Símablaðið - 01.01.1950, Side 25
S 1 M A B L A Ð I Ð
21
Árni Árnason.
an, sumarið 1928 vann hann á loftskeyta-
stöðinni í Reykjavik.
Símritun nam hann í Eyjum hjá þáver-
andi stöðvarstjóra, A. L. Petersen Ingeniör,
var skipaður símritari 1. febr. 1921, og er
starfstíminn hjá L I. farinn að halla á fjórða
tuginn.
Símritararnir í Vestmannaeyjum hafa auk
ritsímaafgreiðslunnar einnig á hendi loft-
skeytaafgreiðsluna við skipin — við loft-
skeytaafgreiðsluna var Addi á sinni réttu
hillu. Mun leitun á annarri eins leikni á
„lykilinn“ og hann hefur yfir að ráða. Kom
það sér oft vel og reyndi á það áður en tal-
stöðvarnar komu til sögunnar, sérstaklega
þó þegar sæsímaslit voru við Eyjar, og öll
afgreiðsla við „meginlandið“ fór fram í
skeytum loftleiðis. Man ég það, nokkru eft-
ir að Bretar hernámu landið og „sensorar"
voru í Eyjum, að þeir höfðu orð á því hvað
afgreiðslan við Tfa væri einkar lipur, enda
hafa sagt mér kollegar hans í Gufunesi, sem
afgreiddu við Vestm. í sæsímaslitum, að
ekki væri „gamli" maðurinn farinn að tapa
sér á lykilinn, þar væri sent með sama
snilldarbragnum og áður — og pse rpt
þekktist ekki í hans bók.
Árni er bókamaður mikill, og á einkar
létt með að skrifa, ættfróður er hann mjög,
lausavísur, sögur og kvæði hafa birzt eftir
hann, og margt á hann í posahorninu sem
einungis þeir kunnugustu hafa fengið aö
líta yfir á góðri stund.
Guðmunda Olafsdóttii
séwatu- utj póstuffjreiðslu-
kowwu ww Setfossw.
Dánarminning
Guðmunda var 59 ára, er hún lézt hinn
20. ágúst 1950. Hún var fædd 23. apríl
1891 að Kolsholti í Flóa. Foreldrar hennar
voru þau Sigríður Guðmundsdóttir og fyrri
maður hennar, Ólafur Jónsson í Kolsholti.
Til 17 ára aldurs ólst hún upp hjá móður
sinni og stjúpa, Gísla Lafranssyni að Björk
í Flóa, en föður sinn missti hún, er hún
var 5 ára.
17 ára gömul fer hún að Hvítárvöllum á
rjómabússtýruskóla, sem Hans Grönfelt
hélt þar þá. Mun þar strax hafa verið veitt
eftirtekt hinum góðu hæfileikum hennar,
Hann er giftur Katrínu Árnadóttur frá
Ásgarði í Vestmannaeyjum. Hefur hún sem
eiginkona og góð húsmóðir átt sinn þátt í
því að gera heimili þeirra vistlegt og hlýlegt.
Eina dóttur eiga þau uppkomna, vinnur hún
á símastöðinni í Eyjum.
Ég þakka þér Addi fyrir ákaflega gott
og skemmtilegt 20 ára samstarf — og óska
þér og þínum í tilefni þessara tímamóta alls
hins bezta á komandi árum. M. J.