Símablaðið - 01.01.1959, Qupperneq 18
RITGERÐARSAMKEPPNI
S í IVIA B LAÐ SI l\l S
Fyrir nokkru efndi Síma-
blaðið til ritgerðasamkeppni
um Félagsmál, og hét 1000 kr.
verðlaunum fyrir beztu rit-
gerðina.
Engin ritgerð barst blaðinu.
Enn vill þó blaðið efna til
ritgerðarsamkeppni meðal
símafólksins, — og nú um efn-
ið
„skipulag og rekstur síma-
stofnunarinnar"
Ritgerðirnar mega vera allt
að 4 síður, i Símablaðinu, og
skulu Iiafa borizt þvi fyrir 1.
október næstk. Yerðlaunin eru
kr. 1500.00, og mun ritstjórnin
dæma um þær ásamt 3 mönn-
um, er liún velur með sér.
Undir greinunum skal vera
dulnefni, en nafn höfundar
fylgja i lokuðu umslagi.
☆ &
STÖKUR
Taka skaltu tólg og mör,
„tran“ og koppafeiti;
gera úr því „gæðasmjör",
en — gettu ekki um heiti!
☆
Þessi staka var nýlega skil-
in eftir á afgreiðsluborði inn-
heimtu Landssímans:
Víða birtast „bjargráðin“,
— bölvun vorra tíma. —
En yfir gnæfir ósvífnin
hjá útvarpi og síma!
% #
sína innan stofnunarinnar, t. d. þeim, sem vinna við af-
greiðslustörf, sé gefinn kostur á að kynna sér viðgerðir,
og öfugt, hlúa vel að Símablaðinu, og fyrir alla muni
taka upp sumarferðalögin að nýju.
Enginn skyldi ætla að léleg fundarsókn og önnur
vandamál er varða félagsstarfið, séu bundin við F.Í.S.
Langt í frá. Allflest félög eiga við sömu vandamál að
etja, en það hefur margsinnis sýnt sig, að félög þessi
geta verið sterk þegar á reynir, og svo mun um F.Í.S.
Það mun halda áfram að vera í fararbroddi á komandi
árum, enda hefur það á að skipa fjölda ágætra einstak-
linga, karla og kvenna.
S. D.
10 ára loftskeytamenn
Veturinn 1947—48 sátu Loftskeytaskólann fleiri nemend-
ur, en dæm ieru um fyrr eða síðar, eða hvorki meira né
minna en 98 manns.
Margir nemendanna voru utan af landi og máttu fyrir
utan dýr skólagjöld kosta hér dýrt uppihald. Það var því
ekki nema eðlilegt, að mikið væri rætt um það, hvað tæki
við er skólanum lyki, hvort allur þessi hópur fengi vinnu
í loftskeytamennskunni.. Sumir töluðu um að komast á
sjóinn, aðrir í flugið eða til Landssímans. Svo voru auð-
vitað aðrir, sem gerðu sér engar grillur um framtíðina.
Enda held ég, að allur þessi hópur hafi ekki beinlínis farið
í skólann af einskærum áhuga fyrir loftskeytamennsk-
unni, fremur hitt, að loftskeytamannaréttinda var hægt
að afla sér með frekar stuttu námi og menn komnir á
þann aldur, að tími væri kominn til að taka sér eitthvað
ákveðið fyrir í lifinu.
Þegar skólanum lauk, fór eins og flesta grunaði, að ekki
fengu allir loftskeytamannastarf að sinni og að því kom,
að mörgum leiddist biðin og stungu skólaskírteininu til
hliðar með gömlum jólakortum og gerðust járnsmiðir, tré-
smiðir eða annað álíka ólíkt loftskeytamennskunni.
Nokkrir komust á sjóinn, í flugið eða veðurþjónustuna
og drjúgur hópur fór til Landssímans, enda hafði hann nú
aukin not fyrir loftskeytamenn vegna mjög aukinnar radíó-
þjónustu. Símablaðið birtir að þessu sinni myndir af nokkr-
um „10 ára“, sem vinna hjá L.I., og notar tækifærið og
óskar þeim til hamingju með áfangann.
10
SÍMABLAÐIÐ
H. H.