Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.2005, Side 16
76 MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER2005
Fréttir DV
Eiturdvergar
Umhverfissamtökin Vin-
ir jarðarinnar stilltu upp
nokkrum garðdvergum fyr-
ir framan höfuðstöðvar
Evrópuþingsins í Strassbo-
urg í gær. Dvergarnir báru
allir eiturefnamerki. Ástæða
gjörningsins var umræða
um geislavirkan úrgang,
sem hófst fyrr um daginn.
Makedónía
biðlartil EB
í síðustu viku tilkynnti
Evrópusambandið að
Makedónía kæmi til greina
sem aðildarríki. Það hefði
verið á samfelldri sigur-
göngu frá lokum borgara-
styrjaldar í Júgóslavíu fyrir
Qórum árum. Nágrannarík-
in Serbía, Svartfjallaland og
Bosnía og Hersegóvína
koma einnig til greina. Oli
Rehn, yfirmaður matsdeild-
ar ESB, heilsaði af þessu til-
efni upp á aðstoðarforsætis-
ráðherra Makedóníu, Rad-
milu Sekerinsku, í höfuð-
borginni Skopje fyrir helgi.
Vængjaðir
menn
Einn helsti fallhlífa-
stökksstaður heimsins er á
Flórída í Bandaríkjunum.
Um helgina fór þar fram
stökkhátíðin Keys Boogie.
Þá hittast hundruð
stökkvara, etja kappi og
stökkva saman. Michael
Swearingen og Paul
Mazzillo stukku í vængjuð-
um búningum, sem gera
þeim kleift að stjórna sér
betur í frjálsu falli.
Fór betur en á
horfðist
Slökkviliðsmönnum í
borginni Jilin í Kína tókst
að slökkva eld, sem kvilcn-
aði í eiturefnaverksmiðju á
sunnudaginn, fyrr en marg-
ir óttuðust. Gríðarlegar
sprengingar fylgdu elds-
voðanum en í verksmiðj-
unni var mikið magn af
eldsneyti og eiturefnum.
Einn lést í brunanum og 70
slösuðust. Um tíu þúsund
manns þurftu að flýja nær-
liggjandi svæði vegna eitur-
gufa.
Louise Frevert, sem er frambjóðandi Danska Þjóðarflokksins í borgarstjórnarkosn-
ingunum í Kaupmannahöfn, fékk fortíðina heldur betur í andlitið í gær en þá voru
hengdar upp myndir af henni í miðborg Kaupmannahafnar frá yngri árum þegar
hún var klámmyndastjarna. Ekkert er dregið undan á myndunum sem hneyksluðu
bæði Frevert og íbúa borgarinnar.
I dag Louise Frevert berst
I fyrir framtíð sinni i stjórn-
málum á sama tíma og
hún vill verða borgar-
stjóri í Kaupmannahöfn.
Hin 52 ára Louise Frevert, sem sækist eftir því að verða borgar-
stjóri í Kaupmannahöfn fyrir hönd Danska Þjóðarflokksins, á að
baki skrautlega fortíð. Hún var vinsæl klámmyndastjarna í Dan-
mörku á áttunda áratug síðustu aldar og þrátt fyrir að hún hafi
ekki reynt að fara leynt með það var það mikið áfall fyrir hana að
sjá sjálfa sig í grófum kynlífsathöfnum á stórum veggspjöldum í
Kaupmannahöfn um helgina.
„Þetta er einum of heimskulegt.
Ég ætla ekki að tjá mig frekar um
það," sagði Frevert þegar að
danska blaðið BT bar þessi vegg-
spjöld undir hana. Blaðamaðurinn
sem ræddi við hana fullyrti að
Frevert hefði verið í miklu upp-
námi þegar hann talaði við hana.
Eins og áður sagði hefur Frevert
aldrei farið í felur með fortíð sína
sem klámmyndaleikkona og alltaf
talað um að þetta hefðu verið
ærslafull æskubrek. Danskir fjöl-
miðlar hafa aldrei farið í saumana
á klámmyndaferli Frevert þar til nú
þegar málið með veggspjöldin
kom upp.
Á móti innflytjendum
Danski Þjóðarflokkurinn sam-
anstendur af miklum þjóðern-
issinnum sem vilja herta löggjöf
um innflytjendur í Danmörku.
Frevert hefur orðið uppvís að kyn-
þáttahatri á vef sínum á undan-
förnum mánuðum og verið gagn-
rýnd fyrir það en þessi skoðun
flokksins hefur þó átt betur og bet-
ur upp á pallborðið hjá dönskum
almenningi.
Flokkurinn gerir ekkert
Arvin Storgaard, formaður
flokksins í Kaupmannahöfn, varð
„Þetta er einum of
heimskulegt. Ég ætla
ekki að tjá mig frekar
um það."
Frevert búin að kæra
Frevert er sjálf búin að kæra at-
vikið til lögreglunnar jafnvel þótt
hún hafi ekki hugmynd um hver
hafi hengt upp veggspjöldin. „Þeir
munu koma fram fýrr eða síðar.
Svona fólk er stolt af þvf sem það
gerir,“ sagði Frevert.
Á versta mögulega tíma
Veggspjöldin koma á versta
mögulega tíma fyrir
Frevert en borgar-
stjórnarkosningarnar
í Kaupmannahöfn
hefjast í dag. Þar
berst Frevert fyrir því
að auka hlut Flokks
fólksins í borgarráði
til að geta sjálf orðið
borgarstjóri. Stjórn-
málaskýrendur eru
þó ekki á einu máli
um það hvort þessi
atburður muni hafa áhrif
til góðs eða ills fyrir
Frevert. Sumir telja að
hún muni fá samúðarat-
kvæði frá mörgum kjósendum en
aðrir telja að það verði erfitt fyrir
hana að halda í trúverðugleikann
sem hún hefur reynt að
skapa sér í stjórnmálunum
undanfarin ár.
165.000 nýjar heimsóknir
Vefurinn sem sýndi klámmynd-
ir af Louise Frevert fékk heldur bet-
ur góða aðsókn eftir að Ekstra Bla-
det birti fyrstu frétt sína um málið.
Blaðið vísaði inn á vefinn og fékk
hann 165 þúsund nýjar heimsókn-
ir fyrsta daginn.
brjálaður þegar hann sá vegg-
spjöldin. Storgaard var þó ekki
reiður út í Frevert enda fullkunn-
ugt um fortíð hennar heldur út í
ódæðismennina sem hengdu upp
veggspjöldin. „Hún verður sjálf að
ákveða hvort hún sækir þessa
menn til saka en fyrir mér er þessi
hegðun fáránleg," sagði Storgaard.
Þokkafull Freverl
þótti mikil kyn-
bomba á áttunda
áratugnum.
Schröder víkur og Merkel tekur við kanslara
Tímamót í þýskum stjórnmálum
Nú styttist í að ný stjórn taki við
völdum í Þýskalandi með Angelu
Merkel kanslara í stafni. Stjórnar-
flokkarnir halda þessa dagana
flokksþing þar sem ýmislegt geng-
ur á. Meðlimir þeirra beggja eru
búnir að samþykkja stjórnarsátt-
málann. Sósíaldemókratarkusu sér
einnig nýjan formann í gær. Fyrir
valinu varð Matthias Platzeck, 51
árs samstarfsmaður Gerhards
Schröder. Hann tekur við af Franz
Muentefering, sem sagði af sér
þegar viðræður um stjórnarsátt-
mála voru á viðkvæmu stigi fyrir
mánuði síðan.
Ekki hefur myndast stjórnar-
sáttmáli milli tveggja stærstu flokk-
anna í Þýskalandi frá árinu 1960.
Angela Merkel tekur við kanslara-
embættinu af Gerhard Schröder á
næstunni. Það var hins vegar elcki
að sjá á Schröder í gær, sem fékk
sannkallaðar hetjumóttökur frá
flokksmönnum sínum á þinginu.
Já við samstarfi Flokksmenn SPD kusu
með stjórnarsamstarfinu við kristilega
demókrata.
Gaman hjá Merkel Angela Merkel skemmti
sér á flokksþingi kristilegra demókrata I
Berlin á mánudaginn.
Nýr formaður Matthias Platzeck var kjör-
inn formaður sósíaldemókrata á flokksþing-
inu I Karlsruhe I geer.
Hættir á toppnum Það var ekki að sjá að Gerhard Schröder hefði tapað i kosningum þegar
flokksfélagar hans hylltu hann i gær.