Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.2006, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.2006, Blaðsíða 32
32 MÁNUDAGUR 2. JANÚAR 2006 Menning DV Sólveig Anspach og Mireyja Samper | Framleiðendur myndarinnar. íþessu máli sýndáRÚV Samningai hafa tekist milli Ríkisútvarpsins - sjónvarps og Sólveigar Anspach um sýningu heimildarmyndar hennar / þessu máli sem hér hefur verið sýnd í kvikmyndahúsum og á kvikmyndahátíð. Myndin var önnur tveggja mynda sem gerðar voru um stóra málverkafölsunarmálið. Hina vann Þorsteinn J. Vilhjálmsson og hefur hún þegar verið á dag- skrá Sjónvarps. Samningar við Sjónvarpið um mynd Sólveigar hafa tekið langan tíma. Síðasta sumar kvartaði hún opinberlega yfir fálæti Sjónvarpsins um verkið, en sem kunnugt er lyktaði mái- inu sem var í þann tíma eitt dýrasta rannsóknarmál sem fór fýrir íslenska dómstóla með sýknu. f mynd hennar er málið er skoðað út frá persónulegum sjónarmiðum ákærðra sem og ákærenda en einnig út frá þjóð- félagslegu sjónarmiði og fárán- leika þess í heild sinni. Helstu viðmælendur eru Amar Jens- son, Ólafur Ingi Jónsson, Viktor Smári Sæmundsson, Pétur Þór Gunnarsson, Jónas Freydal Þorsteinsson, Kjartan Gunnars- son, Jón Ragnarsson, Gunnar Snorri Gunnarsson og Bragi Guðlaugsson. Mynd sína vann Solveig í samstarfi við Artye og hefur myndin þegar verið sýnd ytra og fengið jákvæðar umsagnir í helstu blöðum Frakklands þar sem Sólveig starfar og er þekkt fyrir heimildarmyndir sínar. í þessu máli er á dagskrá Sjónvarps þann 8. janúar. Listamenn fá fálkaorðu Afþeim tólf sem Ólafur Ragn- ar Grímsson forseti veitti heiðurs- merki hinnar íslensku fálka- orðu í gær, fengufimm orðuna vegna starfa sinna við iistir eða menningar. Þaueru Brynja Bene- diktsdóttir fyrir störf sín í þágu leiklistar, Guðmimdur Páll Ólafs- son fyrir ritstörf í þágu náttúru- vemdar, Hafliði Hallgrímsson fyrir tónsmíðar, Jónas Jónasson fyrir störf í Qölmiðlum og framlag til fslenskrar menningar og Þóra Kristjánsdóttir fyrir framlag til varðveislu íslenskrar menningar- arfleifðar. Umsjón: Páll Baldvin Baldvinsson pbb@dv.is Mary Poppins endurgerð Mary Poppins vaknar á ný á hvita tjaldinu. Richard Eyre, fyrrum þjóðleikhússtjóri Breta, setti verkið á svið í London i fyrra og setur það upp á Broadway á næsta ári. Eru allir sammála um að honum hafi tekist vel til. Nú standa yfir viðræður um að kvikmynda verkið að nýju. Steven Spiel- berg mun hafa áhuga á að framleiða nýju gerðina, en kvikmyndin frá 1964 er enn afar vinsæl. Hún staðfesti Julie Andrews sem stórstjörnu, en hún hafði árinu áður orðið af hlutverki Elisu í My Fair Lady. Lengi var setið á rétti til að gera úr bókum Travers söngleik, en á næsta ári verður hann á fjölunum austan hafs og vestan og mun þaðan fara víða. Hefur verið áhugi á sviðsetningu Mary Poppins í stóru leik- húsunum hér en réttur ekki verið falur. iMaryPoppin sKápaaf I islenskri útgáfu sögunnar. Síðasta frumsýning ársins var á Smíðaverkstæðinu 29. desember. Kvennablómi gerir sér mat úr fimm smásögum Svövu Jakobsdóttur og tekst i langflestu afbragðsvel að færa knappan stíl og flókin söguefni af bók á svið. Sýningin er hressandi gustur á heldur daufu leikhúshausti. Krufið til merujar Sviðsetning og túlkun kvenna- liðsins (fyrirgefrð strákar) á fimm smásögum Svövu Jakobsdóttur er hressandi og hugmyndarík. Hún er vel balanseruð milli skops og harms, full af lifandi augnablikum, vandlega undirbyggð og samsett. Sögurnar fleyga hvor aðra í gegnum þessar níutíu mínútur, það er varla að finna dauðan punkt - þótt sögu- efnið úr Gefið hvort öðru væri daufast meðhöndlað - sem því miður kom nokkuð niður á hlut Unnar Aspar Stefánsdóttur sem fer með hlutverk konunnar sem gefur brúðguma sínum hönd sína - bók- staflega. Er þá nokkuð meira að segja? Er nema von að menn spyrji? Það er gríðarlegur vandi að koma þessu efrii á svið. Það þarf til þess töluvert hugrekki og djörfung. Vala Þórsdóttir reyndist kjörin mann- eskja í það verk. Sýnilega hefur vinnsla leikgerðarinnar grætt mikið á frjálsum spuna með leikefnið sem er mótað í þaulhugsaðar og tálgað- ar setningar. Kjarnann sjúga þær systur úr beinabyggingu sögunnar, kryfla til mergjar, í spunaærslum og heilaspuna, festa á blað og vinna svo áfram. Vinnuaðferðin leiðir síðan til glaðhlakkalegrar áferðar í upphafi flestra sagnanna sem renna síðan hægt til niðurstöðu - sem oft er harla grá, stundum svört. Góð tækifæri Öðrum en Unni gefast góð tæki- færi. Hér er Aino Jarva í stilltu tragísku hlutverki húsmóður og óbyrju sem byggir hið fullkomna eldhús, hið glæsilegasta hús, svo glæsilegt að á endanum passar hún ekki inn í það. María Pálsdóttir glansar í.sögu móður frá getnaði til fæðingar - skemmtilega grátt atriði. Margrét Vilhjálms fín sem dauð- vona stúlkan sem deyr á brúð- kaupsdaginn. Þórunn Lárusdóttir nær nýrri hæð í þættinum af móð- urinni sem missir fyrst heilann í hendur barna sinna og er svo kom- in með of stórt hjarta. Á móti þessum kvenhlutverkum bregður Kjartan Guðjónsson sér í margra karla líki og var á köflum óborganlega fýndinn. Þess utan eru allar stúlkurnar í smærri pörtum og gefa heldur ekkert eftir þar. Stíllinn Ágústa hefur látið hafa eftir sér yfirlýsingar um að hún vilji líkam- gera leikhúsið. Hún vill leitast við að láta leikara sína beita skrokknum meira. Ókei. Sýningin ber þess ekki sérstök merki. Ágústa aftur trúð- gerir leikinn, notar paródíu, skop- stælingu á hófsaman hátt en afger- andi, rammar stök atriði inn í af- markaðan stíl sem hún svo rýfur. í gáfumannahjali væri hún sögð af- byggja bæði texta og leikstíl. Hún hefur náð fínni samstillingu á hóp krafta sem hafa alls ekki skinið skært saman fyrr. Kjartan er sér á parti, Margrét Vilhjálmsdóttir hefur verið leitandi. um nokkur misseri; Unnur, Aino, Þórunn og María hafa ekki verið að sýna neitt sérstakt: þær eru búnar að vera efnilegar en ekki meir. Hér lenda þær í höndum leikstjóra sem fær þær til að blómstra á fyrirhafnar- lítinn hátt að því er virðist. Umbúnaður allur Smíðaverkstæðið er rassgats- svið. Þau Stígur og Ágústa nota brúna og tröppur niður í leikrýmið af mikilli hugkvæmni, bæta við hallandi rampi, stök tjöld. Þetta er allt í köldum glansandi efnum í stáli, hvítu og svörtu, bognum plastflötum sem skapá spéspegils- tilfinningu og dýpt - falska dýpt. Sýningin er prýðilega lýst við nokkuð erfiðar aðstæður, búin til dýpt í inngangi. Búningaflóra, grfrnur og höfuðföt (eru það ekki allt búningar?) Kristínar Þorvalds- dóttir er frá barokkkenndum skrautklæðum í einfaldar módern- ískar dragtir. Búningaskipti eru mörg og hröð, leikmunir fáir. Hér er allt unnið með einfaldleika og ekkert að flækjast fyrir: Þjóðleikhúsið sýnir á Smíða- verkstæði: Eldhús eftir máli - Hversdagslegar hryllings- sögur. Höfundur: Vala Þórs- dóttir eftir smásögum Svövu Jakobsdóttur. Leikstjóri: Ágústa Skúladóttir. Leikmynd: Stígur Steinþórsson. Búning- ar: Kristín Þorvaldsdóttir. Lýs- ing: Hörður Ágústsson. Tón- list: Björn Thorarensen. Frum- sýning 29. desember 2005. Leiklist Sigri hrósandi Þetta er fyndin og hugkvæm leiksýning, hugvekja á sinn máta - sumt af broddi Svövu hefur sljóvg- ast í tímans rás, en flest reynist furðu samtímalegt. Óhætt er að spá sýningunni velgengni og vinsæld- um á næstu vikum og nú er bara að sjá hvort leikhúsunnendur taka áskorun Þjóðleikhússtýrunnar og virða hinn hraða og samfellda gang leiksýninga sem hún vill gera að reglu í rekstri hússins, drífi sig í leik- hús sem fyrst - þeir munu skemmta sér vel. Páll Baldvin Baldvinsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.