Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.2006, Page 14
14 MÁNUDAGUR 2. JANÚAR 2006
Fréttir DV
Óskar Hrafn Þorvaldsson
• Áramótaskaupið í
ár var heldur slappt.
Jafhvel þótt betri
helmingurinn hafl
séð um það þetta
árið. Hjálmar
Hjálmarsson fór þó
á
kostum, bæði sem
kollegi minn Eiríkur
Jónsson og sem
Bubbi Morthens.
Reyndar var atriðið
með Bubba kannski
í það lengsta en
Hjálmar sýndi að hann er eftir-
herma af guðs náð...
• Líkt og Björgvin
Franz Gíslason,
sonur Eddu Björg-
vinsdóttur, leikstjóra
áramótaskaupsins,
sem fór hamförum í
hinum ýmsu gerv-
um
söngvara og söng-
kvenna. Björgvin
Franz hefur getið sér
gott orð sem Jim
Morrison-eftirherma
en hann var ekki
síðri sem Birgitta
Haukdal eða Eivör Pálsdóttir...
• Fátt virðist geta komið í veg fýrir
að Eiður Smári Guðjohnsen verði
kjörinn íþróttamaður ársins af Sam-
tökum íþróttafrétta-
manna annað árið í
röð. Kjörið verður
tilkynnt á miðviku-
daginn við hátíðlega
athöfti á Grand
Hótel og ríkir mesta
spennan hvort Eiður
Smári muni heiðra
samkomuna með nærveru sinni.
Hann komst ekki í fyrra vegna mikils
álags hjá Chelsea en í Ijósi þess að
hann spilar með Chelsea annað
kvöld má búast við því að hann
mæti til að taka við verðlaununum
enda tímasetningin nánast klæð-
skerasaumuð fyrir besta íþrótta-
mann þjóðarinnar...
•Allt er í háaloft á Seltjamamesi
þessa dagana. Allir leikskólakennar-
ar á Sólbrekku, öðr-
um leikskóla bæjar-
félagsins, sögðu upp
störfum fyrir áramót
og verður leikskól-
inn óstarfhæfur í lok
mars ef ekkert verð-
ur að gert. Jón-
mundur Guðmars-
son bæjarstjóri stendur frammi fyrir
erfiðu máli því fastlega má búast
við því að starfsysturnar á Mána-
brekku, hinum leikskóla Seltjarnar-
ness, muni fylgja í fótspor stall-
systra sinna. Tímasetning leikskóla-
kennaranna er fín þar sem sveita-
stjórnarkosningar em í vor...
• Benedikt Jóhannesson, stjórnar-
formaður Nýherja, virðist hafa trú á
fyrirtæki sínu jafnvel
þótt reksturinn hafí
verið erfiður á þessu
ári. Benedikt gerði
sér lítið fyrir og
keypti 500 þúsund
hluti í fyrirtækinu
fyrir 6,75 milljónir
króna. Það vom hæg
heimantökin fyrir
Benedikt að ganga frá kaupunum
því söluaðili var fyrirtækið Talna-
könnun þar sem Benedikt er sjálfur
meirihlutaeigandi...
Þór Óliver Gunnlaugsson fangi á Litla-Hrauni reyndi að taka eigið líf fyrir jólin í
myndavélaklefanum á Litla-Hrauni. Hann segir að tilraunin hafi verið kall á hjálp.
Hjálp sem hann segist ekki fá. Þór Óliver reyndi að hengja sig með peysu en var
bjargað af fjórum fangavörðum.
„Ég þarf að fá lyfin mín og þetta var kall á hjálp,“ segir Þór Óliver
Gunnlaugsson, refsifangi á Litla-Hrauni. Þór Óliver afplánar
sextán ára fangelsisdóm fyrir morðið á Agnari W. Agnarssyni.
Hann hefur reynt að fóta sig þar inni en hefur ekki haft erindi
sem erfiði, að eigin sögn.
Þór Óliver Gunnlaugsson er betur
þekktur sem Vamsberinn. Hann
segist ekki fá þau lyf sem honum ber
að fá samkvæmt læknisráði. Það segir
hann vera aðdragandann að því að
hann reyndi að taka eigið líf í einangr-
unarklefanum á Litla-Hrauni. Það var
miðvikudaginn 21. desember.
Bjargað í dauðakippunum
Úr venjulegum fangaklefa fór Þór
í einangmn. Þar brjálaðist hann að
eigin sögn og rústaði klefanum
sökum þess að hann fékk ekki lyfin
sín. Eftir það var hann fluttur í svo-
kallaðan myndavélaklefa Litla-
Hrauns. Þar reyndi hann, að eigin
sögn, að hengja sig með peysunni
sinni.
„Þeir horfðu á mig setja treyjuna
um hálsinn og herða að," segir
hann. „Þeir komu fjórir og stöðvuðu
mig og þá var ég í dauðakippunum,"
segir hann.
Þór gagnrýnir einnig yfirvöld
vegna þess að hann fékk ekki að tala
við geðlækni eða sálfræðing íyrr en
löngu síðar. Þess í stað segist hann
hafa verið strípaður og skilinn eftir í
sama klefa að loknum skýrslutökum.
Er ekki læknadópisti
„Þetta ástand er algjörlega óvið-
unandi. Ef ég bið um lyfin sem ég
þarf er mér sagt að haga mér eins og
maður," segir Þór og bætir við að
hann misnoti ekki örvandi lyf. Hann
þurfi að fá rítalín vegna sjúkdóma
sinna. Fangelsismálayfirvöld ákváðu
í ágúst árið 2004 að stöðva lyfjagjöf í
nokkrum lyíjaflokkum til að koma í
veg fyrir ólöglega dreifingu lækna-
dóps í fangelsinu. Rítalínið sem Þór
þarf er þeirra á meðal.
Mannréttindabrot yfirvalda
„Ég hafði ekki nein úrræði," segir
hann og vill meina að neitun yfir-
valda um lyfjagjöf til hans sé mann-
réttindabrot. Lögmaður hans, Stein-
grímur Þormóðsson, staðfestir að
hann fái ekki þau lyf sem honum
beri að fá en vill ekki tjá sig að öðru
leyti. Þór hóf afplánun fyrir morðið
árið 2000 og hefur löngum haldið
fram að geð- og sálfræðiþjónustu
fanga og lyijagjöf til þeirra sé mjög
ábótavant. „Ástandið er orðið mjög
þrungið þegar fangar gefast upp og
reyna að hengja sig."
Hjálpin mætti vera meiri
Magnús Skúlason, yfirgeðlæknir
á Sogni hefur einnig þjónað föngum
á Litla-Hrauni. Harm vill ekki tjá sig
um málefni eða sjálfsvígstilraunir
Þórs. Um sjálfsvígstiiraunir fanga
almennt segir hann þær vera sjald-
gæfari nú en áður þar sem eftirlitið
með þeim sé meira. Magnús segir að
geð- og sálfræðileg
hjálp til fanga þurfi
að vera umfangs-
meiri.
„Þessir menn
þurfa líka meiri
skilning og velvild
samfélagsins til að
ná sér á strik,“
segir hann og
bætir við að þörf
sé á að vinna að
bættri og öflugri
geðheilbrigðisþjón-
ustu innan veggja
fangelsa hér á landi.
Ekki náðist í Kristján
Stefánsson, fangelsisstjóra
á Lilta-Hrauni, í gær.
gudmundur@dv.is
Þór Óliver Gunn-
laugsson Reyndiað
svipta sig lífi fyrir jólin á
Litla-Hrauni. Segir það
vera kall á hjálp sem
hann færekki.
Einangrunarklefar Á Litla-
Hrauni var Þóri komið fyrir I
einangrunarklefa. Þar reyndi
hann að svipta sig lifí.
Sonja Haralds búin aö vera í hungurverkfalli í 38 daga
Matarlaus áramót hjá Sonju
Sonja Haralds er búin að svelta
sig í mótmælaskyni gagnvart bág-
um kjörum öryrkja í 38 daga og er
mat-arleysið farið að taka sinn toll
en daglegar athafnir eru farnar að
verða henni erfiðari og segist hún
sofa mikið. Sonja segist sækja styrk
sinn til Guðs og segir að það sé
hann sem haldi henni gangandi.
„Þótt ég sé að verða þreklausari
þá styrkist baráttuandinn með
hverjum degi,“ segir Sonja en hún
hélt matarlaus áramót með syni
sínum Axeli Björnssyni en hún
skálaði fyrir nýju ári með kampa-
víni.
„Ég er tilbúin að fara alla leið,“
segir Sonja um hungurverkfallið
en hún ætlar ekki að draga í land
með mótmæli sín.
Sonja er ekki sú eina sem er í
hungurverkfalli því Ólafur Bertels-
son öryrki er einnig kominn í
hungurverkfall í mótmælaskyni og
til stuðnings við málstað Sonju.
„Það er gott en ég held að fólk
átti sig ekki á því hvað það er að
fara út í,“ segir Sonja um hungur-
verkfall Ólafs Bertelssonar.
Sonja situr þó ekki auðum
höndum þrátt fyrir þrekleysið því
hún skrifar ljóð og sögur ásamt því
að gera bók um dulspeki. Hún seg-
ir að hún hafi hina dularfullu spá-
dómsgáfu og aðspurð hvort hún
viti hvað framtíð hennar beri í
skauti sér segir hún leyndardóms-
full: „Ég veit hvernig þetta fer hjá
mér.“
Sonja Haralds
Ber sig vel og bar-
áttuandinn styrkist.