Símablaðið

Árgangur
Main publication:

Símablaðið - 01.01.1950, Síða 8

Símablaðið - 01.01.1950, Síða 8
4 S 1 M A fí L A Ð I Ð Loftskeytastengurnar á Melunum og flugvélarnar. Hinar gömlu loftskeytastengur á Melun- um eru nú orðnar mikill ásteitingarsteinn þeirra, sem viÖ flugmál fást, enda mun þvi ekki að neita, að flugvélum stafi af þeitn hætta. Hefir sú skoðun látið æ meir á sér bæra, að rífa beri stengurnar af þessari ástæðu, og er það mál nú komið fyrir Alþingi. Þegar loftskeytastengurnar voru reistar, voru þær ekki tákn hættunnar, heldur hins, að henni mætti afstýra. — Loftskeytastöð- in var fyrst og fremst byggð til öryggis skipaflotanum, og er það enn. Hvort staður sá, er henni var á sínum tíma valinn, er nú heppilegur, skal ekki rætt hér. Að dæma þar um, er einungis á valdi sérfræðinga. En það er full ástæða til hins, þegar þeir menn, sem stjórnað hafa flugmálum okkar, eru að amast við gömlu loftskeyta- stöngunum, að láta þá vita það, að þúsund- ir manna í þessum bæ eru þeim algerlega ósammála um að þær eigi að víkja vegna flugumferðarinnar. Aftur á móti myndu tugþúsundir krefj- ast þess, ef samtök yrðu hafin þar um, að flugvöllurinn yrði fluttur það langt burtu frá höfuðborginni, að henni stafaði ekki hætta af nálægð hans, ef til styrjaldar kynni að koma. Sú hugmynd, að byggja flugvöll fast við ir að öðru meira og betra og margir íélags- menn hafa sýnt sérstakan áhuga á þvi að koma upp þessu félagsheimili, og lagt fram mikið og gott starf. Starfsfólkinu liefur verið lofað, að þegar byggt verði við Lands- símahúsið fái það salarkynni þar til ráð- stöfunar. Við verðum að vona að sú bygg- ing hefjist sem allra fyrst. Freistandi væri að ræða ýmis önnur á- hugamál stéttarinnar, en þetta verður látið nægja að sinni. Við verðum að efla félagið eftir mætti, því þannig eflum við okkar eigin hag. Gleðilegt nýár! Steingrímur Pálsson. bæinn, og sem áhugamenn í flugmálum áttu á sínum tíma upptök að, olli strax mikilli andúð, þó samtök vantaði þá til mótmæla, sem máske hefði getað komið í veg fyrir það, að henni væri komið á framfæri við setuliðið á sínum tíma. — Um það þýðir nú ekki að fást. En Reykvíkingar eru ekki búnir að gleyma þeim ótta, sem þeir áttu við að búa öll hernámsárin, vegna legu flug- vallarins, þó gæfan héldi þá yfir okkur verndarhendi. Og við höfum ekki leyfi til að treysta á hana öðru sinni í þeim efnum. Að vísu er því haldið fram ,að því fari fjarri, að Reykjavík stafi hætta af nálægð flugvallarins í ófriði, jafnvel sé að því ör- yggi, — heldur sé það höfnin, sem hættan stafar fyrst og fremst af. Fjöldi manna mun þó vera þeirrar skoðunar, að bæði þessi mannvirki bjóði hættunni heim, og að það sé óafsakanlegt grandvaraleysi, að gera ekki ráðstafanir til þess að afstýra henni. — En það verður aðeins gert með því, að eyði- leggja flugvöllinn, og byggja hann fjarri bænum, og gera öruggar ráðstafanir til þess að höfnin verði aldrei notuð fyrir herskipa- höfn, eða til upp- né útskipunar hergagna. Að gerðum þessum ráðstöfunum hefði eng- inn stríðsaðili minnstu ástæðu til árása á þennan bæ. Til okkar berast stöðugt fréttir um ráða- gerðir nágrannaþjóða okkar um fram- kvæmdir til öryggis borgurunum, ef stríð kynni að brjótast út. Hér á landi heyrist vart minnst á slíkt. Enn virðist gamli hugsunarhátturinn okkur í blóð borinn, að setja á guð og gaddinn. En hér er of mikið í húfi. Þó við vonum og trúum því, að ekki komi til þriðju heims- styrjaldarinnar, ber okkur, eins og öðrum þjóðum, að búa okkur undir það versta. Hér í Reykjavík býr V3 hluti þjóðarinnar, hér eru saman komin verðmæti sem þjóð- inni væri óbætanlegt, ef eyðilögð væri. — Hér eru öll söfn og helztu skóla- og vís- indastofnanir, miðstöð pósts og síma, fjöldi stórbygginga á íslenzkan mælikvarða, — aðalbankarnir og nær allur sjúkrahúsakostur

x

Símablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.