Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.2006, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.2006, Blaðsíða 6
6 MÁNUDAGUR 2. JANÚAR 2006 Fréttir 0V Viðbúnaður á Þórshöfn Sýslumannsembættið á Húsavík hafði nokkrar áhyggjur af því að upp úr myndi sjóða á áramóta- dansleik á Þórshöfn vegna þess sem á undan er geng- ið. Á kvöldi annan dags jóla gerðu sjö menn aðsúg að tveimur lögreglumönnum þar í bæ vegna óánægju með þá. Að sögn Lögregl- unnar á Húsávík var þó ró- legra á Þórshöfn á gamlárs- kvöld en reiknað var með. Einhver slagsmál voru þó á dansleik og var einn fluttur á heilsugæslu. Fækkar í Skagafirði íbúum á Norðurlandi vestra fækkaði um 107 á síð- astiiðnu ári, að því er segir á skagafjordur.is. íbúar voru alls 8.877 þann 1. desember. Enn fremur segir að í sveit- arfélaginu Skagafirði hafi íbúum fækkað um 36 á ár- inu 2005 og séu þeir nú 4.110 talsins. í Akrahreppi íjölgaði hins vegar um 10 og búa nú 225 manns þar. „Á Sauðárkróki búa 2.602 og hafði íbúum fækkað um 30 á milli ára eftir lítillega fjölg- un á árinu 2004,“ segir á skagafjordur.is. Hlakkar þú til nýs drs? m Jón Sigurðsson söngvari. „Já, ég hlakka mikið til næsta árs. Næsta ár virðist ætla að verða viðburðarikt hjá mér, bæði Itónlistinni og einkalíf- inu, og svo er maður að byrja í nýrri vinnu líka þannig að maður getur ekki annað en hlakkað til komandi árs." Hann segir / Hún segir Jáhá, hvort ég geri. Það er stefnan að hafa það enn betra en 2005. Eftirþvi sem maöur eldist,þá eru iangtimamark- miðin nær manni. Nýtt ár boðar nýja tlma og þú staldrar við og líturyfir farinn veg. Nýtt ár gefur möguieika á að gera betur." Sigga Lund útvarpskona. Dauðahúsin við Hverfisgötuna eru tóm. Engilbert Runólfsson er dæmdur eitur- lyfjasmyglari, athafnamaður og forstjóri fyrirtækisins sem á húsin, Stafna á milli. Engilbert sendi starfsmenn sína til að reka út fólkið sem þar bjó. Á götuna. Engilbert henti Hverfisgö Þann 30. desember síðastliðinn lagði Ársæll Snorrason leið sína á Hverfisgötuna. Tilgangurinn var að hreinsa út úr dauðahúsun- um. Ársæll gaf fólkinu sem þar bjó einn dag til að koma sér út. Máni Freysteinsson, Jóhann Traustason og Guðbjörg Inga Guð- jónsdóttir eru meðal þeirra sem eru á götunni. Engilberti Run- ólfssyni er alveg sama. m- Dópsmyglarinn Engilbert Eftir fregnir afmannslát- inu á Hverfisgötu henti hann Ibúum þar út.Á götuna. Hópur útigangsmanna í Reykja- vík hefur stækkað. Engilbert Run- ólfsson, dæmdur eiturlyfjasmyglari og forstjóri fyrirtækisins Stafna á milli, rak hóp fólks úr „dauðahúsun- um“ þremur á Hverfisgötunni. Hús- in eru númer 55, 58 og 61. Þar hafa fjórar manneskjur látist í ffkniefna- harmleikjum undanfarið ár. „Undir rós var okkur hótað að puttinn yrði tekinn af okkur. Sá sem kom sagði að hann hefði komið með öxi með sér ef hann ætti húsin," sagði Jóhann Traustason, flkill sem bjó á Hverfisgötu 61 en er nú á göt- unni. Allslaus á götuna Fyrirtæki Engilberts á húsin en starfsmanni hans, Ársæli Snorra- syni, var ásamt fleirum falið að bera fólkið út. Fíklamir Máni Freysteins- son, Jóhann Traustason og Guð- björg Inga Guðjónsdóttir em meðal þeirra sem eiga ekki í önnur hús að venda. Engilbert sendi þau á götuna. Máni hefur tengst dauðsföllunum fjómm en Jóhann og Guðbjörg Inga vom nágrannar Jóns Inga Tómas- sonar og Ólafar Lindu Olafsdóttur sem létust af völdum of stórs skammts flkniefna á jóladag. „Ég gerí það sem þarf tií að halda okkur á lífí.' „Það er bara bíllinn" „Það eina sem við höf- um gegn þessum mönn- um er Jesús Kristur," sagði Jóhann stuttu eftir út- burðinn. Hann og Guð- björg vita ekki hvað tekur við. Þau fá ekki íbúð í bráð en það sem varð þeim til happs er bíll sem þau fengu að láni hjá vinum sínum. „Við getum gist í honum en hann kemur ekki í staðinn fyrir íbúð- ina,“ sagði Jóhann. Útburðurinn tók á parið sem staðist hefur margt um ævina. „Við höfum ekki efni á að fara annars staðar inn. Það er bara bíllinn," sagði Guðbjörg niður- lút. mff Fíkniefnabæli í dauðahúsum „Þetta er bara svo algengt. Við emm ekkert einsdæmi," sagði Jó- hann. Af hans kunningjahópi em fjölmargir á götunni. Þeim fjölgaði til muna eftir umrædda útburði. íbúðin, sem þau bjuggu í, finnst mörgum óíbúðarhæf. Hún var eitt af fíkniefnabælum „dauðahúsanna" á Hverfisgötu. „Við leyfðum öllum að vera hjá okkur sem em í sömu stöðu og við. Heimilislausu fólki," sagði Jóhann. Fyrir íbúðina rukkaði fyrir- tæki tengt Engilberti 65 þúsund krónur á mánuði. Fylgst með íbúum „Við fundum fyrir því að það var fylgst með hús- inu. Það var einhver þama og það var ekki löggan," sagði Jóhann. Þau telja að fregnir af dauða vinafólks þeirra Jóns Inga Tómassonar og Ólafar Lindu Ólafs- dóttur hafi orðið til þess að þau em á götunni. „Ég geri það sem þarf til , au nalda okkur á lífi," sagði Jó- hann óhræddur en svekktur yfir því að vera á götunni. Haltu kjafti! Þegar það spurðist út að Á götunni Jóhann Traustason og Guöbjörg Inga Guöjónsdóttir eru á götunni eftir útburöinn. henda ætti ibúum Hverfisgötunnar út var haft samband við Engilbert Runólfsson. Hann svaraði í símann en sagði þó ekki mikið: „Haltu kjafti!" var það eina sem Engilbert hafði um málið að segja áður en hann lagði á. Vinnur fyrir Engilbert Einn af þeim sem bar íbúunum á Hverfisgötunni tíðindin heitir Ársæll Snorrason. Hann gaf þeim einn dag, eða fram til hádegis 31. desember, til þess að koma sér út. „Ég vinn fyrir hann [Engilbert], ég var beðinn um að sjá um þetta," sagði Ársæll Snorrason þegar hann var spurður um málið. Flugeldur fór inn um glugga og sprakk Kveikti óvart í húsi nágrannans Þorvaldur Skaftason lenti í óskemmtilegri reynslu á gamlárs- kvöld þegar kviknaði í húsi hans við Skerseyrarveg 2 í Hafnarfirði um miðnætti. Flugeldaterta í húsi fyrir ofan hús Þorvaldar datt á hliðina vegna mikils krafts og flugeldarnir þutu í allar áttir, þar á meðal inn um lítinn eldhúsglugga þar sem hann sprakk og læsti eldurinn sig sam- stundis í gluggatjöldin. „Það var mínútuspursmál hvort húsið fuðraði upp eða ekki,“ segir Þorvaldur en húsið er timburhús og það er augljóst að litlu mátti muna en slökkviliðið var mjög fljótt á stað- inn og gekk greiðlega að slökkva eld- inn. „Það var bara hringt í okkur til Grindavíkur og sagt að húsið væri að brenna," segir Þorvaldur en hann var í veislu hjá dóttur sinni. Hann segir að heimkoman hafi ekki verið falleg enda innviðir hússins töluvert illa farnir eftir eldinn, mikið sót var enn inni og duft eftir slökkvistarfið. „Við getum ekki búið hér næstu vikur," segir Þorvaldur sem gerir ráð fyrir því að hann muni gista hjá dóttur sinni eða bróður þar til húsið er orðið íbúðarhæft aftur. „Þetta er ekki skemmtileg reynsla,' segir Jón örn Stefánsson en gestir sem voru heima hjá honum voru að skjóta upp flugeldum þegar tertan datt á hliðina með þeim af- leiðingum að þeir kveiktu í húsinu hans Þorvaldar. Jón segir að hann sé feginn að enginn hafi slasast en honum þyki leitt hvernig fór með húsið. valur@dv.is Fálkaorðan afhent Tólf fengu heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu í gær. Fimm þeirra fengu hana vegna starfa tengdra listum eða menningu og má finna nöfn þeirra á menningarsíð- um blaðsins. Hinir sjö eru séra Bernharður Guðmundsson fyrir störf í þágu þjóðkirkjunnar og alþjóðlegs kirkjustarfs, Guðlaug Hall- björnsdóttir fyrir störf í þágu ný- búa, Guðni Ágústsson fyrir stöif í opinberri þágu, Hrefna Har- aldsdóttir fyrir störf í þágu þroskaheftra, Sigrún Sturludóttir fyrir störf að félagsmálum, Vig- dís Magnúsdóttir fyrir hjúkrun- arstörf og Þráinn Eggertsson fyr- ir vísinda- og kennslustörf.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.