Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2005, Síða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2005, Síða 15
r PV FÖSTUDAGUR11. NÓVEMBER 2005 j j Sameinast gegn Windows Þrír stærstu framleið- endur raftækja, Philips, Sony og IBM, hafa tekið höndum saman með tveimur stærstu dreifingar- aðilum Linux-hugbúnaðar og hyggjast stofna fyrirtæki til gjaldfrjálsrar dreifingar á honum. Forgangsverkefni hins nýja fyrirtækis er að koma böndum á höfundar- réttarreglur varðandi hug- búnaðinn. Takist það er talið að Microsoft eignist stóran samkeppnisaðila sem muni jafnvel ná for- skoti á markaði vegna lágs kostnaðar notenda. Minnst 30 manns létust og 20 særðust í sjálfs- morðssprengjuárás á veit- ingastað í Bagdad í gær- morgun. Veitingastaðurinn er vinsæll meðal lögreglu- manna og öryggisvarða. Maður með sprengjur um sig miðjan gekk inn á veit- ingastaðinn árla morguns og sprengdi sjálfan sig í loft upp. Sprengjan var að sögn sérfræðinga ein sú öflug- asta sem notuð hefur verið í svona árás, enda heyrðist sprengjudynurinn í margra kílómetra fjarlægð. Bandaríkin í mínus Viðskiptahalli Bandaríkjanna hefur aldrei verið meiri en í sept- ember, því sem nemur rúmlega fjögur þús- und milljörðum króna. Hall- inn er að miklu leyti rakinn til þeirra fellibylja sem farið hafa yfir Bandaríkin undan- farið, þá aðallega Katrínar sem olli mikilli hækkun oh'u- verðs. Viðskiptahalli við Kína náði einnig hámarki á sama tíma. Hallinn óx um 11,2% á milli mánaðanna ágúst og september. Ljóst er að Ben S. Bemanke, nýr seðlabankastjóri Bandaríkj- anna, stendur frammi fyrir miklum vanda vegna þessa. Heimsmet 777 — Boeing 777-200- þota lenti á Heathrow í London um klukkan hálftvö í gær eftir velheppnað 23 klukku- stunda flug frá Hong Kong. Heimsmet var sett í fluginu fyrir lengstu vegalengd sem farþegaþota hefur flogið án millilendingar, alls um 20.300 kílómetra. Ferðalag- ið gekk einstaklega vel, sér- staklega vegna sterks með- vinds sem minnkaði elds- neytiseyðslu til muna. Breskir þingmenn mótmæla frumvarpi um aukin völd lögreglu Blair rær lífróður á breska þinginu Tony Blair forsætisráðherra er ekki í góðum málum á breska þing- inu. Frumvarp til laga um aukin völd til handa lögreglu í baráttu gegn hryðjuverkum mætti harðri andspyrnu þingmanna og var fellt á endanum. Margir þingmenn Verka- mannaflokksins mæltu gegn frum- varpinu og því hafa vaknað spurn- ingar um pólitíska framtíð Blairs. Frumvarpið lagði Blair fram í kjöl- far hryðjuverkaárásanna í London þann 7. júlí síðastliðinn. Frumvarpið átti að heimila lögreglu að halda grunuðum hryðjuverkamönnum í allt að 90 daga án ákæru. Nú er heim- ilt að halda þeim í 14 daga. „Svartasti dagur Blairs" og „Á leið út“ voru meðal fyrirsagna breskra blaða í gær. Blair viðurkennir sjálfur að þetta séu erfiðir tímar. „Ég held að þetta sé ekki spurning um völd mín, en auðvitað hefði ég frekar viljað sigra en tapa," segir Blair sem átti líka erfitt í síðustu viku þegar einn aðal- ráðherra hans, Ðavid Blunkett, sagði af sér í annað sinn úr ríkis- stjórn hans. Hann lýsti yfir á síðasta ári að hann muni ekki bjóða sig fram aft- ur. Stjórnmálaskýrendur segja að hann muni eiga erfitt uppdráttar á næstunni með fylgi áætlana sinna á sviði heilbrigðis-, mennta- og vel- anríkismál orðið honum erfiður ferðarmála. Aukinheldur gætu ut- hjalli. ú

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.