Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.2006, Qupperneq 31

Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.2006, Qupperneq 31
J DV Flass MÁNUDAGUR 2. JANÚAR 2006 31 Nicole Kidman ástfangin Fegurðardfsin og leikkonan Nicole Kidman getur ekki haldið sér frá kærasta sínum, Keith Urban. Hún gerði sér lítið fyrir og fór með börnin sfn tvö sem hún ættleiddi með fyrrverandi eiginmanni sínum, Tom Cruise, til Urbans f Nashville f Tennessee þar sem hún eyddi jólum með honum. Greinilegt þykir að Nichole sé virkilega ástfangin og ef til vill er hún búin að finna ástina og jafnað sig á Tom Cruise. Oft reynist erfitt að finna ástina á ný eftir að hafa brennt sig en vonandi hefur Nichole loksins rétt úr kútnum eftir erfiðan skilnað við Cruise. Með símafóbíu Leikkonan og fyrirverandi „Vinurinn" Courtney Cox segist vera haldin síma- fóbíu. Courtney er meinitla við að tala i sima. „Ég hata að tala i símann, ég hreinlega hata það. Eini staðurinn sem mér finnst í lagi að tala í sima er í bilnum þegar ég er að keyra." Courtney segir líka að hún þoti ekki þegar Ijós- myndarar reyna að ná myndum af dóttur hennar á heimili þeirra í Malibu. „Ég get ekki farið i göngutúra við sjóinn og á ströndinni. Þegar ég er með dóttur minni vil ég vernda hana. Ég verð pirruð og reið þegar ég kemst ekki út að ganga fyrir Ijósmyndurum." Þakkar Nelson Mandela Stórleikarinn og flottræfillinn Will Smith þakkar Nelson Mandela fyrir að veita sér innblástur í grínleik. Hitch-leikarinn góðkunni segir að Nelson hafi veitt honum innblástur í mörg hlutverk sem hann hefur tekist á við. Nelson hvatti hann líka til að nota hæfileika sína til að dreifa hamingju um heiminn í gegnum leik sinn. Það er því alveg óhætt að fullyrða að Nelson hefur haft mikil áhrif á fólk í gegnum árin og stjörnurnar eru þar engir eftirbátar. 3^ Mariah Carey á söluhæstu plötu ársins og er fast á hæla Bítlanna með flest lög í toppsæti vinsældalista MARIAH CAREY EINU SKREFIÁ EFTIR BITLUNUM Árið hefur verið frábært hjá söngkonunni Mariuh Carey og það sér vart fyrir endann á því. Stúlkunni hefur heldur betur skotið upp á stjömuhimininn á nýjan leik eftir hið mikla fall myndarinnar og plötunnar Glitter. Mariah þurfti svo að punga út 30 milljónum dollara til að borga sig út úr gömlum plötu- samningum. Það virðist svo sannarlega hafa borgað sig því plata söngkonunar, The Emancipation of Mimi, er söluhæsta plata ársins í Bandarílgunum. Hún skýst fram fyrir plötu rapparans og íslandsvinarins 50 Cent, The Massacre. Plata Mariuh hefur selst í 4.866 milljónum eintaka á móti 4.834 plötum 50 Cent. Ekki nóg með það, heldur nálgast söngk- onan líka met Bítlanna með flest lög á toppi vinsældalista. Mariah hefúr í heildina átt 17 topplög en Bídamir 20 lög. Mariah er fýrsta konan til að eiga söluhæstu plötuna síðan Alanis Morisette gaf út plötuna Jagged Little Pill árið 1996. Þrátt fýrir að 50 Cent og Mariah hafi komist í það feitt þetta árið hef ur pötusala almennt dregist saman frá fyrra ári, eða frá 650,8 milljónum eintaka niður í 602,2 milljón eintök. Karlpeningurinn í skemmtibransanum virðist svo sannar lega kutma meta hina fögm Mariuh Carey og hafa stjömur eins og Jamie Foxx og Ludacris lýst yfir áhuga sínum á dömunni. Það verður skemmtilegt að sjá hvemig söngkonan kraftmikla fylgir plötunni eftir og hvort henni takist að nappa metinu góða frá Bítlunum. m i mM Sýndi karate fyrir pening Rapparinn Kanye West, sem er einn sá heitasti í bransanum þessa dagana, sagði nýlega í viðtali að þegar hann var yngri hafi hann sýnt karatelistir sínar á götum úti fyrir aura. Rapparinn átti heima í Kína þegar hann var barn og setti oft á stokk til- komumiklar bardagalistarsýningar og segist hafa elskað það. „Þegar ég var lítill fékk mamma vinnu í Kína og ég var vanur að vera með karatesýningar á götum út til að ná í smápening. Ef ég á að vera al veg hreinskilinn fannst mér það mjög skemmtilegt og ég var vanur að kaupa mér ís fyrir ágóðann." Kanye segir þó að mamma sín hafi ekki verið jafn ánægð með uppátæki hans og hafi ekki litist á það að hann væri að betla peninga af fólki sem væri verr sett en hann. „Mamma skildi ekki hvernig ég gat haft pening af þessu fátæka kína- verska fólki. Ætli ég hafi þá ekki ver- ið höstler í fimmta bekk og skemmti fólki." I Mark Wahlberg kemur til með að I leika einn frægasta íþróttaaðdá- I anda allra tíma, Vince Papale. Mark I segist hafa heillast afsögu Vince I um leið og hann frétti afhenni. I Vince var kennari og barþjónn t I hlutastarfi sem á ótrúlegan hátt I komst í ruðningslið Philadelphia \Eagles í upphafi áttunda áratugar- I ins. Hann var eini nýliðinn í sögu I deildarinnarsem ekki hafði áður |sp//oð ruðning í framhaldsskóla. I Hann spilaði með liðinu íþrjú ár en I settist þá í heigan stein, sáttur við Is/tt. Kvikmyndin um kappann mun I heita Invincible og verður tekin upp l/flfi Mariah Carey Vinsælust 2005. MYNDIR AF BRAD PITT N0KTUM Hjartaknúsarinn og kyntáknið Brad Pitt íhugar að höfða mái á hendur Ijós- myndara nokkrum. Hollywood-stjarnan lá allsnakinn í sólbaði, þegar ósvífinn Ijósmyndari náði mynd af honum. Brad lá í mestu makindum og gat engum vörnum við komið. Brad lítur á þetta sem brot á friðhelgi einkalífs síns og krefst þess að Ijósmyndarinn greiði skaðabætur. En hvaða kona væri ekki tii í að sjá Brad Pitt nakinn?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.