Símablaðið

Árgangur
Main publication:

Símablaðið - 01.01.1950, Síða 13

Símablaðið - 01.01.1950, Síða 13
SlMABLAÐIÐ 9 Ferð með Gullfossi til Ameríku fyrir 30 árum. Mér er enn í fersku minni kvöldið 21. febrúar 1919. Vonskuveður var á og því ekki um annað að gera, en að taka á sig náð- ir. Mér var hugsað til sjómannanna á haí- inu, þeir væru ekki öfundsverðir á þessari stundu, eða að minnsta kosti vildi ég ekki taka að mér þeirra hlutverk. Mitt í þessum hugleiðingum var barið á hurðina og inn kemur sendiboði frá Landssímanum, með skilaboð frá Friðbirni, að ég væri beðinn að koma strax til viðtals niður i Iðnó. Ég vissi að Friðbjörn var staddur þar á dansleik símamanna og brá því skjótt við. Er þangað kom var það erindi Friðbjarnar að grennslast eftir hvort ég myndi vera fá- anlegur til að fara með Gullfossi næsta morgunn, sem loftskeytamaður til Ameríku, þar eð Garðar loftskeytamaður hefði veikst og ekki væri öðrum til að dreifa en okkur Guðmundi Jóhannessyni. Annar væri sæmi- legur í sendingu en hinn þolanlegur við mót- töku. Hann sagðist vera fullviss um að búa mætti til einn sæmilegan loftskeytamann iir okkur tveim. Ég gat ekki gert að því, að þetta setti mig i mikinn vanda, þar sem við vorum aðeins rúmlega hálfnaðir með nám okkar á loftskeytamannanámskeiði er Lands- síminn starfrækti þennan vetur. Ekki var laust við að beigs gætti hjá mér, bæði gagn- vart starfinu og einnig óttaðist ég sjóveik- ina, þar sem ég hafði enga reynslu á sjón- um. Þó var það nú ákveðið þarna, að við reyndum að takast þetta á hendur, en ekki var mér svefnsamt um nóttina. Snemma morguns var ég á fótum. Veður var mjög svipað kvöldinu áður. Gullfoss, sem þá var einasta íslenzka skipið, sem búið var þráðlausum firðtækjum, lá úti á ytri höfn. Ég var fljótur að útbúa mig, og eftir stutta stund vorum við komnir um borð í Gullfoss. Eitthvað lítilsháttar var okkur sagt um tæki stöðvarinnar og starfs- svið þeirra, en sú tilsögn mun hafa verið mjög takmörkuð, og kviðum við því að allt færi í handaskolum hjá okkur. Undir há- degi var lagt af stað, var þá kominn suð- austan rokstormur með hríðaréljum. Fljót- lega kom að þvi að ég gat ei haldist á fót- um. Ég læddist í koju mína sárþjáður og iðraðist glópsku minnar, en þó var mér það bót í máli, að ég þóttist vita að Guðmundur væri sjóhetja mikil. Undir miðnætti skreidd- ist ég samt upp í loftskeytaklefa. Var þá Guðmundur þar fyrir, hetja í mínum aug- um og ef til vill að sínu áliti líka. Það man ég, að við þóttumst báðir miklir menn er við náðum sambandi við Reykjavíkradio. bæði sendum við og tókum við skeytum á fyrsta sólarhring, og höfðum samband við Reykjavíkradio eftir það meðan langdrag stöðvarinnar leyfði. Lífið um borð fannst mér frekar bragð- dauft. Voru það einkum rokstormar af ýms- um áttum, með miklum sjóum, er gerðu dagamun og framleiddu hjá mér alla til- breytni sjóveikinnar, er ég losnaði ekki við meðan ég var starfandi loftskeytamaður á Gullfossi. Skreyddist ég þó oftast til vinnu minnar, en mun hafa borið þess merki hvernig ástand mitt var, eða svo mun starfsfélaga mínum hafa virzt, eins og eftir- farandi kveðskapur hans ber með sér, er beið mín í móttökuherberginu í loftskeytaklef- anum við ein varðskiptin: Grímur vanburða glápir, getur nú ekki étið. Matarlyst hefur missta, menn jsar um spýju kenna. Segginn hefur hún sigrað, sárt leikið halinn keika. Burtu er blóð úr kinnum, boginn í keng hann gengur. Guðmundur bar sig borginmannlega þegar á sjóveiki var minnzt og glingraði allmikið við skáldgyðjuna á kostnað minn. Er sú framleiðsla fallin í gleymsku, enda tæplega prenthæf. Getur verið að Guðmundi hafi

x

Símablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.