Símablaðið

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Símablaðið - 01.01.1950, Qupperneq 14

Símablaðið - 01.01.1950, Qupperneq 14
10 SlMABLAÐIÐ þótt vænlegt aÖ grípa til þessa rá'Ös til hömlunar aðsteÖjandi sjóveiki. FjórÖa nótt- in á útleið var þó sögulegust. NorÖan hvass- viÖri var á og sjór mjög úfinn. SkipiS valt mikið. Ég lá í koju minni í þilfarsklefa aftur á skipinu stjórnborÖsmegin, en Guðmund- ur var á verði í loftskeytaklefa. Allt í einu skellur hurðin upp með braki og brestum og inn um dyrnar fellur kolblár sjór, er færir mig þvi sem næst í kaf. Sem betur fór féll sjórinn aftur út um dyrnar, þegar skipið tók gagnstæða veltu, en hnéhár þröskuldur klefans var þó sem varnargarð- ur fyrir því, að sjór rynni allur út. Var þess vegna eftir alldjúpt stöðuvatn á gólfinu er gutlaði upp um veggi eftir veltum skipsins. Skömmu eftir að þessi atburður skeði kom Guðmundur af verði, en leizt ekki betur en það á blikuna, að hann hvarf aftur upp i loftskeytaklefann eftir að hafa gengiÖ rammbyggilega frá hurðinni og mér innilok- uðum eins og seiði í klakkistu. Brátt tók að birta af degi. Lægði þá storminn og slétti sjóinn. Strax og bjart var orðið tók- um við til óspilltra málanna, þurjusum klef- ann og komum öllu í samt lag. A8 því loknu rökuðum við okkur í fyrsta sinn síðan við stigum á skipsfjöl. Upp frá þessu bauð ég sjóveiki og sjógangi byrginn og lét aldrei yf- irbugast. Eftir þrettán daga útsiglingu kom- um við til hafnar í New York. Þar lágum við í næsta hálfan mánuð vegna hafnarverk- falls er stóð þar yfir. í New York þótti okk- ur, sem aldrei höfðum séð stærri borg en Reykjavík, stórkostlegt um aÖ litast. Hvert tækifæri sem gafst var notað til ferðalaga um borgina með viðkomum á skemmtistöð- um, eftir því sem lítil efni leyfðu. En það er önnur saga. Á heimleið vorum við sextán daga að meðtaldri tveggja daga viðdvöl í Halifax. Sjóveikin þjáði mig á ný fyrstu dagana, en brátt dró úr henni, þó að storma- samt væri, enda var Gullfoss fullhlaðinn og fór betur í sjó en á útleiÖ, með tómar lestar. Er við komum í kallfæri við Reykjavík- radio, skeði sá atburður er mér mun seint úr minni líða. Hvernig sem við kölluðum Reykjavíkradio, gátum við ekki heyrt neitt svar. Ekki var unnt að reyna tækin við skip, af þeim ástæðum, að engin skip, búin þráð- lausum tækjum, voru í okkar kallfæri. Við vorum, sem eðlilegt var, órólegir út af þessu, ekki sizt vegna þess, að okkur fannst liggja í loftinu að þetta væri okkur viðvaningunum að kenna. Var það einnig álit okkar að sú væri orsökin. Við kölluðum út seint og snemma með stuttu millibili. OXR de OZU. Biðjið Friðbjörn koma um borð strax og skipið kemur í höfn. Loks kom sá dagur að Gullfoss skreið inn á leguna. Brátt sást til tollbátsins. Tollþjón- ar komu um borð. Þá var það að viÖ beind- um þeirri spurningu til tollþjóns eins, hvort nokkuð hefði komið fyrir á loftskeytastiið- inni. Hann lét ekki standa á svarinu: „Loft- skeytastöðin er sprungin i loft upp“, en tók sig nú fljótt á aftur og kvað eldingu hafa slegið niður og eyðilagt senditækin, og stöð- in myndi óstarfhæf i bráð. Þó skömm sé frá aÖ segja, þá hefði mér ekki þótt aðrar fregnir ákjósanlegri eins og á stóð. Það upp- lýstist síðar að loftskeytastöðin hafði alltaf heyrt til okkar, aðeins ekki getað svarað, af ofangreindum orsökum. Þetta er mín fyrsta og að líkindum sú síð- asta ferð, sem starfandi loftskeytamaður á skipi. Hm. SLÉTTUBANDAVÍSA. Mætir Unndór sjaldan seinn, sífellt störfin vinnur. Kætir vini, aldrei einn, allra hugi finnur. Atl. Skrifuð á desemberreikning símastöðvar- innar í Grafarholti 1950, af B. B. Hver sem rýnir reikning minn ræða má svo gjarna: Hálftíræður hornkarlinn hefur flaskað þarna.

x

Símablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.