXXV. ÁRG. - REYKJAVÍK 195D Árið sem er að líða er merkisár í sögu símamannastéttarinnar. Á þvi ári eru 35 ár liðin frá stofnun félagssamtaka okkar — einnig frá því, að málgagn félagsins hóf göngu sína. En það er nú elzta stéttarblað á Islandi, þeirra sem vinna að hagsmunamálum. Svo oft hefur baráttusaga F. 1. S. verið rakin hér í blaðinu, að ekki þykir ástæða til að gera það nú. En á það má benda hinum fjölda mörgu yngri félaga, sem ekki hafa kynnt sér þá sögu, að gera það. Því of oft verð- ur þeim á að vanmeta samtökin og gera sér ekki ljóst, hve mikils virði þeim er að geta notið óvaxtanna af starfi félagsins. Símamannastéttin er að breyta um svip. Starfssvið símastofnunarinnar verður víðtækara með ári hverju. Stórir starfsmannahópar bætast við síma- mannastéttina í einu og fjöldi nýrra einstaklinga kemur árlega og setur nýjan svip á hinn eldri hóp. Þessu fólki þarf að kynna sögu félagsins og árangur starfs þess, svo það verði sem fyrst góðir félagar, sem taka virkan þátt í starfi þess. Sé þessa ekki nægilega gætt, er hætt við því að margt af þessu fólki festi ekki rætur í félagslífinu, og þeim hóp fjölgi, er með afskiptaleysi sínu veikja félagið — eða þá með gagnrýni, sem byggð er á ónógri þekkingu á sögu fé- lagsins. Um leið og félagið leggur nú upp í nýjan áfanga, er nauðsynlegt að þessi fræðsla sé einn þátturinn í starfi þess. Þáttur, sem of lítil rækt hefur verið lögð við undanfarið, en verður því þýðingarmeiri liður í félagsstarfinu, sem stofnunin verður fjölþættari og starfsmannahópurinn stærri og sundurleitari. Þessi kynning er undirstaða þeirrar samheldni, sem á ýmsum tímum hefur verið styrkur félagsins, — og sem einkenna verður félagsstarfið í framtíðinni, eigi það að geta tekið á hagsmunamálum stéttarinnar af þeim myndugleik, sem nauðsynlegt er. LAN0S3ÓKASAFN JVl i 8 1225 TSLAMiS

x

Símablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.