Símablaðið

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Símablaðið - 01.01.1950, Qupperneq 20

Símablaðið - 01.01.1950, Qupperneq 20
16 SÍMABLAÐIÐ Charles McCormick hefur óbilandi trú á, að „fjölstjórn“ geti leyst erfiðustu vanda- mál á milli atvinnuveitenda og launþega. Hann heldur því fram, að starfsfólkið eigi ekki aðeins að fylgjast með og vita um hag fyrirtækisins, heldur eigi það einnig að hafa tillögurétt um stjórn þess, og að því beri laun í samræmi við tekjuafgang þann, sem það hefur átt sinn þátt í að skapa með dugnaði sínum og hugvitssemi. Keppa beri að því að launþegarnir geri sér Ijóst að hag- ur fyrirtækisins er þeirra hagur, og að þeir í staðinn hljóti verðskuldaðan hluta hagn- aðarins. APPENDIX. Þórhallur er að þýða grein, þýða grein úr dönsku. Leikur á kostum listin hrein líkt eins og væri úr spönsku. Þórhallur er að þýða grein, þýða grein úr dönsku. Efni hennar er ekki þekkt á Islandi, því er miður. Þar einræði finnst í fullri mekt sem er forn og glænýr siður. Efni hennar er ekki þekkt á íslandi, því er miður: Fyrirtækið er „fallit“ senn, er framsýni og vizka þrjóta. En því að stjórna þurfa menn sem þrákelkni vanans brjóta. Því fyrirtækið er „fallit“ senn, er framsýni og vizka þrjóta. Sá gamli var stöðugt að lækka laun, hans leið var: alltaf að spara. Óánægja óx og raun og allir voru að fara. Því sá gamli var stöðugt að lækka laun, hans leið var: alltaf að spara. En efling þess hófst fyrst upp frá því að allir hættu að spara. Hækkuð laun og lengd voru frí, þá leið var nú reynt að fara. Og efling þess hófst fyrst upp frá þvi að allir hættu að spara. Minningar línumans. Loksins vorum við þá komnir upp á fjallsbrúnina, kófsveittir í brennandi sól- skini, föstudaginn 18. sept. 1920. Við þeyttum af okkur stauraskóm, talíu og vír- hönkum og tylltum okkur á sólbakaðan grá- mosann. Svalur sunnan andvari þerraði brátt svit- ann af andlitum okkar og veitti okkur hress- andi svala í blóðið, sem brann af áfengis- þorsta. Já, við höfðum nefnilega „lent á því“ kvöldinu áður, af því okkur fannst við verða að gera okkur svolítinn dagamun, þegar við komum í kaupstað. Ómögulegt reyndist að fá áfengi á Skutulseyri um þess- ar mundir, enda vínbann um allt land og allir áfengissmyglarar í höfuðstaðnum. Ein- um okkar datt i hug að leita á náðir Þór- halls stöðvarstjóra og kom betlarinn þaðan aftur með vel útilátna hálfflösku af brenni- víni og var það aleiga hans. Þessi hálf- flaska hefði nú ekki orkað svo afgerandi á heilsufar okkar eins og raun varð á, ef við hefðum ekki verið svo „heppnir“ að finna litla sölubúð sem seldi Kínalífselexir og kökudropa. Já, þeir sem vildu gleðja sig í bakkusi, gátu á þeim árum búist við hon- um i ýmsum myndum, sumir fullyrtu jafn- vel að hann fyndist í skósvertu. Við lögðumst endilangir á mosann og hvíldum lúna limi. Það hvílir hugann, að láta reika til baka til liðins tíma. Ég fór að hugsa um upphaf þessarar ferðar, þeg- ar Björnæs kom eitt kvöldið inn í tjaldið til mín, og tilkynnti mér að ég ætti að fara með tveimur félögum mínum í línuviðgerð frá Grund í Skorradal vestur á Isafjörð. Ferðahugurinn og eftirvæfl'tingin hélt fyr- ir mér vöku alla nóttina, og dreif mig á fætur fyrir allar aldir morguninn eftir, og Og forstjórinn þarf að fá sér vit hjá fólkinu, sem þar starfar. Til þess að minnka mæðu og strit og margfalda gjörðir þarfar, má forstjórinn til með að fá sér vit hjá fólkinu, sem þar starfar. U. J.

x

Símablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.