Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.2006, Side 27
DV Bílar
MÁNUDAGUR 2. JANÚAR 2006 27
'
Vélarafl
jjaguarXK120 Roadster 1952 Eftirað
I hafa unnið við endursmiðina í hálft sjotta ar
I getur Jón Sigursteinsson á Akureyri státað
i sig afþvíað eiga einn fallegasta og eftir-
I sóknarverðasta bíl landsins.
garstarí a Akureyri
haflega sá hraði (120 mflur/klst.)
sem forgerð bflsins náði (samsvar-,
ar 193 km/klst.) 1949-árgerðin náði
rúmlega 200 km hraða á klst. og var
á þeim tíma hraðskreiðasti rað-
smíðaði bfll heims. Hjólhafið er
2,59 m, heildarlengdin 4,42 m og
eigin þyngd um 1500 kg.
XK120 er með gríðarlega sterka
stálgrind. Að framan er klafafesting
og snerilfjöðrun en að aftan stíf
hásing og blaðfjaðrir. Hjólin eru
áberandi stór. Stýrisvélin er
snigildrifin (XK140 er með tann-
stangarstýri). Boddíið er boltað á
grindina. Þótt byggingin sé einföld
heppnaðist hún ákaflega vel, m.a.
varðandi þungadreifingu, veggrip
og snerilstyrk. XK120 var einn öfl-
ugasti og glæsilegasti sportbfllinn á
markaðnum um 1950. Þá spillti
ekki að verð bflsins þótti hóflegt.
XK120 var ekki gallalaus frekar
en önnur mannanna verk - þótti
þungur í stýri, bremsur þóttu í lak-
ara lagi og svo mikið er víst að nú
þætti ekki þægilegt að sitja undir of
stóru stýrishjolinu.
Mögnuð vél
Vélin átti sinn þátt í því að gera
Jaguar XK120 að þeim eftirsótta
sportbfl sem hann var í upphafi 7.
áratugs 20. aldar. Hún er 6 sflindra,
upphaflega með 3,4 lítra slagrými,
2 ofanáliggjaiidi kambása og tvo
SU-blöndunga og skilaði þannig
160 hö (DIN).
Vélina hönnuðu og þróðuðu
þeir William M. Heynes sem var
yfirmaður tæknideildar Jaguar Cars
Ltd. eins og fyrirtækið nefndist eftir
endurskipulagningu vorið 1945 og
Walter Hassan. Endurbætur juku
afl vélarinnar í 180 hö í sérstakri
gerð, XK120M af árgerð 1951, og
með frekari endurbótum í 190 hö í
XK140 ffá 1954. Vélin var framleidd
með 3,8 lítra slagrými frá 1957 (265
DIN-hö í XK150). Það segir meira
en langt mál um kosti vélarinnar að
hún var einn helsti púlshesturinn
hjá Jaguar allar götur til ársins 1986
en þá voru liðin 38 ár frá því notkun
hennar hófst í XK120.
Flestir í Bandaríkjunum
XK120 var framleiddur á árun-
um 1948 til ogmeð 1954. Gerðirnar
voru þrjár, Roadster (opinn), Con-
vertible (blæjubfll) og (Fixed head)
Coupe (með stáltoppi). Samanlagt
munu hafa verið smíðuð rúmlega
12 þúsund eintök, flest af Roadster
(63%). Nærri 95% af bflunum voru
seldir til útflutnings og langstærsti
hluti þeirra í Bandarflcjunum.
Upp úr stríðinu var ekki mikið
pælt í því að vernda bfla gegn ryð-
tæringu, hvorki varðandi hönnun,
smíði eða með forvarnarmeðferð.
Breskir bflar voru hvorki betri né
verri en bflar annarra þjóða í þessu
tilliti en þó þótti Jaguar lengi með
ryðsæknustu bflum. Af því leiðir að
af rúmlega 12 þúsund eintökum
eru hlutfallslega fá enn við lýði.
Stór hluti þeirra bfla sem éndur-
byggðir hafa verið í Bretlandi hafa
verið keyptir frá Bandaríkjunum í
misgóðu ástandi.
Einn XK120 hérlendis
Einn þeirra XK120-bfla sem
seldir voru í Bandaríkjunum var
fluttur hingað á 10. áratugnum. Sá
er XK120 Roadster af árgerð 1952
og var þá í mjög lélegu ástandi og
hefði jafnvel verið talinn ónýtur við
nákvæma skoðun. Mál æxluðust
þannig að Jón Sigursteinsson, bfla-
smiður hjá BSA á Akureyri, eign-
aðist bflinn 1998. Jón var rúm 5 ár
að endursmíða þennan XK120,
nánast stykki fyrir stykki. Hluta af
því verki, sem hlýtur að kallast
þrekvirki, er lýst m.a. með ljós-
myndum sem skoða má á vefsíðu
Leós (http://www.leoemm.
com/xkl20.htm). Sérhæft hand-
verk á borð við endurgerð sjald-
gæffa og verðmætra bfla er ekki á
færi nema fárra fagmanna og enn
færri hafa aðstöðu og úthald til að
klára slíkt verk. Þá mun það nánast
einsdæmi að einn maður vinni alla
verkþættina og allt verkið á eigin
spýtur. Það er umhugsunarefhi
hvers vegna slflcri menningarstarf-
semi er ekki gert hærra undir höfði
hérlendis en raun ber vitni. í Bret-
landi, svo dæmi sé tekið, er litið á
endursmíði klassískra bfla, sem
stenst ströngustu gæðakröfur þar-
lendra sérfræðinga, sem mikilvæga
listiðju enda er hún þar útflutn-
ingsgrein og m.a. kennd sem
námsgrein við háskólann í
Manchester.
www.leoemm.com
dry sump"?
mæli að smurolíuforði í pönnu gæti flugi, t.d. þegar flogið er lóðrétt eða á
lyfst og hangið í lausu lofti. Sama hvolfi. Sameiginlegt með þessum
getur gerst í flugvél, t.d. við skyndi- dæmum er að hætta skapast á að
lega stefiiubreytingu, f krappri smurolíudæla, með rana sem nær
beygju eða við fall (loftgat) og í Ust- niður í pönnu, grípi í tómt. Það
þýddi að smurning vélar, og þar
með kæling, gæti orðið ófullnægj-
andi þegar mest gengur á og mest
ríður á. Til að draga úr þessari hættu
er smurkerfið byggt sem hringrás;
smurolía höfð í þrýstigeymi í stað
pönnu og smurdæla látin knýja
hringrásina. Slflct smurkerfi er lokuð
hringrás og nánast óháð
tregðu/flóttaafli og hreyfingum
vélar. Slflct kerfi nefrúst á ensku „dry
sump" og mætti þýða sem pönnu-
laust eða lokað smurkerfi.
JAGUAR
Snerpa 0-100 km/klst innan við 10 sek.
Verð Ómetanlegt
Flutningurtilfslands
undirbúinn Blllinn hafði
verið lengi i geymslu. Leik-
maður hafði lappað upp á
hann, m.a. með dósablikki
og plastfylliefni sem grunn
málningin huldi.
Boddíið illa farið Viðnán-
ari skoðun reyndist boddiið
mjög illa farið og varð að
endursmíða það að mestu
leyti.
★ ★★★★