Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2005, Síða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2005, Síða 24
24 LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 2005 Helgarblað DV Um miðjan október birtist Helgarblaðsviðtal við Ólöfu Jónsdóttur sem var misnotuð sem unglingsstúlka og ól tvíbura aðeins fimmtán ára gömul. Ólöf segir viðtalið hafa leyst sig úr viðjum lyginnar, hún finni gríðarlegan stuðning meðal vina og kunningja, sé líkust útsprunginni rós. í dag ætlar Ólöf að sýna hvers hún er megnug á tískusýningu þar sem hún mun klæðast eggjandi undirfötum. Ólöf Jónsdóttir á dreglinum Kemur til dyranna eins og húnerktxdd. Erfiö aeska Viðtal við Ólöfu sló þjóð- ina enda mikill harmursem Ólöf gekk i gegnum. frelsandi jalningar viðtal vralwgfrábt&rtoðfamúti þettou í gegmm tíðim htfég orötö fyrirmiktu aðkasti* \far s«*n iingw kðiluð tvibumsmikm @§ i §t§mm mim imfar meðmi oð þ®fa m§§ji w é §étiðm0i» Ntitiék é§ cfcltf $m$®s úm §ðt®m& spmngfaqtíjfa ®§ fféi nð vwg jp |mþM- -f.: V: fm V' /' I u-.J \rm . /,?J|.í - v • ■M" 11. sgíi „Ég var rosalega tætt eftir viðtalið. Það tók á að segja íslensku þjóðinni sögu mína,“ segir Ólöf Jónsdóttir sem var misnotuð á unglingsaldri og ól tvíbura aðeins fimmtán ára gömul. Viðtal við Ólöfu í Helgarblaði DV sló þjóðina enda miklar hörmungar sem þessi unga stúlka gekk í gegnum. Nú sér hún fram á bjartari tíð og ætlar að sýna þjóðinni aðra hlið á sér þegar hún tekur þátt í undirfatatískusýningu í kvöld. „Daginn sem blaðið kom út byijaði síminn minn að hringja. Hann stoppaði ekki í viku og all- ir sem töluðu við mig veittu mér stuðning og sögðu mig hafa tekið rétta ákvörðun með að hleypa sannleikanum fram í dagsljósið." Hinn mikli stuðningur sem Ólöf fann fýrir gerði það að verkum að hún ákvað að endurvekja fyrir- sætuferil sinn. Sýnir undirföt „Meira að segja yfirmaðurinn þar sem ég vinn á laugardagskvöldum kom til mín og tók utan um mig. Mér fannst þessi reynsla hreinsa mig og lang- ar að senda þakklæti til þessa fólks sem stoppaði mig úti í búð og hjálpaði mér," segir Ólöf sem í kjölfarið fékk óvænt símtal. „Hún hringdi frá und- irfatabúðinni Ynja og spurði hvort ég treysti mér til að taka þátt í sýningu. Ég ákvað að slá til. Mig langar að fólk sjái að ég sé að rísa upp. Nú er for- tfðin að baki og framtíðin er björt." Nauðgað sem unglingi f viðtalinu við Ólöfu kom fram að henni hefði verið nauðgað aðeins fjórtán ára gamalli. í kjölfar- ið varð hún ólétt og var lögð inn á spítala. í ljós kom að hún gekk með tvíbura. Bamavemdar- nefnd kom inn í málið og eftir að Ólöf fæddi tvf- burana vom þeir teknir af henni og settir í fóstur. Ólöf þurfti að horfa á eftir bömum sínum, sjálf á bamsaldri, ófær um að koma við mótmælum. Þessi atburður markaði líf hennar sem átti eftir að leikaólöfu grátt á endanum. Hún giftist manni sem beitti hana andlegu og líkamlegu ofbeldi. Með manninum eignaðist Ólöf tvö böm. Fékk ekki hjálp „Ég hefði þurft hjálp strax þegar ég var bam, ekki síst eftir að ég eignaðist tvíburana mína. Ég vona að fólk fari að vakna tíl umhugsunar um hvað það er margt sem miður fer í kringum okkur og hvað margar íjölskyldur þjást. Ofbeldi er fjöl- skyldúsjúkdómtu sem sýkir allt samfélagið, þess vegna mega þessir hlutir ekki vera feimnismál," sagði Ólöf í viðtali þar sem hún dró ekkert undan. Sagðist eiga þá ósk heitasta að dætur hennar þyrftu ekki að upplifa sama sársauka og hún. Hlakkar til Tískusýning Ólafar hefst í kvöld og finnur þessi ótrúlega kona til mikillar tilhlökkunar. „Það er al- veg frábært að fara út í þetta. í gegnum tíðina hef ég orðið fyrir miklu aðkastí. Var sem unglingur kölluð tvíburamellan og í gegnum tíðina hefur maður þurft að þola augngotur frá öðrum konum á götum útí. Nú tek ég ekki eftir þessu. Geng stolt um götumar. Er sprungin út eins og rós að vori." simon@dv.is Fer á hestbak með i / v sJ sj 'JiiJ „Um helgina ætla ég út í sveit með krakkana," segir Gustavo Blanco sem á tvo gullfallega krakka, Birtu átta ára og Kristófer sex ára. Gustavo þykir gaman að gera eitthvað öðruvísi með böm- unum og ætlar að leyfa þeim að fara á hestbak og njóta náttúrunn- ar. Hann segir fínt að brjóta upp formið þó hefðirnar séu mikilvæg- ar. „Ég held fast í það að gefa þeim nammi á laugardögum. Finnst það mjög góð regla. Ég fékk sjálfur ekki nammi á laugardögum þegar ég var lítill en ákvað að leyfa börnunum mínum að njóta þessa munaðar. Þetta gerir það líka að verkum að maður getur verið ákveðinn með Gustavo Blanco með Birtu og Kristófer Á leið i hestaferð um helqina. að þau fái ekkert nammi eða kók á öðrum dögum. Laugardagarnir eru nammidagar," segir Gustavo ákveðinn. Gustavo segist bralla ýmislegt með börnunum. Þau séu mikið fyr- ir að fara í húsdýragarðinn „...eins og ábyggilega allir aðrir krakkar á þessum aldri", segir Gustavo sem um helgina gerir þó eitthvað nýtt. „Stefnan er sett á Eyrarbakka, rétt hjá fangelsinu. Fjölskylda vinar míns á þar nokkra hesta og við ætl- um að njóta þess að vera úti um helgina. Krakkarnir eru ekkert hræddir við hestana. Hafa áður far- ið á bak. Þau eru gullmolarnir í lífi mínu og ég hlakka alltaf til þeirra stunda sem við eigum saman."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.