Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2006, Qupperneq 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR 2006
Fréttir DV
Burt með
skilti og
listaverk
Vegagerðin hefur sent
Kópavogsbæ ósk um
að bærinn láti fjar-
lægja allra handa
skilti og listaverk sem
standa of nærri þjóð-
vegakerfinu þar sem
það sker land Kópavogs.
Um er að ræða svæði sem
stendur tiltekna fjarlægð
frá þjóðvegunum og kallast
veghelgunarsvæði. Bæjar-
ráð Kópavogs fól bæjar-
verkfræðingi að fara yfir er-
indi Vegagerðarinnar og
veita umsögn um það.
Réðust
á kirkju
Óprúttnir
menn bmtu rúð-
uríVídalíns-
kirkju í Garðabæ
um helgina. Ekki
er vitað hverjir vom þar að
verki. Einnig vom rúður
brotnar í Öldutúnsskóla í
Hafnarfirði um helgina og er
það mál í rannsókn hjá lög-
reglu. Allnokkur innbrot
vom tilkynnt í umdæmi
Lögreglunnar í Hafharfirði
um helgina. í Fjölbrauta-
skólann í Garðabæ kom
starfsmaður að þjófum sem
vom að stela úr tölvustofu
skólans. Þjófamir komust
undan á hlaupum. Þá var
einnig brotist inn í trésmiðju
í Garðabæ og bíla bæði í
Hafnarfirði og í Garðabæ.
Eftirmaður
Viggós?
Sigurður Valur Sveinsson,
þjálfari Fylkis.
„Það fer alveg eftir því hvort viö
töpum fyrir Svíum. Þá förum við
í tveggja ára pásu og getum þá
bara fengið einhvern I þetta hér
heima sem getur sinnt þessu
sem hlutastarfi. Ég myndi vilja
fá Alfreð Gíslason tilþess að
stýra þessum leikjum gegn Svi-
um en hann ersamningsbund-
inn Gummersbach. Því held ég
að það séu þrir sem komi hvað
helst til greina: Geir Sveinsson,
Óskar Bjarni Óskarsson og
Dagur Sigurðsson. “
Hann segir / Hún segir
„Persónulega hefði ég viljað fá
Alfreð Gíslason í starfið en
hann er búinn að binda sig svo
það er ekki hægt. Annars veit
ég lítið hvað hægt er að gera.
Margir benda á GeirSveins-
son. Flann erbúinn að vera
svolítið krítískur á störfViggós
og því veit ég ekki hvort það sé
heppilegt fyrir hann að taka
við liðinu eftir það, hann er
samt góður þjálfari. En ég held
að HSf muni reyna að laga
stöðuna með Viggó og semji
aftur við hann."
Guðriður Guðjónsdóttir,
fyrrverandi landsliðskona.
Landsbankinn skilaði methagnaði á síðasta ári. Hagnaður bankans eftir skatta var
um 25 milljarðar króna. Stjórn Landsbankans ákvað að greiða 13% arð þetta árið
sem alls eru um 3,3 milljarðar króna. Feðgarnir Björgólfur Guðmundsson og
Björgólfur Thor Björgólfsson, sem eiga um 40% í bankanum, fá fínan pening í vas-
ann í byrjun næsta mánaðar.
Feðgamir Björgólfur Guðmundsson og Björgólfur Thor Björg-
ólfsson fá fínan aukapening þegar Landsbankinn greiðir út arð
fyrir síðasta ár í byrjun næsta mánaðar. Feðgarnir munu vænt-
anlega fá um 1,3 milljarða eftir að stjórn bankans ákvað að borga
rúmlega 3,3 milljarða í arð áf methagnaði síðasta árs. Eignar-
haldsfélag þeirra Samson á 40,17% hlut í
bankanum og er eini hluthafínn
, sem á yfír 10% hlutaíjár í fyrir-
tækinu.
Árið 2005 var gott ár í sögu
Landsbankans. Bankinn skilaði
methagnaði, tæpum 25 milljörðum
króna, og hlutabréf hans tvöfölduð-
ust að verðmæti. Stjórn Landsbank-
ans ákvað á aðalfundi á föstudaginn
að greiða 3,3 milljarða í arð til hlut-
hafa þann 7. maí næstkomandi.
Búbót hjá Björgólfum
Það er ljóst að aðaleigendur
Landsbankans, feðgarnir Björgólfur
Guðmundsson og Björgólfur Thor
Björgólfsson, munu ekki bera skarð-
an hlut frá borði þegar kemur að
arðgreiðslum. Björgóffarnir tveir
eiga rétt rúmlega 40% hlntafjár í
bankanum í gegnum eignarhaldsfé-
lagið Samson og munu fá um 1,3
milljarða í arð þegar hann verð-
ur greiddur út. Af þeirri upp-
hæð er borgaður 10% fjár-
magnstekjuskattur þannig að
I' feðgarnir sitja eftir með rúm-
an milljarð á milli handanna.
Starfsmenn fá 300 þús-
und
Stjóm Landsbankans
ákvað jafnframt að hver ein-
asti starfsmaður í fullri vinnu
fengi 300 þúsund króna
kaupauka nú í byrjun mars.
Það mun kosta bankann um
hálfan milljarð. Helga Jóns-
dóttir, formaður starfsmanna-
Björgólfsfegðar Fa
rúman milljarð í arð eftir
skatt fyrir síðasta ár hjá
Landsbankanum.
félags Landsbankans, sagði í samtali
við DV í gær að þetta væri ekki nýtt.
„Við fengum 250 þúsund krónur í
fyrra þannig að þetta er ekki í fyrsta
skipti sem svona er gert. Við emm
hins vegar afar þakklát fyrir þetta
enda ber stjórnendum engin skylda
til að borga okkur eitthvað aukalega.
Það er afar góður starfsandi hérna
og skiptir þar miklu um að eigendur
bankans virðast meta fólk að verð-
leikum," sagði Helga.
Verðmætið hefur tí
faldast
Það er líka
óhætt að segja að
Björgólfsfeðgar
hafa hagnast
verulega á þess-
ari fjárfestingu
sinni í Lands
bankanum.
Þeir keyptu
hlutinn f
bankan-
um fyrir
um ell-
efu
millj-
arða
a sin
um
tíma
hlutur
þeirra í
dag
Björgóifarnir tveir
munu fá um 1,3
milljarða í arð
þegarhann verð^
greiddur út.
metinn
tæpa
120
milli
arða
íbúar Vestmannaeyja keyptu upp málverk eftir útlendinga
Pólskir listaverkasalar sektaðir
Myndlistarmenn frá Póllandi
lentu heldur betur í kröppum dansi
nú á dögunum er þeir seldu málverk
í Vestmannaeyjum. Vom þetta tvær
pólskar stúlkur sem gengu í hús og
seldu verk sem talið er að þær hafi
sjálfar skapað.
Lögreglan fékk spurnir af uppá-
tæki stúlknanna og hafði afskipti af
þeim. Við nánari athugun kom í ljós
Vestmannaeyjar Eyjapeyjar tóku stúlkun-
um vel efmiðað er við sölu þeirra.
að stúlkurnar tvær frá Póllandi
höfðu ekki atvinnuleyfi á íslandi og
var því ekki heimilt að stunda slíka
sölu.
„Þær gengu í hús og sögðust vera
búnar að selja öll málverkin þegar
við hittum á þær," segir Tryggvi Kr.
Ólafsson, rannsóknarlögreglumað-
ur í Vestmannaeyjum.
Stúlkurnar fengu um 10 þúsund
króna sekt og greiddu hana á staðn-
um og gengust þannig undir sátt í
málinu. Við yfirheyrslur hjá lögreglu
sögðust þær hafa selt myndirnar á
250 krónur en vitað er til þess að
málverk hafi verið selt á 2500 krón-
ur.
Ef stúlkurnar sögðu satt um sölu-
verðið þá er ljóst miðað við sektina
að þær stórtöpuðu á málverkasölu
sinni í Vestmannaeyjum.
Pólsku stúlkurnar stoppuðu stutt
eftir afskipti lögreglu og fóm frá
Vincent Van Gogh Málverk eftir hann selj-
ast á aðeins meira en 250 krónur eða 2500
krónur.
Vestmannaeyjum daginn eftir að
þær greiddu sektina. Ekki er vitað
um ferðir þeirra. Hver veit nema
pólskar stúlkur banki upp á hjá íbú-
um Reykjavfkur og nágrennis með
málverk til sölu.
Metblótá
Raufarhöfn
Dúndurstuð var á þorrablótinu
á Hótel Norðurljósum á Raufar-
höfn á laugardagskvöld. Að því er
segir á vefsetri Raufarhafnar-
hrepps var enda metmæting. „Um
190 manns vom við borðhaldið og
enn fleiri bættust í hópinn þegar
ballið hófst. Skemmtiatriði þorra-
blótsnefndar vom frábær og var
hlegið mikið og lengi. Verðlaun
fyrir besta bominn fékk Ragnhild-
ur Þorgeirsdóttir. Forsöngvari var
Steingrímur á Hóli. Hljómsveitin
Kokteill lék fyrir dansi," segir á
raufarhofn.is þar sem meðfylgj-
andi mynd birtist.