Símablaðið

Árgangur
Aðalrit:

Símablaðið - 01.01.1950, Blaðsíða 15

Símablaðið - 01.01.1950, Blaðsíða 15
SlMABLAÐlÐ 11 Olav E. Forherg iVoAAror min 11 intjar. Fyrir tæpum 80 árum, eÖa þann 22. nóv- ember 1871, fæddist þeim hjónum Turris Forberg kaupmanni og konu hans Ingeborg (f ædd Dahl), sem búsett voru í Maasþy, son- ur, sem var vatni ausinn og hlaut í skírn- inni nöfnin Olav Elias. Maasþy var lítið sjávarþorp i Vestur-Finnmörk i Noregi og þar stundaði faÖir Olavs verzlun, en Olav litli hjálpaÖi föður sínum á allan þann hátt sem honum var unnt og af þeim dugnaði, sem síðar átti eftir að verða svo frægur hér heima á íslandi. Stundum var hann innan- búðarpiltur hjá föður sínum, léttadrengur eða fékkst við fermingu og affermingu skipa. Þegar Olav náði 15 ára aldri, var hann sendur til Oslóar, sem þá var kölluð Krist- iania, til náms þar, og stundaði hann nám sitt af skyldurækni og alúð. Litlu síðar gerð- ist hann nnemandi við Riksteiegrafens Höye- re Telegrafskole, sem einkum stefndi að því að sérmennta nemendur sína í símamálum, og var Olav Forberg þar, sem og oftast í lífi sínu meðal hinna fremstu. Seinna varð Forberg símastjóri í Væbl- ungsnes og jafnframt hafði hann yfirum- sjón með línulagningum og línuviðgerðum í nágrenni stöðvar sinnar, einkum þó á há- fjöllum þar sem vandinn var mestur og traustið því dýrmætara. Olaf Forberg gift- ist 14. ágúst árið 1900 Jenny Olsen, símritara frá Vadsþy. Frú Forberg var fædd 8. ágúst i875- Urðu þau hjónin því fyrstu símritarar þessa lands og því brautryðjendur á því sviði hér á íslandi sem og fleirum. Hann var fyrsti forstjóri Landssímans, svo sem öllum er kunnugt. Þeim er þessar línur rit- ar, er það enn minnisstætt, hversu okkur hinum símriturunum þótti það ánægjulegt og eitthvað svo heimilislegt, þegar frú For- berg kom inn á ritsímastofuna, og maður hennar var staddur í embættiserindum á annarri ritsímastöð og sagði: „Maa jeg faa tala med manden min“, og það var ósvikin símritun sem framfór á milli þeirra hjóna. Olav E. Forberg. Þau voru prýðilegir símritarar bæði. En þetta var einungis innskot frá minni hálfu í sögu þeirra hjóna. Hér má telja, að rakin hafi verið í stuttu máli saga þeirra, eins og hún gerðist í Noregi. Söguþættirnir úr lífi Forbergs hér á ís- landi eru öllu kunnari. Skulu þeir þættir lít- illega raktir hér vegna hinnar yngri kyn- slóðar, sem nú starfar hjá Landssíma ís- lands og sem hefur aukist og margfaldast. Mun ég í því efni aðallega styðjast við Minn ingarrit það sem gefið var út 1926. Ókunn- ugir munu spyrja: „Því var rit þetta ekki gefið út þegar Landssíminn átti 25 ára af- mæli?“ Við þessu er því að svara, að For- berg hafði þá tekið þá veiki, sem hann, og þeir sem hann þekktu, vissu að honum yrði að aldurtila fyrir árið 1931. Var því minn- ingarritið og veizluhöldin 23. september 1926, jafnvel, eða öllu heldur viðurkenning og kveðja til þessa mikla brautryðjanda stofnunarinnar. Þegar loksins var ráðið að leggja sæsíma og landssíma um Island, að undangengnum miklum æsingum og rifrildi um þau mál bæði utanþings og innan (því auðvitað var „póli- tík“ hleypt inn í það eins og öll góð fram- faramál), var farið að svipast eftir manni til að taka að sér undirbúning og lagningu landlínunnar. Var því skrifað til Danmerk- ur og leitað þar trausts og ráða, því þaðan

x

Símablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.