Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.2005, Side 14
14 MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 2005
Fréttir DV
Sandkorn
Eirfkur Jónsson
• Það var mikið um
dýrðir í Fáksheimil-
inu í Víðidal á laugar-
dagskvöldið þegar
BjörkGuðmunds-
dóttir og Guðmund-
ur Gunnarsson faðir
hennar héldú sam-
eiginlega upp á af-
mælin sín. Björk var
fertug og Guðmund-
ur sextugur; samtals
hundrað ára. Sigur-
jón Kjartansson fór á
kostum á sviði Fáks-
heimilisins, reytti af
sér brandara og söng með Möggu
Stínu...
• Mesta athygli vakti
þó afmæliskakan
sem Matthew Bam-
ey, eiginmaður Bjark-
ar bakaði. Matthew
er góður bakari og
var afmæliskaka hans
í formi skúiptúrs sem tók mið af
formi DNA-keðjunnar. Alft lífrænt,
hollt og svo gott sem sykuriaust...
0 Matthew Bamey
mun ekki vera síðri
bakari en listamaður
og kökur hans allt að
því jafh óræðar og
listaverkin sem flest-
um eru kunn.
Matthew bakaði líka brúðkaupskök-
una fyrir Jón Gnarr þegar hann gekk
að eiga Jóku, nuddara Bjarkar, í Frí-
kirkjunni um síðustu áramót...
• Eiríkur Bergmann
Einarsson, einn helsti
sérfræðingur þjóðar-
innar í Evrópumál-
um, fær slæma dóma
fyrir fyrstu skáldsögu
sína, Glapræði. Em
dómamir mjög í takt við nafn bókar-
innar og em gagnrýnendur á einu
máii um að Eiríkur eigi að halda sig
við Evrópumálin en láta bókmennt-
imar í friði. Friðrika Benónýs á vart
orð til að lýsa vonbrigðum sínum og
hér í blaðinu fær Eiríkur hauskúpu,
fyrstur höfunda í jólabókaflóðinu
2005...
• Hljómsveitin
Hjálmar hélt útgáfu-
tónleika í félagsheim-
ilinu á Flúðum um
síðustu helgi.
Stjömuliðið úr
Reykjavík streymdi
austur og á baiiinu mátti sjá þá
Guðna Bergs, Amar Gunnlaugsson
og Þorvald Davíð Kristjánsson feg-
urðarkóng. Grímur Atlason, vinstri
grænn aðgerðasinni,
stóð fyrir tónleikun-
um og var á staðnum
ásamt eiginkonu
sinniHelguVölu
Helgadóttur sem nú
hvílir sig frá fjölmiðl-
um með lögfræði-
námi í Háskólanum í Reykjavík...
• Meðlimir Hjálma lýstu því yfir að
hvergi liði þeim betur en á Flúðum
og myndu flytja þangað ef þeir ætl-
uðu að flytja yfirleitt. Enda hafa gróð-
urhús og reggí-tónfist lengi átt sam-
leið í víðasta skilningi. Þá er jarðhiti á
Fiúðum svo mikiU að gulrætur eiga
það tii að
spretta
upp úr
malbikinu
á aðalgöt-
unniá
staðnum...
Jón Ólafsson athafnamaður fór mikinn á blaðamannafundi
í gær þar sem hann fylgdi nýrri bók sem Einar Kárason reit
um hann úr hlaði. Hann sakaði Skúla Eggert Þórðarson um
mútuþægni og að fara frjálslega með embætti sitt á fylliríi.
Þá sagði hann furðu sæta að ekki hefði farið fram opinber
rannsókn á því að upplýsingar um fikt hans sem unglings í
fíkniefnamálum hafi lekið úr kerfinu.
„Að þessi ágæti maður..., nei,
ágætur er hann ekki, þessi stofnana-
maður, hefur verið á fylfiríi úti í bæ og
sagt það við vin sinn að honum hafi
verið boðin 20 milljóna króna auka-
fjárveiting tíl stofnunarinnar í tvö ár í
senn gegn því að hann færi í mig og
Jón Ásgeir," sagði Jón Ólafsson at-
hafnamaður á blaðamannafundi í
gær.
TUefni fundarins var útkoma
bókar um Jón - Jónsbók - sem Einar
Kárason rithöfundur skrifar. Á fund-
inum vandaði Jón skattrannsóknar-
stjóra ríksins, Skúla Eggerti Þórðar-
syni, ekki kveðjurnar.
í viðtalsbroti við Jón sem birtist í
Ríkissjónvarpinu á mánudagskvöld
sagði Jón Davíð Oddsson þáverandi
forsætisráðherra hafa boðið Skúla
Eggerti tugi mUljóna króna í auka-
fjárveitingu færi hann í sig og Jón
Ásgeir Jóhannesson.
Aukafjárveiting fyrir að hjóla
í Jón og Jón Ásgeir
Jón sagði á fundinum að viðtals-
brotið sem sýnt var í fféttum Ríkis-
sjónvarpsins hefði verið slitið úr
samhengi. Hann talaði um mjög
óvönduð vinnubrögð. Brotið var
tekið úr viðtali sem Jón veitti Þór-
halli Gunnarssyni í Kastljósinu.
Engu að síður ítrekaði hann um-
mæli sín á blaðamannafundinum.
Skúli Eggert vísaði þessari at-
burðarás sem hér er lýst á bug í DV í
gær. Hann segist fyrst hafa átt orða-
skipti við Davíð tæpum tveimur eft-
ir að skattrannsóknin á Jóni hófst.
Jón Ólafsson gefur lítið fyrir þá
skýringu Skúla Eggerts - eða afsök-
un eins og Jón kallar það.
„Hér er ég með þessi lög fyrir
framan mig,“ sagði Jón og veifaði
þeim þar sem samþykkt var auka-
fjárveiting tU embættisins. „Þetta er
aUt rétt. Stendur hér svart á hvítu.
Það var veitt 20 mUljónum í auka-
ijárveitingu tU stofnunarinnar. Af
hverju? Af því að umsvifin voru
svona mikil? Þetta er áður en þeir
fóru í mig! Trúi ég þessu? Erfitt að
gera það ekki.“
Skúli Eggert lausmáll í glasi
Og Jón nefnir til annað dæmi en
segist þekkja þau mörg þar sem
Skúli Eggert hefur farið frjálslega
með völd sín.
„Sigurður G. Guðjónsson var árið
2003 frekar en 2004 í jólasamkvæmi
hjá Landssímanum. Þar var maður
sem segir honum að hann viti hitt og
þetta um mín skattamál. Sigurður
spyr af hverju hann viti þetta. Þá
sagði maðurinn; Skúli Eggert er svo
góður vinur minn. Þetta er ekki eina
dæmið þar sem Skúli Eggert fer
frjálslega með embættisstörf sín. Ég
er allavegana með tvö dæmi um að
hann sé lausmáll í glasi."
Sigurður G. Guðjónsson var
staddur á blaðamannafundinum og
hann bar ekki brigður á orð Jóns.
Ofsóknir á hendur Jóni
Jón fór mUdnn á fundin-
um. Hann sagðist tU dæm-
is aldrei hafa upplifað sig
sem óvin rfkisins númer
eitt eins og ein spuming-
in bar með sér né að hann
hafi verið í tUvistarkreppu
þess vegna. Hann taldi ^0
frekar að þeir væm í
kreppu sem leyft hafa sér að
fara svona gegn honum lUct
og dæmin sanni:
„Þeir em í tUvistarkreppu og
eiga lítU, vesæl vopn: Að þeir skuli
velta mér upp úr því, barna og nota
gegn mér að ég gerði eitthvað af mér
sem krakki og unglingur, smáfikt
þessum fíkniefnamálum!"
Jón Ólafsson lýsti furðu sinni á
því rUd sem lætur það hjá líða að
dómsmálaráðuneytið láti fram fara
opinbera rannsókn þegar upplýs-
ingar á borð við þessar leka úr kerf-
inu. Því klárt sé að þar hafi einhver
opinber embættismaður brotið öll
hugsanleg lög sem varða opinbera
umsýslu: „En af því að þetta var ég
þá mátti gera þetta. Þá vom þeir
bara ánægðir með þetta."
Jón sagði það reyndar furðu sæta
hversu langt hann hefði náð miðað
við þær aðstæður sem hann hefur
búið við.
jakob@dv.is
í tilvistar-
Kreppu og eiga lítil,
vesæl vopn. Að þeir
skuli velta mér upp úr
því, barna og nota
gegn mér að ég gerði
eitthvað afmérsem
krakki og unglingur,
smáfikt íþessum
fíkniefnamálum."