Símablaðið

Árgangur
Main publication:

Símablaðið - 01.01.1950, Síða 18

Símablaðið - 01.01.1950, Síða 18
14 SlMABLAÐlÐ VINNUGLEÐI. ÁriS 1899 tók ungur amerikumaður, Willoughby M. McCormick, á leigu lítið húsnæði og hóf framleiðslu á kryddvörum og bragðbætisefnum. Að 28 árum liðnum hafði fyrirtækið eignast stórar verksmiðjur í Baltimore og velti miljónum dollara ár- lega. Það verður ekki sagt honum til lofs að hann hafi verið góður atvinnuveitandi, því að hann leit á starfsfólk sitt eins og hverja aðra verzlunarvöru og yrði einhverj- um það á að vera honum ekki sammála og láta álit sitt í ljós, þá mátti sá hinn sam: ganga að því vísu, að verða samstundis rekinn. Það var aðeins einn starfsmannanna, sem þorði að andmæla honum og það var bróðursonur hans, Charles P. McCormick. Hann hafði byrjað starf sitt sem skrifstofu- nemi, og hafði unnið sig upp í gegn um allar deildir fyrirtækisins. Á þessu tímabili rak frændi hans hann sjö sinnum, en réði hann alltaf aftur vegna þess hve honum þótti hann tillögugóður. Árið 1932 fór að harðna í ári hjá McCor- mick & Co., og fyrirtækið varð fyrir þung- um áföllum. Heimskreppan var í algleym- ingi, en hún út af fyrir sig virtist ekki vera aðalorsökin í óförum fyrirtækisins. Charles McCormick hélt því fram, að starfsfólkið hefði misst kjarkinn; það bar sáralítið úr býtum og lifði í stöðugum ótta við atvinnu- missi. Þriðjungur starfsfólksins hætti störf- um eða var sagt upp á hverju ári vegna sí- felldra deilna og ósamkomulags, og fyrir- tækið hafði árlega stórútgjöld af því að æfa nýja menn til starfa. Gamli McCormick brýndi fyrir starfsfólkinu að herða á sultar- ólinni, og smám saman lækkaði hann launin um 25%. Dag nokkurn kallaði hann bróð- urson sinn á fund sinn og tjáði honum að nauðsynlegt væri að lækka launin ennþá um 10%. Það var árangurslaust fyrir unga McCormick að malda í móinn; en áður en honum vannst tími til þess að tilkynna launa- lækkunina, fékk gamli McCormick hjarta- slag og dó. Á stjórnarfundi fyrirtækisins var Charles McCormick kosinn framkvæmd- arstjóri og aðeins 36 ára gömlum hafði honum verið fengið það erfiða hlutverk að koma fótunum undir hið fallandi fyrirtæki. Fyrsta verk hans var að halda fund með starfsmönnum fyrirtækisins, 500 að tölu. Hann tilkynnti þeim, að fyrirtækið væri á barmi gjaldþrots; eina lausnin væri að auka og bæta framleiðsluna, en honum væri það ljóst, að því marki yrði ekki náð með lágum launum og löngum vinnutíma. Hann hefði því ákveðið að hækka launin um 10% og að stytta vinnutímann úr 48 stundum í 44 stundir á viku. Héðan af mundi hagur hvers einstaks starfsmanns vera nátengdur hag fyrirtækisins. Þetta skeði árið 1932, þegar launalækkanir og atvinnuleysi lá eins að vera ljóst, að með slíkum vélum má vinna ýmis verk á mjög stuttum tíma, sem annars tæki ár, og fela megi þeim verkefni, sem annars væri látin óunnin vegna vöntunaar á vinnukrafti, fé til framkvæmda o. þ. h. Nú vill svo til, að vélakostur þessi er til hér á landi, á Hagstofu Islands, og væri það kannski ekki úr vegi fyrir Landssímann að grennslast eftir, hvort hægt væri að ein- hverju leyti að fá afnot af þessum tækjum. Þess skal getið, að aðeins 5 stúlkur vinna að því að „gata“ inn á spjöldin allar þær upplýsingar, sem gefnar hafa verið við manntalið í Danmörku, sem vél þessi er látin vinna úr. Af þessu má sjá, að Landssímanum ætti að nægja að láta eina stúlku vinna að því í hjáverkum að festa á spjöld þær upplýs- ingar, sem til greina gæti komið að láta vinna skýrslur úr, eins og t. d. kaupgreiðslur. efniskaup, birgðanotkun o. m. fl. Sem dæmi skal nefnt, að með þessu móti mundi, með tilliti til skattaframtals, vera hægt að fá uppgefið árskaup hvers starfs- manns hjá Landssímanum á fáeinum klukku- stundum í stað allrar þeirrar vinnu sem það kostar nú. Að lokum skal þess getið, að spjald það, sem sett hefur verið hér til skýringar, er spjald Friðriks Danakonungs, eins og það mun líta út samkvæmt skýrslu þeirri, er hann hefur gefið til manntalsins, B. B.

x

Símablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.