Símablaðið

Årgang
Hovedpublikation:

Símablaðið - 01.01.1950, Side 17

Símablaðið - 01.01.1950, Side 17
SlMABLAÐlÐ 13 Talningavélin ViS íslendingar erum oft seinir til aS not- færa okkur vélatæknina, þó viS gætum spar- aS mikiS fé. Ekki væri þó vanþörf á aS fækka því fólki, sem skrifstofubákn rík- isins taka frá framleiSslunni, sé þaS hægt. Skal hér getiS slíkrar vélar, — sannkallaSr- ar undravélar, — sem t. d. er nú fariS aS nota á Hagstofunni í Kaupmannahöfn, og Hagstofan hér hefur einnig fengiS. Vélar þessar eru nefndar „hugsandi vél- ar, eSa réttara, þær kunna aS lesa. Skriftin, sem þær lesa, er ekki venjuleg skrift eSa prentmál, heldur göt á pappaspj öldum, og líta spjöldin út, eins og sýnt er hér á eftir. Eins og sést á myndinni, eru á spjöldun- um eintómar láréttar talnaraSir frá o og upp í 9 og er spjaldinu skipt niSur í mismun- andi dálka. Hver dálkur hefur sína þýSingu og er gerSur í samræmi viS upplýsingar þær, er ætlast er til aS festa á spjaldiS, og er þetta gert í smávél, sem heggur göt í spjöldin. Hver upplýsing, sem geymast á á spjald- inu, verSur breytt í ákveSna „code“-tölu, þannig aS ef t. d. á aS segja frá, aS fæSing- arstaSur einhvers manns sé Reykjavík, verS- ur sú borg látin hafa númer, og er þá þetta númer slegiS í gegn á spjaldinu, í þeim dálki er táknar fæSingarstaS. í grein í „Politiken" er sagt frá notkun vélanna í sambandi viS skýrslugerSir viSvíkj- andi nýloknu manntali, og verSa nú allar þær upplýsingar, sem ein og hálf milljón — undratæki. fjölskyldur hafa látiS í té, ,,gataSar“ á spjöld og verSa undravélarnar síSan látnar vinna skýrslur úr þessum gögnum. Þetta er gert þannig, aS spjöldin eru fyrst látin fara gegnum aSgreiningarvél, sem skilar 25.000 spjöldum á klukkustund. Vélina er hægt aS innstilla þannig, aS þó spjöldin séu látin í hana í einum hrærigraut. verSa þau aSgreind, t. d. spjöld karla og kvenna, eSa eftir aldursflokkum, atvinnu, fæSingarstaS o. s. frv. Vélin vinnur þannig, aS spjöldin eru látin renna á milli rafmagnaSra valsa og fíngerSra málmbursta, og er hægt aS stilla burstana þannig, aS þegar þeir snerta vals gegnum ákveSiS gat í spjaldi, myndist rafmagnssam- band, og spjaldinu verSur kastaS út í hliS- arvasa, um leiS og þaS verSur upp taliS. Spjöld, sem ekki hafa þetta gat, halda áfram gegnum vélina. Þegar nú er búiS aS aSgreina spjöldin í vissa flokka, eru þau látin fara gegnum aSra vél, sem getur lesiS og prentaS á pappír þær upplýsingar, sem óskaS er um ákveSinn flokk. , ÞaS má t. d. láta spjöld allra giftra manna í vélina, og getur hún þá samtímis gefiS upp- lýsingar um aldur barna, hve lengi hjóna- bandiS hefur staSiS o. s. frv., og aS lokum skilar hún niSurstöSutölum þessara upplýs- inga fyrir allan flokkinn. Af því sem hér hefur veriS sagt, ætti þaS

x

Símablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.