Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.2005, Page 8
8 MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 2005
Fréttir DV
k'iin fynnækisl
Krunisýning Skuggalwn
Fjölmiðlasj
Kvöldmjaltir
á Dögum
myrkurs
Dagar myrk-
urs verða haldnir
íFjarðabyggð 17.
til 20. nóvember.
„Verður boðið
upp á fjölbreytta
dagskrá um allt Austurland.
Meðal þess sem verður á
dagskrá í Fjarðabyggð er
Bflabíó og ástareldur á
Mjóeyrinni, kvöldmjaltir í
Seldal og lifandi hand-
verkssýning í Valhöll," segir
á fjardabyggd.is. Dagskrána
má sjá nánar á bls. 24-25.
Platfyrirtækið Langlífisstofa íslands var sett á laggirnar til að framkvæma rann-
sóknir á omega-3 lýsi. Gæðastimpill fyrirtækisins hefur verið settur á lýsistöflur
sem seldar eru í Bandaríkjunum án þess að nokkrar rannsóknir hafi verið gerðar.
Ný sumarhús
á Þingvöllum
Til stendur að reisa 26
frístundahús í túninu á
Skálabrekku við Þingvalla-
vatn. Níu eigendur annarra
sumarhúsa þar í kring hafa
sent inn athugasemdir við
þessi áform og sveitarstjórn
frestaði á síðasta fundi sín-
um að afgreiða tillögu um
deiliskipulag fyrir nýju húsin
þar til aðalskipulag er stað-
fest. Lóðimar eiga að vera á
bilinu 5.900 til 22.700 fer-
metrar að stærð. Nágrannar
bentu meðal annars á að
gert sé ráð fyrir 20 lóðum í
skilmálum en að lóðir séu í
raun 26. Einnig að ein lóð
nái til lands sem gildur
leigusamningur nái til.
Bændahátfð á
Ströndum
Bændahátíðin á Strönd-
um sem blásin var af á dög-
unum vegna ótryggs veður-
útlits er nú aftur komin á
dagskrá. Að því er segir á
strandir.is er það Sauðijár-
setrið sem stendur fyrir
þessari árlegu hátíð og verð-
ur hún í Sævangi „laugar-
dagskvöldið 19. nóvember í
blíðskaparveðri" eins og
segir á Strandavefnum. „Á
bændahátíð verður að venju
margt til skemmtunar, þaul-
æfð og fjölbreytt skemmti-
atriði, ræðumaður sem
kemur á óvart, dýrindis
grilluð lambasteik og dansi-
ball á eftir þar sem Gunn-
laugur Bjarnason og Sigríður
Óladóttir spila og syngja."
KfSSSSS
Vlnav nvft k'l Zeam vóru en W________________■■ I !■! I ffFHIÍ
DV 14. nóvember
htnnn Cunn*rs*oii.' f.[K,kkj,r bTirfyr'm'Íkírt
alvarleg Iðgbrot að npöa
Mark Stenberg, stjómarformaður Iceland Health, vísar því á bug
í bréfi til DV að nokkuð athugavert sé við markaðssetningu fyrir-
tækisins á íslenskum omega-3 lýsistöflum sem Lýsi hf. framleið-
ir og pakkar fýrir Iceland Health.
væri settur á vörur fyrirtækisins.
Hann vísaði þvf samt á bug að um
svindl væri að ræða.
MAWMUM
stwfsom
OMtCA-5
Johannes Gunnars-
son Formaður Neyt-
endasamtakanna ætl-
araðtilkynna hátta-
lagið til kollega sinna i
Bandarikjunum.
Eins og DV hefur greint frá und-
anfarna daga er að finna gæðastimp-
il platstofnunar sem gefið hefur verið
nafnið Langlífisstofa fslands á um-
búðum omega-3 lýsistaflnanna.
Lýsistöflurnar eru framleiddar hér
á landi og þeim pakkað af Lýsi hf.
Forsvarsmenn Lýsis firra sig ábyrgð
og segjast enga ábyrgð bera á merk-
ingum vörunar fyrir utan innihalds-
lýsingar. Katrín Pétursdóttir hefur
sagt í DV að hún hafi fengið rangar
upplýsingar frá Iceland Health vegna
málsins og hyggst krefjast svara. Þrátt
fyrir fullyrðingar Lýsis um að fyrir-
tækið tengist Iceland Health ekki á
nokkum hátt, fyrir utan að selja því
vöru sem Iceland Health selur svo í
Bandaríkjunum, sér Lýsi hf. ástæðu
til þess að birta á heimasíðu sinni yf-
irlýsingu ffá ánægðum viðskiptavini
Iceland Health.
Rannsóknarstofnun án rann-
sókna
Mark Stenberg segir að tilgangur-
inn með stofnun Langlífisstofu ís-
lands hafi verið að hvetja til frekari
rannsókna á áhrifum omega-3, sem
og að koma á framfæri rannsóknar-
niðurstöðum annarra. Það sé eðlileg-
ur og alkunna siður í Bandaríkjunum
að koma á fót slíkum stofnunum til
að styðja við markaðssetningu á vör-
um. Því miður hafi enn ekki náðst að
koma rannsóknarstarfseminni í gang
en það sé á teikniborðinu. Hann vildi
ekki svara því til hvers vegna gæða-
stimpill íslenskrar stofnunar, sem
engar rannsóknir hafi framkvæmt,
Svarar engu um svindlið
Sölufulltrúar sem annast sölu
hinna íslensku omega-3 taflna sem
framleiddar em af Lýsi hf. fyrir
Iceland Health hafa fullyrt við blaða-
mann að Langlífisstofa sé fjármögn-
uð af ríkisstjórn fslands. Það mun
ekki vera rétt. Á heimasíðu Langlífis-
stofu, sem lokað var skömmu eftir að
DV fór að spyijast fyrir um fyrirtækið,
var að finna mynd af Háskóla íslands,
líkt og tengsl væm á milli Langlífis-
stofu og Háskólans en þau em ekki til
staðar. Þar að auki var forstjóri Lang-
lífisstofu sagður á sömu heimasíðu
dr. Jón Pétur Sigurðsson. Eini maður-
inn með því nafni á Islandi sór af sér
öll tengsl við fyrirtækið í samtali við
DV. Fullyrti að hann hafi aldrei heyrt
þess getið áður. Mark
Stenberg vildi ekki
svara spumingum
varðandi þessi atriði
í gær.
Heimasíðu
Langlífisstofu, sem
lokað var skömmu
eftir að DV fór að
grennslast fyrir um
málið, átti að opna í
gær samkvæmt til-
kynningu sem þar
var að finna. Hún var
enn lokuð þegar DV
fór í prentun í gær.
andri@dv.is
lceland Health Stjórnarfor-
maður fyrirtækisins segir ekk-
er athugavert við málið.
Industria á Irlandi
íslendingar tæknivæða írland
Upplýsingatæknifyrirtækið
Industria hefur samið um uppbygg-
ingu breiðbandskerfis fyrir stafrænt
sjónvarp á írlandi. Samningur um
verkið var undirritaður í gær. Verk-
efnið er hið stærsta sinnar tegundar
sem Industria hefur tekið að sér og
hleypur á milljörðum króna.
Einn aðaleigenda Industria er
Guðjón Már Guðjónsson sem var
áður kenndur við Oz. Hann telur
þetta mikla viðurkenningu fyrir þá
vinnu sem starfsfólk félagsins hefitr
Hvaö liggur á?
lagt á sig undanfarin ár og f sam-
ræmi við stefnu félagsins um að
verða leiðandi á sínu sviði í Evrópu.
Samið var við fyrirtækið Magnet
Networks sem er í eigu Columbia
Ventures, fyrirtækis Kenneths Peter-
sons sem er íslendingum vel kunn-
ur. Hann hefur áður fjárfest í Og
Vodafone og Norðuráli svo eitthvað
sé nefnt.
Samningurinn felur í sér að
Industria tekur að sér uppbyggingu
breiðbandskerfis Magnet frá grunni
fyrir stafrænt sjónvarp, símaþjón-
1
■BHpífe j
■'<'ðK -
fe
IKenneth Peterson og Guðjón
Már Semja um uppbyggingu
breiðbandskerfis á frlandi.
„Það liggur á að hlusta á allar plöturnar sem eru að koma út fyrir jólin," segir Guðni
Már Henningsson, einn umsjónarmanna Popplands á Rás 2.„Það er þvilíkt ógrynni af
efni sem kemur út núna og ég þarfað nýta allan mögulegan og ómögulegan tíma til
að hlusta. Ég hlusta á tónlist í vinnunni, í bílnum og jafnvel þegar ég sef. Þettá er í
undirmeðvitundinni altan sótarhringinn."
ustu og háhraðanetþjónustu á írska
markaðnum. Fyrst um sinn verður
lögð áhersla á uppbyggingu kerfis-
ins í Dublin og nágrenni. Um er að
ræða stærsta útflutningsverkefni á
þessu sviði sem íslenskt fyrirtæki
hefur tekið þátt í, en samningurinn
sem nú hefur verið gerður býður
ennfremur upp á frekari uppbygg-
ingu og auknar tekjur.
Saga Garða-
bæjar skrifuð
Bæjarráð Garðabæjar sam-
þykkti á fundi sfnum í gær til-
lögu ritnefndar að ráða Steinar J.
Lúðvíksson til að annast ritun á
sögu Garðabæjar. Bæjarstjóra
var falin frekari afgreiðsla máls-
ins en að öðru leyti var bréfi rit-
nefndar vísað til afgreiðslu við
gerð fjárhagsáætlunar. Steinar er
búsettur í Garðabæ og hefur
meðal annars skrifað bókina Á
vaktinni, sem er ævisaga Hann-
esar Þ. Hafstein sem var lands-
þekktur fyrir störf sín fyrir Slysa-
varnafélags Islands.
Segist ekki vera svindlari