Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.2005, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.2005, Blaðsíða 28
28 MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 2005 Lífið DV Leyfirengum að snertalpple Gwyneth Paltrow leyfir engum að snerta barnið sitt, hana Apple, án þess að þeir séu búnir að þvo sér vel um hendurnar á undan. Stjarnan sem er gift popparanum Chris Martin úr hljómsveitinni Coldplay, er svo hrædd við sýkla að hún leyfir engum að koma nálægt Apple nema þeir séu búnir að skrúbba á sér hendurnar upp úr sérstakri sápu. „Hún hefur alitaf verið með hreinlæti á heilanum en aldrei eins og nú," segja vinir leikkon- unnar. Það hefur einnig komið fram að stjarnan sé svo hrædd við bakteríur að hún noti aldrei almenn- ingsklósett, taki með sér sinn eigin hár- bursta á hárgreiðslu- stofuna og skrúbbi baðkörin á hótelum sem hún dvelur á áður en hún notar þau. Vill hafa leik- fangadrengina Dúndurgellan Kim Cattrall sem flest- ir þekkja sem hina kynóðu Samönt- hu Jones úr þáttunum Beðmál i borginni, segist helst vilja sofa hjá ungum mönnum. j Hún segir leikfangadreng- . * ina sina ungu, eins og hún kallar þá, afar hentuga 111 elskhuga því þeir viti ekki alveg hvernig þeir eigi að bera sig að og leyfi henni að sjá um aðalatriðin. Leikkonan sem nú er orðin 49 ára gömul segir ‘ aldurinn ekkert draga úr kynhvötinni heldur þvert á móti. „Þeir vilja svo gjarn- an standa sig og eru tilbúnir að gera nærri hvað sem er," segir Kim sem nú er (sam- bandi við matráðsmann en hann er aðeins 22 ára. Guðbjörg Gissurardóttir er framkvæmdastjóri Hönnunardaga sem verða í Laugar- dagshöll helgina 17.- 20. nóvember. Hún telur íslenska hönnun vera að sækja í sig veðrið og telur að fyrirtæki ættu að leita til hönnuða í auknum mæli til að koma vörum sínum á framfæri. % * *' „íslensk hönnun er tvímælalaust að sækja í sig veðrið," segir Guðbjörg Gissurardóttir framkvæmdastjóri Hönnunarvettvangs. Hönnunardagar standa yfir í Reykjavík 17. - 20. nóvember í nýrri og endurbættri Laugardalshöll sem hefur að geyma glæsilegri ftmda- og sýningaraðstöðu. Það er Hönnunar- vettvangur sem samanstendur af Iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu, Samtökum iðnaðarins, Útflutnings- ráði, Reykjavíkurborg, Form ísland, sem eru samtök hönnuða og Intra sem er nýsköpunarmiðstöð, sem skipuleggur Hönnunardaga. Allir hönnuðir undir sama hatt Meiningin er að sameina allt sem Guðbjörg Gissurar- dóttir Framkvæmdastjóri I Hönnunarvettvangs. heitir hönnun undir sama hatt og hvetja fyrirtæki til að nýta sér betur hönnuði því það skilar sér í vænlegri afkomu fyrirtækjanna sjálffa. „Við viljum styrkja hönnuði og efla hönnun í samfélaginu. Það þarf að sameina allt sem heitir hönnun und- ir sama hatt tif að greinin verði sem sterkust og erum við Hönnunarvett- vangur í raun að vinna fyrir alla þessa hönnuði," segir Guðbjörg Gissurar- dóttir framkvæmdastjóri Hönnunar- vettvangs. Uppákomur, námskeið og fyrirlestrar Hönnunardagamir samanstanda af alls kyns uppákomum, nám- skeiðum og fyrirlestrum en föstudag- urinn 18. nóvember verður undir- lagður undir alls kyns fyrirlestra sem ffarn fara í Laugardalshöll. Aðgangur er öllum heimill og kostar 3.500 krónur að taka þátt. Settar eru upp tvær fýrirlestraraðir sem kallast ein- faldlega A og B og þarf fólk að velja á milli því þær verða á sama tíma eða frá klukkan 13-17. Sýningin Brum verður á sama tíma í höllinni en sú sýning samanstendur af íslenskri hönnun tengdri heimilum. „fslensk hönnun er tvímælalaust að sækja í sig veðrið og mörgum gengur vel. Við viljum að fyrirtæki nýti sér hönnuði meira því það nýtist þeim án efa í að selja vörur sínar," segir Guðbjörg. Innlendir og erlendir hönn- uðir Bæði innlendir og erlendir hönn- uðir koma fram og miðla af reynslu sinni og þekkingu en eins ffamleið- endur og fyrirtæki og verða þau stað- sett víðs vegar um borgina, til dæmis í sýningarsölum, verslunum og vinnustofum. Kaupstefna Húsa og Híbýla mun einnig eiga sér stað í Laugardagshöll- inni þannig að mikið verður um að vera og mun höllin iða af lífi. Þeir sem vilja frekari upplýsingar er bent á heimasíðuna: www.icelanddesign.is lena@dv.is (VIA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.