Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2005, Page 6
6 MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 2005
Fréttir DV
Aðeins hálft
grænt Ijós
Gísli Helgason,
áheymarfulltrúi
Frjálslyndra í Fram-
kvæmdaráði Reykja-
víkur, vill skýringar á
því hvers vegna
græna ljósið í sum-
um gangbrautarljósum
borgarinnar nái aðeins til
helmings götubreiddarinnar.
„Þegar á umferðareyjuna er
komið, verður fólk aftur að
bíða eftir grænu ljósi til þess
að komast yfir hinn helming
götunnar. Þetta skapar stór-
hættu," segir Gísli sem telur
biðina skapa mikið óöryggi
hjá fötluðum.
Sjálfeyðandi
Það hljómar sem
klippt út úr bíó-
mynd: „Þessi skila-
boð eyðast eftir 10
sekúndur.“ Sú er
samt raunin hjá
bresku símafyrirtæki sem
hefur kynnt þessa nýju skila-
boðaþjónustu sem búist er
við að verði vinsæl hjá
mörgum, þar á meðai ffægu
fólki og fólki sem vinnur
með viðkvæmar upplýsing-
ar. Talsmaður fyrirtækisins
segir að síaukin krafa neyt-
enda sé um öryggi upplýs-
inga og því hafi það tekið
upp þessa sjálfeyðandi sms-
þjónustu.
Viðbrögð
feminista
Hjálmar Sigmarsson
feministi
„Það er alltafgaman að fólki
gangi vel íþvf sem það tekur
sér fyrirhendur. Mín fyrstu við-
brögð við þessum úrsiitum
voru:Æ,æ. Ekki til þess að
draga úr hennar gieði. Innri
fegurð er eitthvað sem við
ættum frekar að sækjast eftir.
Drottning okkar í þeim máium
á þessu ári er Thelma Ásdísar-
dóttir. Ég tek undirþað að
þessar heillaóskir séu skekkja.
Þetta snýst um útlit og ekkert
annað. Við heyrum aldrei að
íslenskir menn séu þeir falleg-
ustu, við heyrum aðeins að
þeirséu hetjur í viðskiptum."
Hann segir / Hún segir
„Mér finnst hann kannski nota
óheppilegt orðalag en með
þvíað segja„öllþjóðin"þá er
hann að alhæfa um eitthvað
sem hann ekki veit. Allt t lagi
að hann sendi henni ham-
ingjuóskir en kannski óþarfi
að taka alveg alla með í það.
Þetta er frábær árangur hjá
henni og hún á hamingjuóskir
skildar fyrir það. Það er síðan
spurning hvort maður setji
spurningarmerki við fegurðar-
samkeppnir í dag. Ég geri það
að vissu leyti enda er hollt að
setja spurningarmerki við
ákveðin málefni oft og tíðum."
Elva Dögg Melsted
feguröardls
Nítján ára gömul hafnfirsk stúlka stakk sig á sprautu á klósettinu á Súfistanum á
Laugavegi. Stúlkan segir rannsókn hafa sýnt að á sprautunni var lifrarbólga C.
Birgir Finnbogason, eigandi Súfistans, segir þetta vera hans eigið mál. Klósettið sé
þó ekki á ábyrgð Súfistans. Elsa María Ólafsdóttir. verslunarstjóri Máls og Menn-
ingar, segir þvert á móti að klósettið sé á ábyrgð Súfistans.
Stakk sijj á lifranbólgu
spraulu a salerni Sufistans
„Það fannst lifrarbólga C í sprautunni," segir nítján ára gömul
starfsstúlka á kaffihúsinu Súfistanum í Máli og Menningu við
Laugaveg og nemi í MR, sem stakk sig á sprautunál á klósettinu
á staðnum fyrir skömmu.
Elsa María Ólafsdóttir
Verslunarstjóri Máts og
Menningar vill gera betur.
„Þegar ég tók pokann upp
stakkst sprautan í lærið á mér,“
segir stúlkan en hún var að taka
rusl af klósettinu þegar óhappið
varð.
Klósettið er á annarri hæð Máls
og Menningar. Aðgengi að því er
fullkomlega eftirlitslaust. Þetta er
ekki í fyrsta sinn sem sprauta
finnst á klósettinu sem virðist vera
vinsæll staður fyrir sprautufíkla
vegna þess að eftirlit vantar.
Kvíðafull bið
„Það kom ekkert út úr fyrstu
prufunni," segir
irfs-
stúlk-
an á
Birgir Finnbogason Neitar aliri ábyrgö.
„Biðin var hrædileg*
kaffihúsinu sem fór samstundis til
læknis eftir að sprautunálin
stakkst í lærið á henni.
Stúlkan segir að það hafi tekið
um mánuð að fá niðurstöðurnar.
„Biðin var hræðileg," segir hún og
bætir því við að biðin hafi haft
áhrif á nám hennar og sálarástand.
Það eina sem huggaði hana var
það að „aðeins" þrjátíu prósent
þeirra, sem stinga sig á sprautu
með lifrarbólgu C, smitist. Hún
segir að sú tölfræði hafi verið
ljós í lífi sínu þennan erfiða
mánuð en hún fékk nýlega
tilkynningu frá lækni
um að hún væri ekki
í hættu.
Klósettið á Súfistanum Hér inni stakk
stúlkan sig á iifrabóigusprautunni
VIII ekki kannast við málið
„Þetta er mitt mál,“ segir Birgir
Finnbogason eigandi Súfistans að-
spurður um málið. Birgir segist
ekki kannast við umræddan atburð
og segir klósettið ekki á ábyrgð
Súfistans.
Fullyrðing Birgis fer þvert á það
sem Elsa María Ólafsdóttir versl-
unarstjóri Máls og Menningar seg-
ir. „Klósettin á annarri hæðinni eru
á ábyrgð Súfistans," segir hún
ákveðin.
Elsa segir að það komi stundum
fyrir að fólk f annarlegu ástandi
leiti á klósettið. Engar myndavélar
séu á ganginum né vörður sem sjái
um öryggi á klósettinu. Elsa segir
að það séu fá klósett í miðbænum
og fíklar sæki þá frekar þangað þar
sem eftirlitið er minnst.
valurg@dv.is
Sonju Haraldsdóttur finnst hún fá lítinn stuðning Öryrkjabandalagsins
Hefur svelt sig í tuttugu daga
„Móður minni leið mjög illa eftir
heimsókn Sigursteins Mássonar f
gær því henni fannst hann ekki sýna
henni neinn stuðning," segir Axel
Bjömsson, sonur Sonju Haraldsdótt-
ur sem er búin að vera í 20 daga í
hungurverkfalli til að krefjast bættra
kjara öryrkja.
„Mamma er máttlaus og þreytt en
á engan hátt að gefast upp og allra
síst eftir að öryrkjabandalagið snýr
við henni bakinu," segir Axel.
Hann segir að Sigursteinn Más-
son, formaður öryrkjabandalagsins,
og Sveinn Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Geðhjálpar, hafi
komið í heimsókn til móður sinnar í
gær og beðið hana um að hætta í
hungurverkfallinu og henni hafi
liðið eins og að þeir væru að snúa
við sér bakinu.
„Sigursteinn sagði að móðir
mín væri búin að marka sporin en
nú væri kominn tími til að hætta.
Samt kom hann hvorki með neinar
tillögur um eitt eða neitt né loforð
um að eitthvað verði gert. Jafnvel þó
hún hætti í hungurverkfallinu þá á
hún hvort sem er eklci fyrir mat."
Axel segir að núna séu þingmenn
farnir í jólafrí og muni væntanlega
eiga ánægjuleg jól enda margir á,
háum launum en geta þeir sam-1
visku sinnar vegna látið móðurl
hans svelta um jólin án þess að ■
neitt verði
að gert,
spyr
hann.
„Það j|
Sveinn Magnússon,
framkvaemdastjóri
Geðhjálpar Fór með
Sigursteini i heimsókn
til Sonju.
kominn tími til að hætta að dansa í
kringum ráðamenn landsins og taia
við fólkið sjálft. Ég efast um að þeir
treysti sér til að halda jól með 90 þús-
und á mánuði. Enginn þeirra virðist
vera tilbúinn að lyfta litlafingri fyrir
móður mfna. Það hleypir iliu blóði í
að sjá hversu dautt fólk er
fyrir þessum málum," segir
Axel að lokum og tekur firam að
ef móðir hans verði stöðvuð í
hungurverkfallinu án þess að
verði gert í málefnum ör-
yrkja taiá hann við og fari í
hungurverkfall.
jakobina@dv.is
Sigursteinn Másson,
formaður Öryrkja-
bandalagsins Bað
Sonju um aö hætta í
hungurverkfallinu.
Sonja Haraldsdóttir öryrki. „Jafnvel þó
hún hætti i hungurverkfallinu þááhún hvort
sem er ekki fyrir mat," segir sonurinn Axel
Björnsson.